Fréttablaðið - 16.03.2012, Qupperneq 44
16. mars 2012 FÖSTUDAGUR24 24
menning@frettabladid.is
Íslensk kirkjusaga er nýkom-
in út, rituð af Torfa K. Stef-
ánssyni Hjaltalín. Þar er
fjallað á aðgengilegan hátt
um áhrif kirkjunnar og
útgáfu, trúarlíf almennings
og einstaka kennimenn.
Ég sá tvær bækur um kirkju-
sögu úti í Noregi sem eru kennd-
ar í framhaldsskólum þar. Hér er
íslensk kirkjusaga hins vegar ekki
kennslufag en ég ákvað að skrifa
hana samt,“ segir Torfi K. Stef-
ánsson Hjaltalín, sem nýlega gaf
út Íslenska kirkjusögu sem hann
segir henta prestum, nemum í guð-
fræði, sagnfræði og bókmennta-
fræði, ásamt öllum almenningi.
„Fólk getur lesið söguna sem eina
heild en líka notað sem uppflettirit
því kaflar eru fremur stuttir og auð-
velt er að finna einstök atriði eftir
efnisyfirliti og nafnaskrá. Bókin er
að mestu unnin upp úr öðrum ritum
en auðvitað umskrifaði ég allt. Vil
ekki lenda í sömu gryfju og Hann-
es Hólmsteinn og svo er maður svo
sérvitur að finnast alltaf eigin texti
bestur,“ segir hann sposkur.
Það sem einkum kom Torfa
á óvart við vinnslu bókarinnar,
að eigin sögn, var hversu mikið
Íslendingar skrifuðu af trúarlegu
efni á miðöldum. „Ég bjó í Noregi
í eitt ár og tók eftir að Norðmenn
voru að skrifa um íslenskar mið-
aldabókmenntir, ekki bara Snorra
og Íslendingasögurnar heldur líka
trúarbókmenntir. Sumar þeirra
hafa ekki einu sinni verið gefnar
út á íslensku. Ég get nefnt kvæði
frá miðöldum sem heitir Geisli og
fjallar um Ólaf konung helga. Það
var flutt við vígslu Niðaróssdóm-
kirkju 1153 og þykir voða flott.
Íslendingurinn Einar Skúlason orti
það. Þeir voru fleiri Íslendingarnir
sem sátu úti í Noregi og ortu, einn
þeirra var Hallfreður vandræða-
skáld. Þetta voru miklir höfðingjar.“
Torfi segir líka áhugavert í sög-
unni hversu kaþólskan hafi verið
sterk áfram í landinu á 16., 17. og
jafnvel 18. öld þótt búið væri að
skipta um sið. „Íslendingar þýddu
mikið úr þýsku á fyrstu öldum sið-
bótarinnar og þaðan komu sterk
kaþólsk áhrif. Menn voru að þýða
hér nýlega útkomin rit þannig að
þeir fylgdust mjög vel með. Þetta
eru bókmenntir til sáluhjálpar
fyrir almenning á öllum stund-
um og stöðum í lífinu. Talað hefur
verið neikvætt um 17. og 18. öld en
svo virðist sem margt jákvætt hafi
líka verið í gangi þá. Guðbrandur
biskup og Arngrímur lærði voru
stórvirkastir í þýðingum á þessum
tíma og Hólaprentið gaf mikið út.
Víða í Evrópu sáu prentarar og leik-
menn um svona útgáfu en hér voru
biskuparnir með sjálfstæða stefnu
á þessu sviði þó svo að eftir siða-
skiptin væri íslenska kirkjan bara
lítil deild innan danska stjórnskipu-
lagsins, undir kóngi í raun og veru.“
Í þessari þúsund ára kirkjusögu
kveðst Torfi reyna að finna þráð
sem einkenni trú okkar Íslendinga
og nefnir þar dulhyggju- og and-
aktarbókmenntir sem notaðar hafi
verið til heimabrúks við húslestra
um aldir, ásamt sálmabókum. Pass-
íusálmar Hallgríms séu gott dæmi
um trúarlegt efni sem lifi með þjóð-
inni og sé lesið á hverri lönguföstu
enn í dag.
