Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 42
29. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR30
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Lars Lagerbäck krefst
þess að íslenska A-landsliðið í
fótbolta geri fá mistök í vináttu-
landsleiknum gegn Svartfjalla-
landi í dag sem fram fer á Pod
Goricom-leikvanginum í Podgo-
rica. Þetta er annar leikur Íslands
undir stjórn sænska þjálfarans, en
Ísland tapaði 3-1 gegn Japan síð-
astliðinn föstudag í Osaka. Ísland
stillir upp alveg nýju liði frá því í
leiknum gegn Japan og er lands-
liðsþjálfarinn vongóður um að ná
að leggja Svartfjallaland að velli.
Ísland og Svartfjallaland hafa
aldrei áður mæst í landsleik,
hvorki í A-landsliðum né yngri
landsliðum. Í Svartfjallalandi
búa aðeins um 650.000 manns en
árangur karlalandsliðsins í fót-
bolta hefur vakið athygli.
Liðið endaði í 2. sæti í sínum
riðli á eftir Englandi í undan-
keppni Evrópumótsins. Tékkar
höfðu betur í umspili gegn Svart-
fellingum um laust sæti í úrslitum
EM sem fram fer í sumar í Pól-
landi og Úkraínu.
„Ég vonast til þess að við náum
að leika vel og það er mikilvægast
að landa sigri,“ sagði Lars Lager-
bäck í gær við íþróttadeild 365
þegar hann var spurður að því
hvaða væntingar hann hefði fyrir
leikinn í dag.
„Það er líka mikilvægt fyrir mig
að fá að umgangast leikmennina á
æfingum og fá að kynnast þeim
betur. Ég hafði bara hitt um þriðj-
ung af leikmannahópnum áður en
við komum til Svartfjallalands,“
sagði Lars en hann er með alveg
nýtt lið í höndunum frá því í leikn-
um gegn Japan.
Þar fékk Ísland á sig mark eftir
aðeins 90 sekúndur. Landsliðs-
þjálfarinn hefur lagt mikla áherslu
á að liðið þurfi að fækka mistökun-
um sem gerð eru í varnarleiknum.
„Við þurfum að byrja leikinn
gegn Svartfjallalandi betur en við
gerðum gegn Japan. Það er eitt af
lykilatriðunum hjá okkur. Á móti
Japan lékum við ekki vel fyrstu
25 mínúturnar en eftir það fóru
hlutirnir að lagast. Að mínu mati
vorum við á sama plani og Japan
og náðum að skapa okkur færi.
Við fengum á okkur tvö mjög ódýr
mörk gegn Japan og það má ekki
gerast þegar leikið er gegn liðum
í þessum styrkleika.“
Eins og gengur og gerist eru
margir leikmenn enn að jafna sig
eftir átökin með sínum félagsliðum
um síðastliðna helgi og þar kemur
nafn Arons Einars Gunnarsson-
ar, leikmanns Cardiff, fyrst upp
hjá landsliðsþjálfaranum. Aron
lék í 120 mínútur í framlengdum
úrslitaleik enska deildabikarsins
á Wembley síðasta sunnudag þar
sem Liverpool hafði betur eftir
vítaspyrnukeppni.
„Það eru flestir leikmenn klárir
í leikinn. Aron hefur ekki æft frá
hann lék í 120 mínútur á Wembley.
Það eru nokkrir sem eru þreyttir
eftir leiki helgarinnar. Það á ekki
að vera vandamál fyrir þá að spila
gegn Svartfjallalandi. Ég hef trú á
því að þeir geti allir lagt eitthvað
af mörkum.
Það er frábært að fá þessa tvo
leiki, ekki síst fyrir mig. Ég fæ
tækifæri til þess að kynnast leik-
mönnum liðsins. Það má orða það
þannig að með þessum leikjum
séum við að taka fyrstu skrefin.“
Eigum við möguleika á að vinna
Svartfjallaland? „Já, ég hef trú
því,“ sagði Lars Lagerbäck.
seth@frettabladid.is
RAGNA INGÓLFSDÓTTIR er á ferð og flugi þessa dagana. Fyrir fimm dögum var hún
að keppa á alþjóðlega austurríska mótinu og í gær féll hún úr leik á opna þýska mótinu. Ragna
er að safna stigum sem vonandi skila henni inn á Ólympíuleikana í sumar.
