Fréttablaðið - 16.03.2012, Page 54
16. mars 2012 FÖSTUDAGUR34
FÖSTUDAGSLAGIÐ
Ný fótboltavefsíða, 433.is, fer í loft-
ið í dag. Þar verður ítarleg umfjöll-
un um fótbolta, bæði innlendan og
erlendan.
„Það hefur í rauninni bara verið
ein síða að sinna þessum stóra
markaði. Þeir sem koma að þessu
telja að það sé pláss fyrir tvo aðila,
þannig að það var ákveðið að kýla
á þetta,“ segir ritstjórinn Hörður
Snævar Jónsson.
Fjórir starfsmenn verða í fullu
starfi á síðunni og að sögn Harð-
ar verður töluverð áhersla lögð á
sjónvarp og umfjöllun um atvinnu-
menn erlendis. Þegar er búið að
heimsækja landsliðsmennina Gylfa
Sigurðsson, Aron Einar Gunnars-
son, Jóhann Berg Guðmundsson og
Kolbein Sigþórsson og spjalla við
þá um lífið og tilveruna.
Vefsíðan Fotbolti.net hefur verið
vinsælasta fótboltasíða landsins
undanfarin ár og Hörður Snævar
starfaði þar einmitt í sex ár. Hann
segir 433.is vera tilbúna í sam-
keppnina. „Þeir hafa verið stærst-
ir en hafa í rauninni aldrei feng-
ið alvöru samkeppni. Við teljum
okkur í stakk búna til að veita þeim
samkeppni á jafnréttisgrundvelli.“
Geir Þorsteinsson, formaður
Knattspyrnusambands Íslands,
opnar síðuna með formlegum hætti
á sportbarnum Úrillu górillunni í
kvöld. - fb
Nýr vefur í samkeppni við Fótbolta.net
KLÁR Í SAMKEPPNI Hörður
Snævar Jónsson ritstýrir
fótboltasíðunni 433.is sem fer
í loftið í dag. Hann er tilbúinn í
samkeppni við Fótbolta.net.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
„Ég á von á að við klárum samn-
inga á næstu dögum,“ segir leik-
stjórinn Ólafur Jóhannesson um
samning við kvikmyndarisann New
Regency um endurgerð á íslensku
spennumyndinni Borgríki.
Aðdragandinn hefur verið nokk-
uð langur en það var strax í haust,
fyrir frumsýningu Borgríkis á
Íslandi, sem Ólafur gerði samning
við umboðsskrifstofuna Principal
Entertainment. Þar komst hann í
samband við Hollywood-framleið-
endurna James Mangold og Cathy
Conrad, sem sáu til þess að New
Regency fékk veður af myndinni
en Mangold og Conrad eru með
myndir á borð við Walk the Line,
Girl Interrupted og Scream 1, 2, 3
og 4 á ferilskránni.
„Kathy Conrad og James Mani-
gold eru mjög stór nöfn í bransan-
um. Nú fer ákveðin undirbúnings-
vinna í gang þarna úti undir þeirra
stjórn. Það er verið að finna góða
handritshöfunda sem geta lagað
handritið að bandarískum veru-
leika en ekki er komið neitt á hreint
með leikstjóra eða hvaða borg verð-
ur sögusviðið,“ segir Ólafur en New
Regency er eitt af stærstu fram-
leiðslufyrirtækjum í Bandaríkj-
unum. „Þetta er mjög stórt og við
Kristín Andrea, sem framleiddi
Borgríki með mér, erum komin
með sterkan lögfræðing til að sjá
um okkur þarna úti því þetta er
mikill frumskógur.“
Bíómyndin Borgríki sló í gegn
hérlendis og er Ólafur þegar byrj-
aður að huga að framhaldsmynd.
