Fréttablaðið - 16.03.2012, Side 26
6 • LÍFIÐ 16. MARS 2012
7.15 Vakna og byrja daginn á að
knúsa tíkina mína, Konný, í dá-
góða stund. Það hleður mann
svo sannarlega jákvæðri orku fyrir
daginn. Hún kúrir svo áfram á
meðan ég fer í sturtu og geri sjeik
dagsins en vaknar um leið og
morgunmaturinn hennar er klár.
8.15 Við Konný förum í morgun-
göngu í snjókomunni og alla
jafna hefði hún svo komið með
mér í vinnuna en þar sem hún
er að lóða þá skutla ég henni til
mömmu sem ætlar að vera með
hana í dag.
9.00 Mæti í vinnuna og kíki á plan
dagsins. Fyrri hluti dagsins fer í
myndvinnslu.
12.00 Hitti Heiðu vinkonu og
hún tekur af mér mynd til að láta
fylgja þessari dagbók. Við lentum
svo í smá ævintýri þar sem að
það var aðeins meiri hálka úti en
ég gerði mér grein fyrir en Heiða
gerði sér lítið fyrir og ýtti bílnum
nánast upp alla Öskjuhlíðina. Við
fórum að því loknu og fengum
okkur hádegismat og áttum mjög
gott ljósmyndaspjall.
13.00 Seinni hluti vinnudagsins
fer í áframhaldandi myndvinnslu,
undirbúning fyrir flutning fyrir-
tækisins og myndatöku á stór-
glæsilegum brúðartertum, en það
er brúðarblað í vinnslu hjá okkur
núna. Í millitíðinni afhendi ég
Brynju Dögg Friðriksdóttur gjafa-
bréf frá Íslandsbanka, sem hún
fékk fyrir að eiga myndskeið árs-
ins í flokknum daglegt líf. Úrslitin
voru tilkynnt við opnun sýningar-
innar Myndir ársins 2012 í Gerð-
arsafni í Kópavogi um síðustu
helgi.
17.15 Fer og sæki Siggu vinkonu
og við komum okkur upp í Hafn-
arfjörð þar sem við hittum fleiri
göngufélaga sem eiga það sam-
eiginlegt að stefna á að toppa í
vor.
18.13 Lagt af stað í göngu
dagsins á Helgafellið og umhverf-
is Valahnúka.
19.08 Toppnum á Helgafellinu náð.
21.00 Fer og sæki Konný til for-
eldra minna og stoppa aðeins svo
við getum nú fylgst með því sem
er að gerast í lífi okkar.
22.30 Kem heim að loknum
góðum degi og byrja á að svara
nokkrum tölvupóstum sem liggur
á. Svo er það bara heitt bað, smá
lestur og góður nætursvefn.
Hver er konan? Sigríður Dögg
Auðunsdóttir fjölmiðlaráðgjafi.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Ég ætlaði alltaf að
verða læknir. Er nú reyndar ekk-
ert búin að gefa það upp á bát-
inn enda kornung enn þá. Reynd-
ar dreymdi mig einnig um að
verða rithöfundur enda er ég mik-
ill áhugamaður um bókmenntir og
les mjög mikið mér til ánægju.
Bakgrunnur/menntun? BA í bók-
menntafræði og framhaldsnám í
hagnýtri fjölmiðlun.
Starf? Framkvæmdastjóri SDA,
ráðgjöf sem sérhæfir sig í al-
mannatengslum, fjölmiðlaráð-
gjöf og textagerð (www.sdaradg-
jof.com)
Hvernig varð hugmyndin að fyrir-
tækinu til? Fyrirtækið varð eigin-
lega til af sjálfu sér. Ég er reyndar
búin að ganga með það lengi í
maganum að stofna eigið fyrirtæki
sem sérhæfir sig í fjölmiðlaráðgjöf
en aldrei verið í aðstöðu til þess að
láta verða af því. Svo komu þær
aðstæður einmitt upp núna rétt
eftir áramótin og ég bara lét vaða.
Fjölmiðlaráðgjöf er mín sterka
hlið, þarna er ég á heimavelli. Ég
var blaðamaður til margra ára og
hef einnig áralanga reynslu af al-
mannatengslum, bæði hér á landi
og í London, þar sem ég vann hjá
stærsta almannatengslafyrirtæki
heims, Weber Shandwick í um þrjú
ár.
