Fréttablaðið - 16.03.2012, Side 36

Fréttablaðið - 16.03.2012, Side 36
LÍFIÐ Á FACEBOOKHELGARMATURINN Clinique kynning í Lyfjum & heilsu Kringlunni dagana 15. – 21. mars. Nýja Superdefense 20 SPF augnkremið með öldrunarvörn. Fyrst finnurðu hve mikla og góða vörn það veitir, bæði fyrir sólinni og öðrum öldrunarþáttum í umhverfinu. Síðan finnurðu hve þægilegt það er og sérð í speglinum þennan einstaka ljóma sem það ljær augnumgerðinni. Ný sýn á varnir fyrir augnsvæðið 20% afsláttur á Superdefense augn- og kremlínunni Ef þú verslar 2 Clinique vörur eða fleiri fylgir kaupauki* * Meðan birgðir endast Þegar fyrrum þulan og ís- lenskufræðingurinn, Anna Rún Frímannsdóttir vill dekra við fjölskylduna grillar hún humar og býður upp á ferskt meðlæti með. Grillaður humar í skel 1 kg humar í skel (fyrir um 4) Hvítlaukssmjör 100 gr. smjör 1 msk. steinselja 2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir Bræðið smjörið í potti, bætið hvítlauk og steinselju út í og látið sjóða í um 2 mínútur. Humarinn er settur í bakka með skelhliðina niður og penslaður vel með hvítlauksblöndunni. Grillið á miklum hita í 6 mínútur og snúið af og til. Humarinn er svo borinn fram með brakandi fersku salati, grill- uðu hvítlauksbrauði og hvítlauks- sósu. Einnig er gott að skera niður sítrónu og kreista yfir humarinn. ÓMISSANDI HVÍTLAUKSSÓSA 1 dós sýrður rjómi 18% (200 gr) 2 pressaðir hvítlauksgeirar 1 msk. söxuð steinselja ½ tsk. sítrónusafi Öllu er blandað vel saman, gott að kæla vel áður en borið er fram. GRILLAÐ HVÍTLAUKSBRAUÐ 1 stk. snittubrauð Hvítlaukssmjör Hvítlaukssalt Rifinn ostur Snittubrauðið er skorið í 3 stóra bita og svo eftir endilöngu þann- ig að úr verða 6 ílangar sneiðar. Smurt vel með hvítlaukssmjöri, rifinn ostur er settur yfir og örlítið af hvítlaukssalti. Svo eru brauðin grilluð hæfilega. Algjört sælgæti. BRAKANDI FERSKT SALAT Klettasalat Jarðarber Mangó Steinalaus vínber Rauð paprika Agúrka Rauðlaukur Furuhnetur (má sleppa eða hafa sér) Fetaostur (má sleppa eða hafa sér) INNRÁS ÍSLENSKRA FATAHÖNNUÐA Dagana 22. til 25. mars gera 35 íslenskir fata- hönnuðir innrás í gamla 17 húsið á Laugavegin- um á HönnunarMars. Hægt verður að gera góð kaup hjá hönnuðunum og umfram allt upplifa ein- staka stemningu. Meðal þeirra merkja og hönn- uða sem þar verða eru Steinunn, Thelma Design, Birna, Farmers Market, Bóas, Ella, Elm, Eygló, Go With Jan, Gust, Zizka, Hanna Felting, Heli- copter, Hlín Reykdal, Hringa, Iglo, Kiosk, Kalda, Mundi, Nikita, Rey, Shadow Creat- ures, Skaparinn, Sonja Bent, Ýr . Steinunn Sigurðardóttir Harpa Einarsdóttir Elínrós Líndal

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.