Torfi er einmitt kominn í
nútímann í bókarlok, gerir þar
grein fyrir auknum úrsögnum
úr þjóðkirkjunni og minnkandi
trausti hennar, samkvæmt skoð-
anakönnunum. Telur hann sjálfur
hana standa á brauðfótum? „Nei, ég
held að kirkjan standi ekkert illa á
Íslandi,“ segir hann. „Átta prestar
sækjast eftir biskupsembættinu en
maður hélt að enginn hefði áhuga á
því eftir það sem á undan er geng-
ið. Það sýnir að kirkjunnar fólk lítur
ekki á það sem ok að verða biskup
yfir Íslandi.“ gun@frettabladid.is
Reyndi að finna þráð sem
einkenndi trú Íslendinga
RITAR SÖGU
KIRKJUNNAR
„Ég held að kirkjan standi
ekki illa. Átta prestar sækjast
eftir biskupsembættinu,“
segir Torfi Hjaltalín.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BORGARBÓKASAFN og Myndlistaskólinn í Reykjavík standa fyrir myndasögusamkeppni fyrir fólk á aldrinum 10–20+ ára.
Þemað er manga. Verkin geta hvort sem er verið myndasaga eða stök mynd með myndasögutema og/eða tengist mynda-
sögum á einhvern hátt. Nánari upplýsingar um keppnina eru á vefsíðunni www.borgarbokasafn.is.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
EIRVÍK innréttingar
NÝJUNG
á íslenskum
innréttingamarkaði
Farðu alla leið með Eirvík
Við höfum gert samning við einn stæsta innréttingafram-
leiðanda Þýskalands um framleiðslu á eldhúsinnréttingum
sem verða seldar undir vörumerki Eirvíkur.
Þér er boðið í glæsilegan sýningasal okkar þar sem við
kynnum nýjustu strauma í hönnun eldhúsa.
ÞÝSKÍSLENSKSAMVINNA
SÝNING LAUGARDAG KL. 11:00-15:00
LA BOHÈME
GIACOMO PUCCINI
HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR · GISSUR PÁLL GISSURARSON
ÞÓRA EINARSDÓTTIR · GARÐAR THÓR CORTES
ÁGÚST ÓLAFSSON · HRÓLFUR SÆMUNDSSON · JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR · BERGÞÓR PÁLSSON
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON · LEIKSTJÓRI: JAMIE HAYES
LEIKMYND: WILL BOWEN · BÚNINGAR: FILIPPÍA ELÍSDÓTTIR · LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON
FÖSTUDAGINN 16. MARS KL. 20 - FRUMSÝNING
LAUGARDAGINN 17. MARS KL. 20 - 2. SÝNING
LAUGARDAGINN 31. MARS KL. 20 - 3. SÝNING
SUNNUDAGINN 1. APRÍL KL. 20 - 4. SÝNING
LAUGARDAGINN 14. APRÍL KL. 20 - 5. SÝNING
FÖSTUDAGINN 20. APRÍL KL. 20 - LOKASÝNING
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á WWW.HARPA.IS
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 16. mars 2012
➜ Uppákomur
10.00 1.500 leik- og grunnskólanem-
endur syngja saman í göngugötunni á
Akureyri, neðst í stöllunum í Skátagilinu.
14.00 Húsverndarstofa stendur fyrir
málþingi um viðhald og endurbætur
eldri húsa í Kornhúsinu í Árbæjarsafni.
Aðgangur er ókeypis.
19.30 Húsavíkurkvöld Völsungs verður
haldið á Spot í Kópavogi. Miðaverð er
kr. 5.000.
20.00 Uppistandið Guðni Ágústsson
og Fíllinn ásamt hananum Hrólfi fer
fram á Græna Hattinum. Miðaverð er
kr. 2.000 Seinna uppistandið verður kl.
23.00.
➜ Tónlist
12.00 Ástríður Alda Sigurðardóttir
píanóleikari spilar á tónleikum í Víði-
staðakirkju. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
21.00 Hljómsveitin Eldar stígur á svið
á Bar 11. Eftir tónleika mætir DJ í búrið.
Aðgangur er ókeypis.
21.30 Kalli Hallgríms heldur tónleika
með Gímaldin og HEK á Café Haítí.
22.00 KK og Illgresi halda tónleika á
Café Rosenberg.
23.00 Hljómsveitin Homo and the
Sapiens heldur tónleika á Ob-La-Dí,
Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Kristi Raik, fræðimaður við
Alþjoðamálastofnun Finnlands, ræðir
um aðlögun Finnlands og Eistlands að
öryggis- og varnarmálastefni ESB. Fyrir-
lesturinn fer fram í stofu 101 í Lögbergi.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is