Það er frábært að
fá þessa tvo leiki.
Ekki síst fyrir mig því ég fæ
tækifæri til þess að kynnast
leikmönnum liðsins.
LARS LAGERBÄCK
LANDSLIÐSÞJÁLFARI ÍSLANDS
FÓTBOLTI Mistök dómara eru oftar
en ekki helsta umræðuefnið eftir
fótboltaleiki. Það er áhugavert að
rýna í niðurstöður úr þeim rann-
sóknum sem gerðar hafa verið á
störfum atvinnudómara í efstu
deildum á Englandi. Dómarar
hafa rétt fyrir sér í 92,3% tilfella
og aðstoðardómararnir eru með
enn betri tölfræði á bak við sig.
Þeir hafa rétt fyrir sér í 99,3%
tilvika.
Þessar niðurstöður koma
eflaust mörgum á óvart – ekki
síst knattspyrnustjórum og leik-
mönnum, sem hafa yfirleitt eitt-
hvað til málanna að leggja þegar
dómarar taka ákvörðun í hita
leiksins.
Hraðinn í knattspyrnuleikjum
í efstu deildum á Englandi hefur
aukist um 20% á síðustu fimm
árum samkvæmt niðurstöðu
mælinga sem samtök atvinnu-
dómara hafa nú birt. Leikmenn
hlaupa á allt að 21 km/klst. hraða
í langan tíma og samhliða þess-
um breytingum eru gerðar meiri
kröfur til líkamsástands dómara
en gert var áður.
Samtök atvinnudómara vinna
hörðum höndum að því að bæta
líkamsástand dómara og sam-
kvæmt rannsóknum virðast hlut-
irnir vera á réttri leið. - seth
Dómarar í Englandi:
Hafa langoftast
rétt fyrir sér
EKKI DEILA VIÐ DÓMARANN Ryan Giggs,
leikmaður Manchester United, virðist
hissa á dómgæslunni. NORDICPHOTOS/GETTY
Þetta eru fyrstu skrefin
Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari segir það frábært að hafa fengið tvo vináttu-
landsleiki svo hann fái að kynnast íslensku leikmönnunum. Ísland spilar í dag
sinn fyrsta landsleik gegn Svartfellingum. Lars segir Ísland geta unnið leikinn.
BJARTSÝNN Sænski landsliðsþjálfarinn er brattur fyrir leikinn gegn Svartfellingum í
dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í fótbolta leikur í dag sinn
fyrsta leik í Algarve-bikarnum í
ár þegar liðið mætir Evrópumeist-
urum Þýskalands. Þetta er í átt-
unda sinn sem íslensku stelpurn-
ar taka þátt í þessu árlega móti en
bestum árangri náðu þær í fyrra
þegar íslenska liðið komst alla leið
í úrslitaleikinn.
Sara Björk Gunnarsdóttir
er sem fyrr í stóru hlutverki í
íslenska liðinu en hún er þrátt
fyrir að vera aðeins 21 árs gömul
að fara að taka þátt í Algarve-bik-
arnum í fimmta sinn.
„Ég er alltaf spennt fyrir því
að koma hingað og þetta er frábær
undirbúningur fyrir undankeppni
EM. Við höfum staðið okkur vel
á þessu móti og höfum sýnt það
og sannað að þessar stærri þjóð-
ir geta ekkert vanmetið okkur
lengur,“ segir Sara en hópurinn er
nokkuð breyttur nú.
„Það vantar fastaleikmenn í
liðið og við söknum þeirra mikið
en það verður jafnframt spennandi
að sjá hvernig nýir leikmenn koma
inn í nýjar stöður. Vonandi fáum
við meiri breidd í hópinn. Þetta
er rosagóður undirbúningur fyrir
framhaldið,“ segir Sara.
Íslenska liðið vann sögulega
sigra á Dönum og Svíum í mótinu
í fyrra og spilaði til úrslita á móti
Bandaríkjunum.
„Við höfum ekki talað um það
að fara aftur í úrslitaleikinn enda
erum við bara að einbeita okkur að
fyrsta leik. Við mætum þar Þýska-
landi og það er stórleikur og það
væri frábært að geta náð góðum
úrslitum á móti þeim. Við höfum
aldrei unnið Þýskaland og það er
alltaf jafn krefjandi og skemmti-
leg áskorun að spila við svona gott
lið,“ segir Sara sem spilar sinn 44.
landsleik í dag.