Ólafur skrifar sjálfur handritið í
samvinnu við Hrafnkel Stefánsson
og er fyrsti hluti þess tilbúinn. „Við
erum byrjuð að undirbúa Borgríki
2 og í vikunni höfum við verið að
búa til stiklu fyrir fjárfesta,“ segir
Ólafur sem getur ekki gefið mikið
upp um söguþráðinn í framhalds-
myndinni en hann á von á því að
aðalleikararnir verði þeir sömu,
þau Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ing-
var E. Sigurðsson, Sigurður Sigur-
jónsson og Zlatko Krickic.
Þrátt fyrir að undirbúningur sé
hafinn á Ólafur von á að nokkur
bið verði í myndina sjálfa. „Ég tel
að það séu allavega eitt til tvö ár
þangað til við hefjum tökur.“
alfrun@frettabladid.is
ÓLAFUR JÓHANNESSON: BYRJAÐUR AÐ UNDIRBÚA BORGRÍKI 2
New Regency endurgerir
Borgríki í Hollywood
„Þessa dagana er það Midnight
City með M83. Ég kemst alltaf í
gírinn þegar ég hlusta á það.“
Valdimar Guðmundsson tónlistarmaður.
BORGRÍKI 2 Í BÍGERÐ Ólafur Jóhannesson er byrjaður að undirbúa Borgríki 2 en þessi mynd er úr kynningartökunum fyrir fram-
haldsmyndina en tökur á stiklu fyrir fjárfesta hafa staðið yfir í vikunni.
„Maður þarf að skapa
sér vinnu sjálfur og
maður verður ekki
ríkur.”
Katrín Gunnarsdóttir
segir frá starfi
dansarans.
Krakkasíðan er í
helgarblaði Fréttablaðsins
krakkar@frettabladid.is
Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur
„Þetta er besta stuttmyndahátíð-
in í Belgíu og sérhæfð fyrir stutt-
myndir,“ segir Helgi Jóhannsson
sem fylgir eftir stuttmynd sinni,
Þegar kanínur fljúga, á hátíðinni
Brussels Short Film Festival í
Brussel nú í byrjun maí.
Halldór Ragnar Halldórsson er
annar leikstjóri myndarinnar og
fer að sjálfsögðu með til Belgíu.
„Þessi mynd er barnið okkar,“
segir Helgi. Þetta er fyrsta alvöru
stuttmynd þeirra félaga, en þeir
eru nú þegar búnir að komast með
hana inn á nokkrar erlendar hátíð-
ir. Helgi segir að á milli þrjú og
fjögur þúsund myndir hafi verið
sendar inn fyrir hátíðina í Brussel,
en aðeins 100 komist inn. „Það er
frábært að komast á hátíð sem er
bara fyrir stuttmyndir, því þær
eiga það stundum til að týnast
innan um stóru myndirnar á kvik-
myndahátíðum,“ segir hann.
Strákarnir fá að upplifa ljúfa
lífið í Brussel, því aðstandendur
hátíðarinnar borga allan ferða-
kostnað, hótel og uppihald. „Þetta
er auðvitað Brussel, ætli ESB sé
ekki að borga þetta,“ segir Helgi
léttur. „Það skiptir nú mestu máli
að hafa komist inn á hátíðina, allt
annað er bara bónus“ bætir hann
við.
Til að kóróna ferðina hafa
aðstandendur svo lofað þeim
félögum einkabílstjóra sem sæki
þá á flugvöllinn og sjái um að
flytja þá á hátíðina. Helgi segist
aldrei hafa haft einkabílstjóra
áður, svo það verði skemmtileg
upplifun. Hann veit ekki með
gæði farartækisins, en segist að
sjálfsögðu heimta að fá eitthvað
almennilegt „Það er eins gott að
þetta sé limmósína,“ segir hann
og hlær.
- trs
Með einkabílstjóra í Brussel
ÞEGAR KANÍNUR FLJÚGA Helgi fylgir
stuttmynd sinni á hátíðina Brussels
Short Film Festival í byrjun maí.