Fréttablaðið - 16.03.2012, Síða 22
2 • LÍFIÐ 16. MARS 2012
Hin síunga Valgerður
Matthíasdóttir sat
glæsileg að vanda í
sófa Íslensku kaffi-
stofunnar á Höfða-
torgi í vikunni.
Á veitingastaðnum
Snaps er margt um manninn í
hverju hádegi en þar voru sam-
ankomnar ritstýra Nude Magasín,
Jóhanna Björg
Christensen, og
pjattrófan Margrét
Gústavsdóttir eitt
hádegið í vikunni.
Fleiri glæsikonur
voru saman á veit-
ingahúsinu Sushisamba síðast-
liðna helgi en þar var fatahönnuð-
urinn Andrea Magnúsdóttir ásamt
flugfreyjunni Söru Regins og fleiri
flottar.
Sömu helgi voru
sjarmatröllin og tví-
burarnir Arnar og
Bjarki meðal gesta
á Bar 101.
Útgáfufélag 365 miðlar ehf.
Umsjón Ellý Ármanns elly@365.is og
Kolbrún Pálína Helgadóttir kolbrunp@365.is
Förðunn Jóhönnu: Margrét R. Jónasar
Hár Jóhönnu: Daði á Kompaníinu
Fatnaður Jóhönnu: Vera Moda
Skart Jóhönnu: Hildur Hafstein
Forsíðumynd Stefán Karlsson
Útlitshönnun Arnór Bogason
Auglýsingar Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Lífið Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík, sími 512 5000
www.visir.is/lifid
HVERJIR
VORU
HVAR?
Vaxtarræktarjöfurinn Magnús Bess
Júlíusson og unnusta hans, fit-
nessdrottningin Katrín Eva Auð-
unsdóttir dvelja nú á Venice Beach
í Kaliforníu, á strönd sem er kölluð
Muscle Beach. Tilgangur ferðarinn-
ar var meðal annars sá að hitta fjöl-
skyldu Magga í fyrsta skipti, en faðir
hans, Júlíus Bess, hefur leitað henn-
ar nú í hartnær fimmtíu ár og loks
fundið!
Lífið heyrði í Katrínu sem var í
skýjunum enda yfir mörgu að gleðj-
ast en parið á von á sínu öðru barni
á aðeins tveimur árum nú í sumar.
„Júlíus Bess, faðir Magga Bess,
er búinn að leita að föður sínum í
50 ár, en faðir hans var bandarískur
hermaður sem kom hingað í stríð-
inu. Fullur kraftur var settur í leitina
rétt eftir jól og viti menn, hún skilaði
árangri þegar börn, barnabörn og
systkini föður Júlla eða afa Magga
komu í leitirnar en hann er látinn í
dag,“ segir Katrín.
Aðspurð um móttökurnar
þegar þau hittu ættingja Magga
segir hún þær hafa verið fram-
ar öllum vonum. „Þetta er ofboðs-
lega jákvætt og yndislegt fólk sem
hefur opnað heimilin sín fyrir okkur
og við erum svo velkomin að það
er dásamlegt. Það var haldin stór
veisla, þar sem fullt af Bessur-
um komu saman alls staðar að úr
Bandaríkjunum á búgarði sem ein af
frænkunum á.“
Katrín segir alla ættingjana langa
að koma til Íslands. „Það er aldrei
að vita nema að stórt Bess-ættar-
mót verði haldið á Íslandi í sumar.
Alltaf dreymt um dvelja erlendis
Katrín og Maggi fóru út í byrjun
febrúar og munu dvelja þar fram
að miðjum apríl. „Við ákváðum
í fyrra að láta drauminn verða að
veruleika og prófa að búa hér og
æfa. Þar sem við lifum og hrær-
umst í sportinu þá er mjög gaman
að vera á þeim stað í heiminum sem
er Mekka líkamsræktarinnar. Maggi,
sem vinnur sem vélvirki í Álverinu
í Straumsvík ásamt því að þjálfa
með, er í fæðingarorlofi um þessar
mundir og gat því látið þetta verða
að veruleika með mér. Katrín segir
Bandaríkjamenn gapa af undrun
þegar þeir heyra af því að hann fái
sex mánuði í orlof. „Maggi tók mína
þrjá mánuði þar sem ég get unnið
hvar sem er í heiminum,“ segir Katr-
ín sem er fullu starfi með fjarþjálfun
http://betriarangur.is/.
