Fréttablaðið - 16.03.2012, Qupperneq 6
16. mars 2012 FÖSTUDAGUR6
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
OPIÐ LAUGARDAGA 10-15.00
Glæný Bláskel
frá Stykkishólmi
Fiskikóngurinn ætlar að keppa í meistaramóti fisksala
sem haldið verður í Danmörku 20 mars næstkomandi.
Þar á að keppa í ostru opnun, opnaðar verða 30 ostrur á
tíma. Fiskikóngurinn hefur því pantað 400 ostrur til þess
að æfa sig á að opna þær. Til gamans ætlum við að gefa
viðskiptavinum að smakka ostrurnar sem verða opnaðar.
ÓKEYPIS
SMÖKKUN
á framandi f iski .
Ætlum að leyfa viðskiptavinum að smakka ostrur
frá 3-6. Vorum að fá glænýjar ostrur frá Hollandi
HUMAR
3.990 kr.kg
Stærð 18-24HUMAR
2.000 kr.kg
VIÐSKIPTI Arion banki færði eign-
ir sínar niður um 13,8 millj-
arða króna vegna kostnaðar við
endurreikning gengislána í kjöl-
far dóms Hæstaréttar í febrú-
ar síðastliðnum. Útreikning-
urinn byggir á sviðsmynd sem
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur
teiknað upp vegna dómsins. Alls
eru sviðsmyndir FME fjórar og
Arion banki valdi þá sem hann
taldi líklegasta. Sá fyrirvari er
þó gerður á útreikningnum að
hann gæti breyst umtalsvert,
til hins betra eða verra fyrir
bankann, ef túlkun á niðurstöðu
Hæstaréttar tekur breytingum
frá þeirri sviðsmynd sem valin
var. Þetta kemur fram í árs-
reikningi Arion banka sem birt-
ur var í gær. Bankinn er fyrstur
stóru viðskiptabankanna þriggja
að birta mat á kostnaði sínum
vegna niðurstöðu Hæstaréttar í
febrúar.
Hagnaður Arion banka eftir
skatta var 11,1 milljarður króna
á síðasta ári og arðsemi eiginfjár
10,5%. Vaxtatekjur bankans juk-
ust milli ára og voru 23,4 milljarð-
ar króna. Þá jukust þóknanatekjur
úr 6,9 milljörðum króna í 10,7
milljarða króna. Á kynningar-
fundi með fjölmiðlum í gær sagði
Höskuldur H. Ólafsson, banka-
stjóri Arion, að tæpur helming-
ur þeirra væri tilkominn vegna
greiðslukortaþjónustu dóttur-
félagsins Valitor og um fjórðung-
ur vegna eignastýringar bankans.
Að mati Höskuldar er niðurstaðan
viðunandi.
Útlán Arion banka jukust úr
451,2 milljörðum króna í 561,6
milljarða króna á árinu 2011 og
eignir hans jukust því umtals-
vert á liðnu ári. Tvennt var þó
ráðandi í þessari breytingu. Ann-
ars vegar greiddi Össur hf. upp öll
sín lán hjá Arion, sem voru vel á
þriðja tug milljarða króna, í mars
2011 með endurfjármögnun frá
erlendum bönkum. Hins vegar tók
Arion yfir íbúðalánasafn þrotabús
Kaupþings, sem metið er á 120
milljarða króna, og hafði áður
verið í sérstökum sjóði.
Innstæður jukust og eru sem
áður uppistaðan í fjármögnun
bankans, eða 67% hennar. Helstu
stjórnendur Arion greindu frá því
á kynningarfundinum í gær að ein
þeirra lykilspurninga sem bankinn
stæði frammi fyrir í ár væri hvort,
og þá hvenær, hann ætti að sækjast
eftir lánshæfiseinkunn hjá alþjóð-
legum matsfyrirtækjum. Slíkt yrði
lykillinn að því að blanda fjármögn-
un hans betur þannig að hún hvíldi
ekki jafn mikið á innlánum. Hvort
það yrði gert færi þó eftir þróun á
lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins.
Ísland er sem stendur með lægstu
einkunn í fjárfestingaflokki. Sú
einkunn þyrfti að hækka um eitt
eða tvö hök. thordur@frettabladid.is
Gengisdómur kostaði
Arion 13,8 milljarða
Arion banki birti fyrstur allra áætlað tap sitt vegna gengislánadóms. Tapið bygg-
ir á einum af fjórum sviðsmyndum FME. Útlán bankans jukust mikið vegna
kaupa á lánasafni þrotabús Kaupþings. Farinn að huga að lánshæfiseinkunn.
