Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 29. febrúar 2012 3
www.baendaferdir.is s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Göngugleði við Gardavatn
Fararstjórar: Guðrún Sigurðardóttir
& Jóhanna Marin Jónsdóttir
Verð: 214.600 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, ferðir til og frá flugvelli í Mílanó, hótelgisting, hálft fæði,
drykkir með kvöldverði og íslensk fararstjórn.
9. - 16. júní
Travel Agency
Authorised by
Icelandic Tourist Board
Sp
ör
e
hf
.
Aðalfundur
Aðalfundur Kópavogsdeildar Rauða kross Íslands
verður haldinn mmtudaginn 8. mars kl. 20
í Hamraborg 11, 2. hæð.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Fundarseta er öllum heimil.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Stjórnin
www.redcross.is/kopavogur
í Smáralind 1. mars
Létt Bylgjunnar
verður með léttu „patríót“-
þema.“
Jón Ásgeir segist alltaf hafa
verið með hjóladellu en hann
hafi hins vegar ekki haft efni
á því að kaupa sér hjól fyrr
en um fimmtugt. „Mótorar og
mótorhjól hafa alltaf heillað
mig. Fyrsta hjólið sem ég varð
ástfanginn af sá ég sextán ára
gamall. Það var Harley David-
son Sporter og þegar ég varð
fimmtugur keypti ég mér
þannig hjól. Það er nefnilega
oft þannig að menn eru að láta
gamlan draum rætast um miðj-
an aldur þegar þeir loksins hafa
fjárráð til að leyfa sér það.“
Snýst allt lífið meira og minna
um mótorhjól? „Nei, nei, ekki
alveg. Ég er grafískur hönnuður
og sit við tölvu alla daga, enda-
laust að reyna að finna upp á
einhverju nýju og fara ótroðn-
ar slóðir, en með mótorhjól-
inu heima í skúr kemst maður
í hálfgerða hugleiðslu. Þar er
mekanismi sem einungis er
hægt að setja saman á einn veg,
annars virkar hann ekki. Það er
svakaleg hvíld.“
Þessi hugleiðing Jóns Ásgeirs
leiðir óhjákvæmilega hugann að
hinni frægu bók Zen and the Art
of Motorcycle Maintenance en
hann segist þó aldrei hafa lesið
hana enda sé hún drepleiðinleg.
„Hins vegar er önnur bók, sem
ég fjalla einmitt um í Kickstart,
Jupiter‘s Travels eftir Ted Simon
sem lýsir frábærlega vel hugar-
ástandinu sem maður kemst í.
Þetta er pínulítið eins og að vera
á hestbaki, nema hvað þú ræður
algjörlega för. Það er alveg á
hreinu að hjólið tekur ekki af þér
völdin.“
Meðal annars efnis í Kick-
start má nefna ferðasögu fjög-
urra félaga sem fóru á mótorhjól-
um frá Berlín til Prag og aftur
til baka. „Þetta var óskaplega
skemmtilegt ferðalag og pottþétt
að maður á eftir að gera þetta
aftur,“ segir Jón Ásgeir. „Þetta
var dálítill riddarafílingur. Það
fara fjórir karlar af stað á hjól-
unum sínum og eiga heiminn. Í
næsta blaði verður líka ferða-
saga þar sem Árni Jónsson, sem
býr í Kaliforníu, lýsir ferðalagi
sem hann fór um Argentínu.“
Meðal annars efnis í blaðinu
má nefna ítarlegar kynningar á
kaffi-racerum og strætisrökk-
um, viðtöl við tónlistarmann-
inn Smutty Smiff og mynd-
listarmanninn Erling T. V.
Klingenberg og fleira og fleira.
Hægt er að gerast áskrifandi á
heimasíðunni kickstart.is eða
kaupa blaðið í Kickstart, Vestur-
götu 12 í Reykjavík eða í Mótor-
hjólasafninu á Akureyri.
fridrikab@frettabladid.is
„Þetta er pínulítið eins og að vera á hestbaki, nema hvað þú ræður algjörlega för. Það er alveg á hreinu
að hjólið tekur ekki af þér völdin,“ segir Jón Ásgeir Hreinsson, útgefandi mótorhjólatímaritsins Kickstart.
Fréttablaðið/GVa
Framhald af forsíðu
„Þetta var dálítill riddarafílingur. Það
fara fjórir kallar af stað á hjólunum
sínum og eiga heiminn.“