Hvaða viðskiptavinir eru á þínum
snærum? Viðskiptavinir mínir
eru allt frá litlum fyrirtækjum og
einstaklingum upp í alþjóðleg
stórfyrirtæki og verkefnin eins
misjöfn og þau eru mörg. Það er
allavega alltaf eitthvað nýtt og
spennandi í gangi.
Þú átt þrjú börn og þrjú stjúpbörn
– hvernig gengur að samtvinna
ferilinn og móðurhlutverkið?
Ég set börnin í forgang og vil frekar
verja frítíma mínum í samveru með
börnunum en í heimilisstörf. Ég er
engin ofurkona og get ekki gert
allt 100%. Til þess að ég geti sinnt
börnunum mínum eins og ég vil hef
ég þurft að sækja mér utanaðkom-
andi hjálp með heimilisstörfin. Ýmist
höfum við verið með au-pair eða
stúlku sem kemur daglega og hjálp-
ar til, enda stórt heimili og foreldrar
sem vinna langan vinnudag. Yngstu
börnin eru fjögurra og sex ára þann-
ig að róðurinn á heimilinu er örlítið
að léttast. Við höfum verið án að-
stoðar í um ár núna og það gengur
alveg upp þó það sé ekki alltaf jafn-
fínt hjá okkur og þegar við fengum
hjálp. Við erum reyndar bæði hjón-
in að vinna svo mikið þessa dag-
ana að við höfum alvarlega verið að
hugleiða það að fá aftur au-pair.
Ég viðurkenni það fúslega að
ég er betri mamma en húsmóð-
ir. Ég er hins vegar ágætiskokkur
og hef gaman af því að elda mat.
Ég reyni að beina kröftum mínum
innan heimilisins í samveru með
börnunum og þannig hefur verka-
skiptingin meðal okkar hjóna eig-
inlega þróast, ég sinni börnunum
og hann innkaupum og flestum
heimilisverkum. Ég er ekki jafn-
dugleg og maðurinn minn í til-
tekt á heimilinu en ég elda alltaf
kvöldmatinn. Svo á ég unglings-
dóttur sem er einstaklega dugleg
að hjálpa til við hin ýmsu heimil-
isstörf og með yngri systkini sín.
Hvert er þitt mottó í lífinu? Ég
reyni að temja mér heiðarleika,
jákvæðni, æðruleysi og bjart-
sýni. Svo forðast ég af fremsta
megni að tala illa um annað
fólk. Mitt helsta mottó í lífinu
er sennilega það að maður
eigi aldrei að sjá eftir neinum
ákvörðunum í lífinu því að á
þeim tíma sem hver og ein
ákvörðun er tekin er hún rétta
ákvörðunin, annars hefði maður
ekki tekið hana.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
ATHAFNAKONAN
DAGUR Í LÍFI
RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR
Dalvegi 18, Kóp.
Sími 568 6500
www.fondra.is
Opið 10-18 virka daga,
Laugardaga opið frá 11-16
Jerseydagar
25% afsláttur
af öllum jerseyefnum,
föstudag og laugardag 17. og 18. mars
Ný efni og ný snið
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.Kanarí
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri • Sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér sæti í sólina.
Heimsferðir eiga örfá sæti laus þann 20. mars og bjóða þau á
einstöku tilboði. Um er að ræða íbúðir á ensku ströndinni, á Atis
Tirma og Fayna. Tryggðu þér sæti strax!
Kr. 79.900
Verð á mann þann 20. mars í 8 nætur, 2-4 í íbúð á Atis Tirma eða Fayna.
Innifalið flug, gisting og flugvallaskattur
Kr. 89.900
Verð á mann þann 20. mars í 8 nætur, 2-4 í íbúð á Liberty.
Innifalið flug, gisting og flugvallaskattur
Kr. 109.900 – með hálfu fæði
Verð á mann þann 20. mars í 8 nætur, 2 í herbergi á Berverly Park.
Aukagjald v. allt innifalið kr. 18.400 á mann.
Innifalið flug, gisting og flugvallaskattur
frá kr. 79.900 20. mars
Sértilboð til
8 nætur
KEEPING UP WITH THE KARDASHIANS
E! ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
M
YN
D
/V
A
LL
I
M
YN
D
/H
EI
Ð
A
H
EL
G
A
D
Ó
TT
IR