HAGNAÐUR Uppistaðan í fjármögnun Arion banka eru innstæður. Vilji er til þess að fjármagna bankann meira með öðrum hætti.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Samkeppniseftirlitið heimilaði á föstudag fjármálafyrirtækjum landsins
að hafa með sér afmarkað samstarf sem miðar að því að hraða úrvinnslu
skuldamála sem varða gengisbundin lán vegna dóms Hæstaréttar 15. febrú-
ar síðastliðinn. Á meðal skilyrða sem sett voru fyrir samstarfi var aðkoma
fulltrúa Neytendastofu og talsmanns neytenda. Í úrskurði eftirlitsins er enn
fremur sett það skilyrði „að fjármálafyrirtækin fresti fullnustuaðgerðum
vegna krafna sem ljóst er að falli undir dóm Hæstaréttar, meðan á samstarf-
inu stendur“. Þegar hafa farið fram tveir fundir á grundvelli úrskurðarins.
Samráðsfundir hafnir
EVRÓPUMÁL Stefnt er að því að opna
fjóra nýja samningskafla í aðildar-
viðræðum Íslands og ESB á ríkja-
ráðstefnu í lok mánaðarins. Þar
verður einnig leitast við að loka
sem flestum köflum. Þá munu við-
ræður í lykilköflum, til dæmis
fiskveiðum og landbúnaði, hefjast
í ár. Þegar hafa ellefu kaflar af 35
verið opnaðir og átta þeirra hefur
þegar verið lokað.
Þetta kom fram í máli Stefan
Füle, stækkunarmálastjóra ESB,
og Nicolai Wammen, Evrópumála-
ráðherra Dana, á Evrópuþinginu
á miðvikudag
þar sem álykt-
u n þi ngsi ns
vegna stöðu við-
ræðnanna var
afgreidd.
Báðir voru
þeir bjartsýnir
um að viðræður
myndu ganga
vel og fljótt
fyrir sig, þó þess yrði gætt að huga
betur að vönduðum vinnubrögðum
en hraðri afgreiðslu.
Í umræðunum sagði Füle að
sambandið væri tilbúið til að taka
tillit til „sérstöðu og væntinga
Íslands“ í viðræðunum. Þó innan
grundvallarreglna sambandsins.
Ályktunin var rædd á Alþingi í
gær þar sem til tals kom kafli um
makríldeilur Íslands við ESB og
Noreg. Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra áréttaði að ekkert
yrði gefið eftir í þeim viðræðum.
„Af hálfu okkar er ekki líðandi að
ESB setji fram einhver skilyrði um
makrílinn í samningaviðræðum
almennt um aðildarferlið,“ sagði
Jóhanna. - þj
Ályktun Evrópuþingsins um stöðu aðildarviðræðna Íslands og ESB:
Stefna að opnun fjögurra nýrra kafla
STEFAN FÜLE
f lítranum
fjórfaldir
darpunktar
celandair
ÓB-lyklinum
a
Vil
I
eð m
Afslátturinn er bæði á ÓB og Olís-stöðvum og gildir
einnig fyrir ÓB-frelsiskort og Staðgreiðslukort Olís.
Alla virka daga kl. 18.00
Disovery Channel er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR LANDSBYGGÐ
BELGÍA Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Belgíu í
dag vegna rútuslyss sem varð 28 manns að bana
í Sviss á þriðjudag. 21 Belgi og sjö Hollendingar
létust, 22 skólabörn og sex fullorðnir.
Um hundrað ættingjar hinna látnu fóru til
Sviss á miðvikudag á vegum belgískra stjórn-
valda. Þeir heimsóttu slysstaðinn í gær auk
þess sem hluti þeirra fór í líkhús til að bera
kennsl á látna ástvini sína. Yfirvöld í Sviss hafa
þó sagt að sum líkanna séu of illa farin til þess
að fjölskyldumeðlimir verði látnir bera kennsl
á þau. Hefja átti flutning líkanna til Belgíu í
gærkvöldi.
Börnin höfðu verið í skíðaferðalagi í Sviss og
voru nýlögð af stað heim á leið í þremur rútum
þegar slysið varð. Rútan skall á vegg í göngum
en verið er að rannsaka orsök slyssins. Ekkert
bendir til þess að rútunni hafi verið ekið of
hratt og tveir bílstjórar hennar höfðu virt regl-
ur um hvíldartíma. Nú er verið að skoða hvort
rútan hafi bilað, hvort bílstjórinn hafi veikst
eða hvort mannleg mistök hafi valdið slysinu.
Fjölmiðlar í Sviss og Belgíu greindu frá því í
gær að bílstjórinn hefði skipt um dvd-disk rétt
áður en slysið varð og höfðu þær upplýsingar
frá ónefndum eftirlifendum. Lögregla sagði
í gær að myndbandsupptökur úr göngunum
sýndu ekkert slíkt. - þeb
Lögregla í Sviss rannsakar rútuslys og þjóðarsorg hefur verið lýst yfir:
Lík barnanna flutt til Belgíu
BÖRNIN HUGGUÐ Mikil sorg ríkti við minningarathöfn
sem haldin var í barnaskólanum í Lommel í Belgíu í
gærdag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJÖRKASSINN
Hjólar þú í vinnuna?
JÁ 8,5%
NEI 91,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hræðist þú uppgang glæpa-
gengja hér á landi?
Segðu þína skoðun á Vísir.is.