Fréttablaðið - 22.03.2012, Blaðsíða 72
DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
ORATORS
- félag laganema við
Háskóla Ísland
Rýmingar
dagar!
afsláttur
af öllum vörum!
aðeins í
nokkra daga!
50%-70%
Úr tökum í háloftin
Tökum á íslensku kvikmyndinni XL
er lokið í bili en leikkonan María
Birta Bjarnadóttir fer með annað af
aðalhlutverkunum í henni. Myndin
er í leikstjórn Marteins Þórssonar
og fjallar um þingmann sem berst
við áfengissýki og er skikkaður í
meðferð af yfirmanni sínum. Ólafur
Darri Ólafsson fer með hlutverk
þingmannsins og leikur María Birta
ástkonu hans.
María Birta flaug til Bandaríkjanna í
gær og mun dvelja þar næsta mán-
uðinn. María Birta hyggst heimsækja
New York, Los Angeles
og Flórída þar sem
hún ætlar meðal
annars að fara
í fallhlífarstökk.
Ólíklegt er að
stúlkan sé loft-
hrædd því hún hefur
undanfarið ár verið
að læra til flug-
manns og því vön
háloftunum.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT
512 5100 | STOD2.IS
H
EF
ST
Í
KV
Ö
LD
K
L.
2
1.
00
1 Banaslys í íslenskum togara
2 Hitamet frá árinu 1948 gæti
fallið um helgina
3 Fjöldamorðinginn ætlar að
birta myndbönd af morðunum
4 Meintur fjöldamorðingi ætlar
að gefast upp seinna í dag
5 Fjöldamorðinginn umkringdur
af lögreglu í Toulouse
Gamall köttur dauður
Gæludýr eru oft á stundum ekki
síður hluti af fjölskyldum en mann-
fólkið, sér í lagi ef þau ná háum aldri.
Því er ekki að undra að margir urðu
til þess að votta Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur og fjölskyldu hennar
samúð sína í gær þegar upplýstist
að heimiliskötturinn Keli hefði gefið
upp öndina. Meðal þeirra sem sendu
kveðju á samskiptavefnum Facebook
voru Guðrún Ögmundsdóttir, sem
taldi sig hafa grunað í hvað stefndi
síðast þegar hún sá köttinn. „Keli
var flottur,“ sagði Steinunn Valdís
Óskarsdóttir og í sama streng
tók Sigðurður G. Tómasson, sem
kvað Kela hafa verið greindarlegan
og íbygginn á svipinn. „Innilegar
samúðarkveðjur,“ sagði líka Björgvin
Halldórsson. - sm/óká