Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 36
LÍFIÐ Á
FACEBOOKHELGARMATURINN
Clinique kynning
í Lyfjum & heilsu Kringlunni
dagana 15. – 21. mars.
Nýja Superdefense 20 SPF augnkremið með öldrunarvörn.
Fyrst finnurðu hve mikla og góða vörn það veitir, bæði fyrir sólinni og öðrum
öldrunarþáttum í umhverfinu. Síðan finnurðu hve þægilegt það er og sérð
í speglinum þennan einstaka ljóma sem það ljær augnumgerðinni.
Ný sýn á varnir fyrir augnsvæðið
20% afsláttur á Superdefense augn- og kremlínunni
Ef þú verslar 2 Clinique vörur eða fleiri fylgir kaupauki*
* Meðan birgðir endast
Þegar fyrrum þulan og ís-
lenskufræðingurinn, Anna Rún
Frímannsdóttir vill dekra við
fjölskylduna grillar hún humar
og býður upp á ferskt meðlæti
með.
Grillaður humar í skel
1 kg humar í skel (fyrir um 4)
Hvítlaukssmjör
100 gr. smjör
1 msk. steinselja
2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
Bræðið smjörið í potti, bætið
hvítlauk og steinselju út í og látið
sjóða í um 2 mínútur.
Humarinn er settur í bakka með
skelhliðina niður og penslaður
vel með hvítlauksblöndunni.
Grillið á miklum hita í 6 mínútur
og snúið af og til.
Humarinn er svo borinn fram
með brakandi fersku salati, grill-
uðu hvítlauksbrauði og hvítlauks-
sósu. Einnig er gott að skera
niður sítrónu og kreista yfir
humarinn.
ÓMISSANDI HVÍTLAUKSSÓSA
1 dós sýrður rjómi 18% (200 gr)
2 pressaðir hvítlauksgeirar
1 msk. söxuð steinselja
½ tsk. sítrónusafi
Öllu er blandað vel saman, gott
að kæla vel áður en borið er
fram.
GRILLAÐ HVÍTLAUKSBRAUÐ
1 stk. snittubrauð
Hvítlaukssmjör
Hvítlaukssalt
Rifinn ostur
Snittubrauðið er skorið í 3 stóra
bita og svo eftir endilöngu þann-
ig að úr verða 6 ílangar sneiðar.
Smurt vel með hvítlaukssmjöri,
rifinn ostur er settur yfir og örlítið
af hvítlaukssalti. Svo eru brauðin
grilluð hæfilega. Algjört sælgæti.
BRAKANDI FERSKT SALAT
Klettasalat
Jarðarber
Mangó
Steinalaus vínber
Rauð paprika
Agúrka
Rauðlaukur
Furuhnetur (má sleppa eða hafa
sér)
Fetaostur (má sleppa eða hafa
sér)
INNRÁS ÍSLENSKRA FATAHÖNNUÐA
Dagana 22. til 25. mars gera 35 íslenskir fata-
hönnuðir innrás í gamla 17 húsið á Laugavegin-
um á HönnunarMars. Hægt verður að gera góð
kaup hjá hönnuðunum og umfram allt upplifa ein-
staka stemningu. Meðal þeirra merkja og hönn-
uða sem þar verða eru Steinunn, Thelma Design,
Birna, Farmers Market, Bóas, Ella, Elm, Eygló,
Go With Jan, Gust, Zizka, Hanna Felting, Heli-
copter, Hlín Reykdal, Hringa, Iglo, Kiosk,
Kalda, Mundi, Nikita, Rey, Shadow Creat-
ures, Skaparinn, Sonja Bent, Ýr .
Steinunn
Sigurðardóttir
Harpa Einarsdóttir Elínrós Líndal