Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 49
FÖSTUDAGUR 16. mars 2012 29
Upptökum hefur verið frestað á
kvikmyndaútgáfu sjónvarpsþátt-
anna 24. Tökur áttu að hefjast í
þessum mánuði en hefur verið
frestað til næsta árs. Ástæðan
er sú að aðalleikarinn Kiefer
Sutherland, sem fer með hlutverk
Jacks Bauer, er upptekinn við að
leika í nýjum sjónvarpsþáttum
sem kallast Touch. Deilur eru
einnig uppi um hversu miklum
peningum eigi að eyða í myndina,
auk þess sem handritið er ekki
tilbúið. Kvikmyndin á að vera
hluti af þríleik og á fyrsta myndin
að gerast sex mánuðum eftir að
síðustu þáttaröðinni lauk.
Tökum á 24-mynd frestað
ENGIN MYND Kiefer Sutherland leikur
ekki í 24-kvikmyndinni á þessu ári.
Alls keppa 48 hljómsveitir á Músík-
tilraunum 2012 sem standa yfir í
Austurbæ frá 23. til 31. mars. Mikill
áhugi var á keppninni í ár og sóttu
tæplega sextíu hljómsveitir um
þátttöku.
Undanúrslitakvöldin verða fjögur
og spila því tólf hljómsveitir á hverju
kvöldi. Sú nýbreytni verður í ár að
eitt gestaband spilar í dómarahléinu
á hverju kvöldi. Í ár verða það Sóley,
Þórir, Sin Fang og Svavar Knút-
ur. Hægt er að nálgast upplýsingar
um hljómsveitirnar sem taka þátt,
hlusta á lög með þeim og sjá niður-
röðun á hverju kvöldi á Musiktil-
raunir.is. Miða má nálgast á Midi.is.
48 keppa í Músíktilraunum
SAMARIS Hljómsveitin Samaris vann Músíktilraunir í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Leighton Meester segist ekki
hafa fæðst í fangelsi líkt og
margir trúa, heldur á sjúkrahúsi
líkt og flest önnur börn. „Móðir
mín sat inni á meðgöngunni en
fæddi mig samt á spítala, ég var
svo send í fóstur til ömmu minn-
ar þegar ég var þriggja mánaða,“
sagði Gossip Girl-leikkonan en
foreldrar hennar afplánuðu bæði
dóm fyrir fíkniefnainnflutning.
„Fjölskylda
mín á klikk-
aða sögu, en
hún var ekki
alveg ömur-
leg. Þegar ég lít
til baka í dag
man ég frekar
eftir góðu
hlutunum.
Æska mín
var flókin en
ég lék mér
oft á strönd-
inni og átti
líka góðar
stundir.“
Flókin æska
Leikkonan Gwyneth Paltrow
er nýtt andlit sænsku tísku-
keðjunnar Lindex og segist leik-
konan vera afskaplega hrifin af
vorlínu keðjunnar.
Paltrow er mikil áhugakona
um tísku og er meðal annars
náin vinkona hönnuðarins Stellu
McCartney. Paltrow lýsti yfir
aðdáun sinni á vorlínu Lindex
í nýlegu viðtali, en línan hefur
hlotið heitið Preppy Modern. „Ég
elska fötin frá þeim og ég mundi
aldrei vera í forsvari fyrir tísku-
keðju sem ég væri ekki hrifin af.
Fötin þeirra eru nákvæmlega það
sem ég mundi klæðast heima hjá
mér,“ sagði leikkonan.
Paltrow hrif-
in af Lindex
HRIFIN AF SÆNSKRI HÖNNUN Leikkonan
Gwyneth Paltrow er andlit vorlínu
sænsku tískukeðjunnar Lindex.
NORDICPHOTOS/GETTY
FLÓKIN ÆSKA
Leighton
Meester átti
erfiða en
góða æsku
að eigin
sögn.
NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS
AFSLÆTTI20%
KAUPHLAUP
ÚTILÍF SMÁRALIND
ALLAR NIKE VÖRUR Á