Fréttablaðið - 22.03.2012, Page 4
22. mars 2012 FIMMTUDAGUR4
Rangt var farið með í vísu í aðsendri
grein í Fréttablaðinu í gær. Rétt er
vísan svona:
Heimsins brestur hjálparlið,
hugur skerst af ergi.
Þegar mest ég þurfti við,
þá voru flestir hvergi.
HALDIÐ TIL HAGA
SAMFÉLAGSMÁL „Við fengum dán-
arbú í hús og hugsuðum með
okkur að við þyrftum einhvern
veginn að koma því í pening,“
segir Ásgerður Jóna Flosadótt-
ir, formaður Fjölskylduhjálpar
Íslands.
Fjölskylduhjálpin hefur nú
komið á fót húsmunasölu fyrir
utan aðstöðu sína í Eskihlíð. Þar
verður opið alla miðvikudaga
en tekið á móti framlögum alla
virka daga frá klukkan eitt til
sex. Ágóðinn rennur í matarsjóð
samtakanna.
Í dánarbúinu sem barst Fjöl-
skylduhjálpinni í vikunni voru
meðal annars sófi, tvö eld-
húsborð og stólar, örbylgju-
ofn, símaborð, hægindastóll og
þvottavél. „Það er strax eitthvað
farið að seljast,“ sagði Ásgerður
Jóna um miðjan dag í gær. - sh
Nýbreytni hjá Fjölskylduhjálp:
Selja húsmuni
úr dánarbúi
NÓG AÐ GERA Sjónvörpin fást á aðeins
1.500 krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GENGIÐ 21.03.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
227,7596
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,39 125,99
199,10 200,06
166,18 167,10
22,347 22,477
21,839 21,967
18,676 18,786
1,4937 1,5025
193,14 194,30
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Fundir og ráðstefnur
Veislusalurinn er vel tækjum búinn og er því tilvalinn
fyrir hvers kyns ráðstefnur og fundi, stóra sem smáa.
Í salnum er meðal annars hágæða hljóðkerfi, skjávarpi,
flettitafla og púlt. Starfsfólk okkar veitir þér ráðgjöf
varðandi veitingar og annað sem huga þarf að.
GLÆSILEGUR VEISLUSALUR!
Náttúruparadís í hjarta borgarinnar
www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is sími 599 6660
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
18°
15°
15°
18°
17°
12°
12°
22°
15°
16°
21°
28°
17°
17°
14°
15°
Á MORGUN
5-10 m/s.
LAUGARDAGUR
10-15 m/s SV-til
annars hægari.
3
4
4
7
7
6
6
3
3
6
8
15
7
8
6
7
8
5
7
8
7
13
7
9
10
9
8
10
10
10
8 11
VOR Í LOFTI Það
hlýnar heldur er
líður á daginn en
útlit er fyrir milda
daga áfram. Helgin
lítur vel og má
búast við 8-14 stiga
hita víða. Bjart
og fallegt veður
á laugardag en
strekkingur suð-
vestantil og fer að
rigna á sunnudags-
nótt.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
LÖGREGLUMÁL Tveir tæplega tví-
tugir menn voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald í gær, grunað-
ir um að tengjast sprengingu í
Bankastræti og ráni í matvöru-
verslun í grenndinni að morgni
þriðjudags. Mennirnir voru hand-
teknir í fyrrakvöld.
Sprengjan sprakk á rúðu í
glugga skartgripaverslunarinn-
ar GÞ en náði ekki að gera gat og
því höfðu mennirnir ekkert upp
úr krafsinu. Ránið var framið um
klukkustund síðar. Þar var starfs-
manni hótað með sprautunál.
Þriðja mannsins var leitað
fram eftir degi í gær. Maðurinn,
sem er Íslendingur, gaf sig fram
við lögreglu um kvöldmatarleyt-
ið. Þjóðerni hinna tveggja liggur
ekki fyrir. - sh
Sprenging og rán í rannsókn:
Tveir úrskurð-
aðir í varðhald
LÖGREGLUMÁL Héraðsdómur
Reykjaness framlengdi í gær
gæsluvarðhald yfir Annþóri
Kristjáni Karlssyni og Berki
Birgissyni til 31. mars. Þeir eru
grunaðir um tvær hrottalegar lík-
amsárásir fyrir nokkrum mán-
uðum og skipulagða glæpastarf-
semi.
Annþór, sem er þekktur hand-
rukkari með nokkra dóma á bak-
inu, og Börkur, sem hlaut sjö og
hálfs árs fangelsidóm árið 2005
fyrir lífshættulega árás með
öxi, voru handteknir fyrir viku
í umfangsmikilli lögreglurassíu
á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir
aðrir hafa setið í gæsluvarðhaldi
vegna rannsóknar málsins en
þeim hefur nú öllum verið sleppt,
að því er fram kom í tilkynningu
frá lögreglunni í gær. Einn þeirra
er liðsmaður vélhjólasamtakanna
Hells Angels.
Í rassíunni í síðustu viku var
leitað á átta stöðum, meðal ann-
ars á sólbaðsstofum sem Annþór
og Börkur reka saman. Lögregla
hefur til skoðunar hvort fyrir-
tæki þeirra hafi verið notuð til að
þvætta ágóða af ólöglegri starf-
semi. - sh
Héraðsdómur fellst á kröfu lögreglunnar um framlengingu gæsluvarðhalds:
Annþór og Börkur áfram í haldi
HULINN Annþór var leiddur í og úr
héraðsdómi undir teppi fyrir viku.
