Fréttablaðið - 16.03.2012, Qupperneq 10
16. mars 2012 FÖSTUDAGUR
„Að hjóla er eins og kynlíf.
Maður gleymir því aldrei.
Svo eru hjólreiðar líka fín hreyfing.”
Safnaðu mottu og áheitum á www.mottumars.is
H
:N
M
ar
ka
ðs
sa
m
sk
ip
ti
/ S
ÍA
Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur
Dagskrá
15.00 Ellý Katrín Guðmundsdóttir, borgarritari Reykjavíkurborg.
Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs
15.05 Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.
Kostnaður við að eiga bíl á Íslandi
15.25 Ólafur Bjarnason, sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg.
Samgöngur í Reykjavík
15.45 Finnur Sveinsson, sérfræðingur í samfélagslegri ábyrgð hjá Landsbankanum.
Er framtíð í fl ýtibílum?
16.05 Pallborðsumræður. Auk fyrirlesara eru þátttakendur þeir Ástgeir
Þorsteinsson frá Frama og Einar Kristjánsson hjá Strætó.
Að fundinum standa átta aðilar sem hafa frumkvæði að verkefninu en það eru Advania, Alcoa
Fjarðaál, Íslensk nýorka, Landsbankinn, Landspítalinn, Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og
Reykjavíkurborg.
Er framtíð
í fl ýtibílum?
Fundur um framtíð fl ýtibíla á Íslandi verður haldinn
í Tjarnarbíói þriðjudaginn 20. mars kl. 15-17.
Fjallað verður um samgöngur, kostnað við að eiga bíl
og hugmyndir um innleiðingu á fl ýtibílum á Íslandi.
Öllum er velkomið að sækja fundinn.
LANDBÚNAÐUR Hætt hefur verið við
að skera niður allt sauðfé á bænum
Merki á Jökuldal. Riða greindist í
einu heilasýni úr kind þaðan sem
slátrað var á Vopnafirði í haust.
„Samkvæmt greiningum á Til-
raunastöðinni á Keldum þá er riðan
í flokki óhefðbundinna tilfella af
riðu eða af afbrigðinu NOR 98 og
er þetta fjórði bærinn á Íslandi
þar sem þetta afbrigði greinist,“
segir á vef Matvælastofnunar. „Við
þeim tilfellum hefur verið brugð-
ist með niðurskurði, eins og um
hefðbundna riðu væri að ræða.“
Stefanía Þorgeirsdóttir, sérfræð-
ingur á Keldum, skrifaði grein um
málið í Bændablaðið en hún er einn
helsti sérfræðingur landsins í riðu.
Í greininni kemur fram að nokkur
óvissa ríki um skilgreiningu á riðu-
afbrigðinu, sem sé greinilega mun
minna smitandi en hefðbundin riða.
Yfirdýralæknir hefur nú ákveð-
ið að ákveðin millileið verði farin.
Öllum kindum sem eru fimm ára
og eldri verði fargað, ásamt kind-
um sem eru mest skyldar jákvæðu
kindinni. Þá verði heilasýni rann-
sökuð og ákvörðun um frekari nið-
urskurð tekin í framhaldi af niður-
stöðum rannsókna. - óká
Farin verður millileið vegna riðuveiki á Jökuldal:
Hætt við niðurskurð á fé
NOREGUR, AP Norska lögreglan
hefur gengist við því að hafa ekki
brugðist nógu hratt við þegar
fréttir bárust af drápunum í Útey
í fyrrasumar þar sem Anders
Behring Breivik myrti 69 manns.
Niðurstöður innri rannsóknar
lögreglunnar leiddu í ljós að galli
í samskiptaferlum hefði orsakað
tafir á viðbrögðum. Einnig hefði
ofhleðsla á hraðbáti á leið út í eyj-
una með sérsveitarmenn tafið
málin, en alls voru tiltekin 54
atriði þar sem betur hefði mátt
fara.
Breivik náði að athafna sig á
Útey í eina klukkustund og tutt-
ugu mínútur áður en lögregla
handtók hann. Tuttugu manns
hið minnsta eru taldir hafa fallið
í valinn á Útey síðasta stundar-
fjórðunginn áður en Breivik var
stöðvaður.
Øystein Mæland, lögreglustjóri
í Ósló, sagðist á blaðamannafundi
harma að lögregla skyldi ekki
hafa náð að stöðva Breivik fyrr
en raunin varð. Hann baðst afsök-
unar fyrir hönd lögreglunnar að
Breivik náðist ekki fyrr og sagði
ljóst að lögreglan hefði ekki verið
undir hryðjuverkin búin á þessum
tíma. „Hver mínúta var einni mín-
útu of mikið,“ sagði hann.
„Hefðum við getað brugðist
hraðar við? Svarið er já. Ef bát-
urinn hefði ekki verið ofhlaðinn
hefðum við komist fyrr út í Útey.
Við vitum ekki hvort það hefði
leitt til betri niðurstöðu, en það
er ekki útilokað. Og það er sárt
að hugsa sér að við hefðum getað
bjargað mannslífum ef við hefðum
yfirbugað gerandann fyrr.“
Lögregla hefur hingað til verið
treg til að viðurkenna að eitthvað
annað hafi verið hægt að gera til
að bregðast við árás Breiviks.
Grete Faremo dómsmálaráð-
herra tók undir afsökunarbeiðni
lögreglunnar, en margir aðstand-
enda hinna látnu hafa lýst yfir
ánægju með afsökunarbeiðni lög-
reglu. Faremo sagði einnig að
innri rannsóknin hefði verið mik-
ilvæg, gott væri að fá staðreynd-
irnar upp á borðið.
Breivik sjálfur er enn til rann-
sóknar hjá geðlæknum til að skera
úr um sakhæfi hans.
thorgils@frettabladid.is
thorunn@frettabladid.is
Gengst við
mistökum
Norska lögreglan viðurkennir að hafa ekki brugðist
nógu hratt við hryðjuverkum Anders Breivik í fyrra.
54 atriði hefðu betur mátt fara samkvæmt rann-
sókn. Lögreglustjóri baðst afsökunar vegna málsins.
BLAÐAMANNAFUNDUR Í ÓSLÓ Lögreglan kynnti innri rannsókn sína fyrir fjölmiðlum í
gær. Lögreglustjórinn Øystein Mæland baðst afsökunar fyrir hönd lögreglunnar.
SAMKEPPNISMÁL Áfrýjunarnefnd
samkeppnismála hefur staðfest
úrskurð Samkeppniseftirlitsins
um að heimila samruna Íslands-
banka og Byrs. MP banki kærði
á sínum tíma ákvörðunina og
krafðist þess að hún yrði felld
úr gildi.
Í úrskurði Samkeppniseftirlits-
ins frá því í október kom fram
að sterkar vísbendingar væru
um að samruninn myndi auka
skaðlega fákeppni. Hins vegar
ylli alvarleg staða Byrs því að
ástæða væri til þess að heimila
samrunann með vísan til reglna
samkeppnisréttar um fyrirtæki
á fallanda fæti. Taldi eftirlitið að
raunhæfir möguleikar á annarri
sölu en til Íslandsbanka hefðu
ekki verið fyrir hendi.
- mþl
Samruni Íslandsbanka og Byrs:
Kæru MP Banka vísað frá