„Ég vil meina að ég sé í besta
starfi í heimi, því ég upplifi persónu-
legan árangur með öðrum á hverj-
um einasta degi og það er virkilega
gefandi.“
14 mánuðir á milli barna
Saman eiga þau Katrín og Maggi
Ísabellu Bess, en hún kom í heim-
inn í mars á síðasta ári en von er á
öðru barni í júní. „Við fengum að
vita það rétt áður en við fórum út að
við eigum von á strák. Það verður
fyrsti strákurinn hans Magga, sem
er bara yndislegt, það verða því
aðeins fjórtán mánuðir á milli Ísa-
bellu og litla bróður hennar.“ Fyrir
á Maggi þær Rögnu Dögg fædda
1991 og Viktoríu Rós fædda 1997.
„Þær koma út til okkar yfir páskana
og við hlökkum mikið til að fá þær.
Spurð um heilsuna á með-
göngunni og hvernig tilfinning
það er að vera með ungt barn
og ólétt á sama tíma segist hún
mjög heppin.
„Ég er búin að vera ofboðs-
lega heppin á báðum meðgöngun-
um og þarf að hafa ótrúlega lítið
fyrir þessu. Það besta sem ég geri
þessa dagana er að skella mér á
línuskauta meðfram strandlengj-
unni hér, með Ísabellu í kerrunni í
27 stiga hita. Ég finn ekkert fyrir því
að vera ólétt, svo er Maggi besti
pabbi í heimi og gerir allt með
dóttur sinni og léttir þar af leiðandi
undir með mér en ég vinn mjög
mikið.“
Katrín Eva, sem hóf feril sinn
í fitness fyrir aðeins nokkrum
árum, hefur náð einstökum ár-
angri og því forvitnilegt að vita
hvort hún ætli sér aftur á pall eftir
barneignirnar.
„Ég stefni allavega á að koma
mér í gott form eftir meðgöngu, en
þannig líður mér best. Ég á bara
einn líkama og hugsa því vel um
hann. Hvað keppnir varðar þá líður
mér eins og ég sé búin að vera að
keppa stanslaust síðan ég steig
síðast af sviði enda búin að þjálfa
ansi margar fitness-stelpur fyrir
sviðið og búin að fylgja Magga
eftir í allar hans keppnir, hérlendis
sem erlendis. En sviðið er vissulega
besta gulrótin að „ofurforminu“ og
þess vegna er aldrei að vita hvað
maður gerir, segir Katrín hlæjandi.
MYND/US WEEKLY
Maggi Bess og Katrín Eva
Auðunsdóttir eru þakklát
fyrir öll kraftaverkin
FJÖLSKYLDUFUNDUR EFTIR
HÁLFRAR ALDAR LEIT
Bon Jovi í göngutúr í Langjökuls
Primaloft úlpunni frá 66°norð-
ur ásamt ásamt sonum sínum,
Jesse James Louis (17), Jacob
Hurley (9) and Romeo Jon (8).
Yngsti sonurinn Romeo Jon er
í Magna dúnúlpu frá 66°norður.
Siggi Hlö fór á tónleika með goðinu
sínu, Bon Jovi, í Barcelona í júlí í fyrra
en Sigga og konunni hans var boðið
þangað af Bon Jovi sjálfum.
Hann gaf söngvaranum úlpu eins
og sjá má á mynd sem birtist í tímarit-
inu US Weekly af Bon Jovi og yngsta
syni hans í íslenskum úlpunum.
„Hann bauð mér út af því að konan
mín, Þorbjörg Sigurðardóttir, sem
rekur fyrirtækið Visitor.is, skipulagði
sumarfríið þeirra á Íslandi,“ svar-
ar Sigurður Hlöðversson, eða Siggi
Hlö eins og hann er iðulega kallað-
ur, þegar hann er spurður hvað hann
hafi verið að gera með Bon Jovi en
Siggi færði söngvaranum gjöf sem
innihélt nokkrar úlpur frá 66°norður
í þakklætisskyni.
Af hverju gafst stjörnunni úlpur?
„Af því að hann býr í New Jersey
þar sem er svipað veður og hérna
heima á Íslandi. Harður vetur og gott
sumar.“
Fórstu í kerfi þegar þú hittir stór-
stjörnuna?
„Nei! Ég var ekki „starstruck“ en mér
leið fáránlega vel alls staðar þar sem
ég gekk um því lífverðirnir skiptu sér
ekkert af mér þar sem ég var í boði
hans. Ég gat valsað þarna um alls
staðar á tónleikasvæðinu. Ég var með
familymember-passa!“ MYND/EINKASAFN SIGGA
BON JOVI Í ÚLPU FRÁ SIGGA HLÖ
Maggi Bess, Katrín Eva og Ísabella Bess á búgarði fjölskyldu hans í Bandaríkjunum, sem þau voru að hitta í fyrsta sinn.