FRAKKLAND, AP Franska lögreglan
sat í allan gærdag um hús manns
sem játað hefur að hafa skotið sjö
manns til bana í Suður-Frakk-
landi á rúmri viku. Maðurinn
hafði lofað að gefast upp og koma
friðsamlega út úr íbúðinni í gær-
kvöldi, en umsátrið varði enn
þegar Fréttablaðið fór í prentun.
Hundruðir lögreglumanna
umkringdu fimm hæða íbúðarhús
í borginni Toulouse í allan gær-
dag eftir misheppnaða tilraun
lögreglu til að brjóta sér leið inn í
íbúð mannsins í fyrrinótt.
Lögregla fékk upplýsingar um
að 24 ára gamall maður sem býr
á jarðhæð í húsinu, Mohamed
Merah, hafi staðið að baki þrem-
ur skotárásum sem kostað hafa
þrjú börn og kennara þeirra auk
þriggja hermanna lífið.
Til skotbardaga kom þegar lög-
reglumenn reyndu að brjóta sér
leið inn í húsið klukkan þrjú um
nóttina. Þrír lögreglumenn særð-
ust í áhlaupinu, og var í kjölfarið
ákveðið að hefja umsátur um húsið
og koma öðrum íbúum á brott.
Talið var að Merah væri
vopnaður hríðskotariffli, sjálf-
virkri handvélbyssu og nokkrum
skammbyssum. Þá óttaðist lög-
regla að hann hafi komist yfir
handsprengjur. Vélhjól sem Merah
notaði við árásirnar fannst í bíl-
skúr við húsið. Þá fundust fleiri
vopn í bíl hans.
„Við leggjum allt kapp á að
handtaka hann og draga hann
fyrir dóm fyrir ódæðið,“ sagði
Claude Gueant, innanríkisráð-
herra Frakklands. Hann sagði
algerlega ónauðsynlegt að taka
Merah á lífi.
Saksóknarinn Francois Molins
sagði í gær að Merah væri öfga-
sinnaður múslimi sem héldi því
fram að hann hafi fengið þjálfun
í vopnaburði í Pakistan og Afgan-
istan. Hann sagði að Merah hafi
fúslega gengist við því í samtali
við samningamenn lögreglunnar
að hafa myrt fólkið. Hann sagði
einnig að Merah héldi því fram að
hann tilheyrði Al-Kaída hryðju-
verkanetinu, og voðaverkin hafi
verið framin til að hefna fyrir
dráp á palestínskum börnum.
Merah „sýndi enga iðrun, og
virtist aðeins iðrast þess að hafa
ekki haft ráðrúm til að myrða
fleiri,“ sagði Molins.
Bróðir Merah og móðir voru
í haldi lögreglu í gær, en ekki er
gefið upp hvort talið sé að þau hafi
vitað af árásunum.
Molins sagði að Merah hafi
verið að leggja á ráðin um frek-
ari ódæði, og hafi meðal annars
ákveðið að myrða hermann í gær-
morgun.
Vélhjólið sem Merah notaði við
skotárásirnar varð til þess að
hann fannst. Hann stal vélhjólinu
snemma í mars, en einn af bræðr-
um hans vakti grunsemdir þegar
hann spurði vélhjólaverkstæði
hvernig hægt væri að breyta GPS-
tæki hjólsins. brjann@frettabladid.is
Langvinnt umsátur
um fjöldamorðingja
Franska lögreglan sat í allan gærdag um íbúð manns sem skotið hefur sjö til
bana í Suður-Frakklandi á rúmri viku. Maðurinn er öfgasinnaður múslimi sem
segist tilheyra Al-Kaída. Allt kapp var lagt á að ná fjöldamorðingjanum lifandi.
SVISS, AP Svisslendingar greiða
brátt þjóðaratkvæði um tak-
markanir á fjölda innflytjenda í
landinu. Tillagan gengur út á að
svissneskir ríkisborgarar fái for-
gang í störf og sett verði takmörk
á hversu margir útlendingar geti
starfað og búið í landinu. Þá geti
innflytjendur aðeins notið tak-
markaðrar félagsþjónustu.
Hópurinn sem stendur að tillög-
unni heitir Stop Mass Immigration
og hefur flokkur þjóðernissinna
auglýst tillöguna undanfarið.
- þeb
Þjóðaratkvæðagreiðsla í Sviss:
Kjósa um fjölda
innflytjenda
KÓPAVOGUR „Ég held að öllum
finnist óeðlilegt að það sé ráðinn
í þetta fyrrverandi bæjarfulltrúi.
Þau tengsl eru óþægileg þegar
hugsað er um vanhæfi og siða-
reglur,“ segir Hjálmar Hjálm-
arsson, bæjarfulltrúi Næst besta
flokksins í Kópavogi.
Hjálmar vill meðal annars
fá upplýsingar um hvaða vinnu
Sigurrós Þorgrímsdóttir, fyrr-
verandi bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokks, innti af hendi fyrir þá
einu milljón króna sem hún fékk
greiddar fyrir aðkomu sína að
ritun Sögu Kópavogs. Ármann
Kr. Ólafsson bæjarstjóri hefur
bent á að Sigurrós var ráðin til
starfans í tíð þess meirihluta
sem Hjálmar tilheyrði. Hjálmar
segist vonast til að málið skýrist
með því að umbeðnar upplýsing-
ar verði lagðar fram á bæjarráðs-
fundi í dag. - gar
Bæjarfulltrúi um söguritun:
Óráð að ráða
bæjarfulltrúa
UMSÁTUR Lögreglumenn skiptust á skotum við fjöldamorðingjann þegar þeir réðust
inn í íbúð hans í fyrrinótt, en svo tók við umsátur fram á kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP