Fréttablaðið - 16.03.2012, Side 46
16. mars 2012 FÖSTUDAGUR26
popp@frettabladid.is
Útskriftarnemar í hár-
greiðslu frá Iðnskólanum í
Hafnarfirði ætla að halda
námskeið þar sem kenndar
verða einfaldar barna-
greiðslur gegn vægu verði.
TÍSKA „Ég á þrjár dætur, þriggja,
fjögurra og sjö ára, og langar
mikið að verða betri í að gera alls
konar greiðslur í þær,“ segir Þór-
dís Brynjólfsdóttir, sem hyggst
mæta á sérstakt hárgreiðslunám-
skeið fyrir foreldra í þeirri von
að fullkomna kunnáttu sína í að
greiða dætrum sínum.
Þórdís segist hafa heyrt af
svona námskeiði áður, en að þá
hafi verið einblínt á feður. Hún
segir sjálfa sig og dætur sínar
allar vera með þykkt hár sem erf-
itt sé að eiga við. „Ég sendi stelp-
urnar nú aldrei út úr húsi nema
þær séu snyrtilega greiddar, en
yfirleitt eru þær bara með tagl
eða spennur. Ég er voða klaufsk
við að flétta og vonast helst til að
læra að gera mismunandi fléttur,
það er nú svo mikið í tísku í dag
þetta fléttudæmi,“ segir Þórdís,
sem reiknar með að taka tvær
eldri stúlkurnar með sér á nám-
skeiðið.
Ólöf Sunna Magnúsdóttir, einn
útskriftarnemanna sem stend-
ur fyrir námskeiðinu, segir það
hugsað fyrir alla þá sem eiga
erfitt með að greiða börnunum
sínum. Mæður, feður og jafnvel
ömmur og afar eru velkomin.
„Sumir eiga í erfiðleikum með
það eitt að setja teygjur í hár
barnanna sinna meðan aðrir vilja
kannski læra einhverjar sætar
barnagreiðslur, en við ætlum að
kenna allan skalann,“ segir hún
og bætir við að dúkkuhausar verði
á staðnum fyrir þá sem hafa ekki
tök á að taka börn með sér eða eru
með börn með of stutt hár.
Námskeiðið er haldið sem fjár-
öflun til að standa undir kostn-
aði við útskriftina og fer fram á
Hárgreiðslustofu Hrafnhildar í
Árbænum þann 17. mars. Í boði
verða tvö námskeið sem áætlað er
að taki um eina og hálfa klukku-
stund hvort, og hefjast þau klukk-
an 10 og 12. Verði mikil aðsókn
verður svo bætt við námskeiði
klukkan 14. Verðið er 2.500 krón-
ur og hægt er að skrá sig á tölvu-
póstfanginu margretosk1@hotma-
il.com. tinnaros@frettabladid.is
LÆRIR AÐ FLÉTTA
HÁR DÆTRANNA
FLÉTTUR Í TÍSKU Þórdís segir sig og dætur sínar allar vera með mjög þykkt hár.
Hún vonast til að læra að gera mismunandi fléttur í þær og jafnvel sjálfa sig á
námskeiðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
549 KALÓRÍUR aukalega á dag innbyrða þeir sem ekki fá nægan nætursvefn samkvæmt nýjum rannsóknum við Mayo Clinic í Rochester. Fullorðnum er ráðlagt
að ná 6,5 klukkustunda svefni á hverri nóttu að meðaltali.
TÆKNI Japanski raftækjaris-
inn Sony hefur þróað snjall-
síma þar sem hægt er að
vafra um netið með því að
setja fingur yfir tenglana
án þess að snerta þá.
Fyrirtækið kallar
þessa nýjung „fljót-
andi snertingu“. Sím-
inn nefnist Xperia
Sola og verður sett-
ur á markað seinna
á þessu ári, sam-
kvæmt BBC. Mörg
önnur stórfyrirtæki
eru að þróa svipaða
snertilausa síma,
þar á meðal Apple og
Microsoft. Markmið-
ið er að notendur fari
á netið, svari símanum
og skoði myndir með því
að nota handahreyfingar í
stað snertingar, þar á meðal
að smella fingrum fyrir
framan skjáinn.
Snertilaus snjallsími
TÍSKA Stílistinn Kate Young trónir
á toppi lista yfir valdamestu stíl-
ista í Hollywood um þessar mund-
ir. Young tekur við titlinum af
Rachel Zoe.
Meðal viðskiptavina Young eru
leikkonurnar Michelle Williams og
Natalie Portman sem vekja ávallt
athygli fyrir kjólaval sitt á rauða
dreglinum. Í öðru sæti listans, sem
tímaritið Hollywood Reporter tók
saman, situr Leslie Fremar, sem
ber meðal annars ábyrgð á klæða-
vali Charlize Theron og Reese
Witherspoon. Stílistinn Petra Flan-
nery er í þriðja sæti, en sú starf-
ar mikið með ungum og upprenn-
andi stjörnum líkt og Emmu Stone,
Zoe Saldana, Milu Kunis og Megan
Fox.
L‘Wren Scott hreppti tólfta
sætið, en hún starfar bæði sem
stílisti og hönnuður og er að auki
trúlofuð rokkaranum Mick Jagger.
Scott starfar náið með forsetafrú
Bandaríkjanna, Michelle Obama.
Valdamesti
stílistinn
VINSÆL OG VEIT AF ÞVÍ Kate Young er
vinsæl í Hollywood. NORDICPHOTOS/GETTY
ORSÖK OFFITU BARNA Vísindamenn hafa fundið
tengsl á milli aðstæðna fóstra í móðurkviði og offitu
barna.
Ástæðan fyrir breytingum á fósturvísum við fæðingu
getur verið mataræði móðurinnar, mengun sem hún
hefur andað að sér eða streita. Í rannsókn vísinda-
manna við háskólann í Newcastle voru þessar breyt-
ingar tengdar við aukna líkamsþyngd níu ára barna.
Samkvæmt frétt BBC telja vísindamennirnir að enn eigi
eftir að sanna betur sambandið milli þessara breytinga
og offitu barna. Rannsóknin var birt í tímaritinu Plos
One.
www.facebook.com/drdenimiceland
LAUGAVEGI 7 & SMÁRALIND
lifsstill@frettabladid.is
26
HEILSA