Sara Björk er einn af leikmönn-
um íslenska liðsins sem Sigurður
Ragnar Eyjólfsson landsliðþjálfari
var beðinn um að spara fyrir átta
liða úrslit Meistaradeildarinnar
sem taka við strax að loknu mótinu
á Algarve.
„Mér líst ekkert á það,“ segir
Sara í léttum tón. „Ég spila flesta
leikina en ég skil alveg hans við-
horf að vilja spara mig og halda
mér heilli fyrir leikina í Meistara-
deildinni. Ég mun samt aldrei biðja
um skiptingu en ég reyni að vera
skynsöm og læt vita hvernig ég er
eftir hvern einasta leik. Ef ég er
fersk og líður vel þá vil ég nátt-
úrulega spila alla leikina,“ segir
Sara og hún segist njóta tímans
vel í Portúgal.
„Þetta er fínt hótel og það er gott
að komast í hitann og gaman að
hitta stelpurnar. Þetta er frábært
mót sem hefur alltaf þjappað liðinu
vel saman. Þetta er rosalega mikil-
vægt fyrir okkur því að við æfum
ekkert mjög mikið saman yfir
árið. Það er því mjög mikilvægt
mót fyrir okkur að koma saman í
einhverja tíu til ellefu daga,“ segir
Sara.
- óój
Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar í kvennalandsliðinu mæta Þýskalandi í Algarve-bikarnum í dag:
Ég mun aldrei biðja um skiptingu
UNG EN MJÖG REYND Sara Björk
Gunnarsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Carlos Tevez spilaði á
ný í búningi Manchester City í
fyrsta sinn í langan tíma er hann
spilaði í 45 mínútur með varaliði
City í gær.
City mætti Preston North End
í varaliðsdeildinni og þótti Tevez
komast ágætlega frá leiknum.
Hann fékk eitt gott færi eftir
að hafa komist í gegnum vörn
Preston en náði þó ekki að skora.
Leikurinn fór fram fyrir lukt-
um dyrum en forráðamenn City,
þeir Brian Marwood og Patrick
Vieira, fylgdust báðir með leikn-
um.
Talið er ólíklegt að hann verði í
hóp City gegn Bolton um helgina
en mögulega mun hann koma við
sögu í leik liðsins gegn Swansea
10. mars næstkomandi.
- esá
Tevez spilaði með City í gær:
Lítilfjörleg end-
urkoma
CARLOS TEVEZ Sýndi engin snilldartilþrif
í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Liverpool tryggði sér um
helgina þátttökurétt í Evrópudeild
UEFA á næstu leiktíð með því
að bera sigur úr býtum í enska
deildabikarnum. En Carragher
vill komast í Meistaradeildina og
festa liðið í sessi þar.
„Mér finnst við vera stærri
en svo. Við eigum að stefna að
því að komast í meistaradeild-
ina á hverju ári með því að enda
ofarlega í deildinni frekar en
að vinna deildabikarinn,“ sagði
Carragher.
„Já, það er gott að við séum
búnir að tryggja okkur þetta. Nú
er næsta skref að koma okkur
inn í Meistaradeildina. Við vitum
að það verður erfitt og það er
erfiður leikur gegn Arsenal um
helgina.“
„Árangur í Evrópukeppnum
er stór hluti af sögu þessa félags
og þangað verðum við að komast
aftur,“ sagði Carragher. - esá
Jamie Carragher:
Ætlum í Meist-
aradeildina
LANGT SÍÐAN Liverpool hefur ekki
fagnað mikið síðustu ár.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Stöð 2 Sport hefur tryggt
sér sýningarréttinn á vináttu-
landsleik Englendinga og Hol-
lendinga sem fer fram á Wembley
í kvöld klukkan 19.50 að íslensk-
um tíma.
Þetta verður fyrsti landsleikur
Englendinga síðan Fabio Capello
hætti með liðið aðeins fjórum
mánuðum fyrir Evrópumótið í
sumar. Stuart Pearce, þjálfari
enska 21 árs landsliðsins, mun
stjórna enska liðinu í leiknum.
Margir landsleikir í kvöld:
England og
Holland beint