Fréttablaðið - 22.03.2012, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 22.03.2012, Blaðsíða 6
22. mars 2012 FIMMTUDAGUR6 SAMKEPPNISMÁL Samkeppniseftir- litið hefur til skoðunar ábendingu um nýjan gistináttaskatt sem tók gildi í byrjun árs. Í ábendingunni er vakin athygli á ójafnræði sem felst í nýju lögunum. Björk Kristjánsdóttir, fram- kvæmdastjóri Reykjavík Back- packers, sendi ábendinguna um mánaðamótin þar sem hún sagði að greiddur sé hlutfallslega hærri skattur af svefnpokarýmum á far- fuglaheimilum heldur en af hótel- herbergjum. Samkvæmt lögunum þá þarf að greiða 100 krónur í gistinátta- skatt á hverja selda gistinátta- einingu. Eitt hótelherbergi er til dæmis flokkað sem gistinátta- eining. Hins vegar flokkast hvert selt rúm eða svefnpokapláss á farfuglaheimili einnig sem gisti- náttaeining og því eru greiddar 100 krónur af hverju seldu plássi. Björk segir að ef Reykjavík Backpackers rukki 1.990 krón- ur á mann fyrir gistingu í átta manna herbergi þá fái fyrirtækið 15.920 krónur fyrir nóttina sam- tals. Fyrirtækið greiði 800 krónur eða 5 prósent af þessum tekjum í gistináttaskatt fyrir þessa átta einstaklinga. Björk segir að ódýr- ustu tveggja manna herbergin á Reykjavík Hilton Nordica séu seld á 26.200 krónur fyrir nótt- ina. Ef átta manns leigja fjögur herbergi þá fær hótelið samtals 104.800 krónur. Af þeirri upphæð eru greiddar 400 krónur í gisti- náttaskatt eða um 0,38 prósent af tekjunum. Hér telst hvert hótel- herbergi sem gistináttaeining. „Kjarni málsins er að þessi staða getur komið upp og ég tel það vera augljóst dæmi um mis- rétti,“ segir Björk. Einstökum ábendingum er ekki svarað sérstaklega af Samkeppn- iseftirlitinu og ef fólk óskar eftir því að taka þátt í meðferð mála þá þarf að senda formlegt erindi eða kvörtun. Björk undirbýr nú form- lega kvörtun og ætlar að fylgja málinu eftir. Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar, segir samtökin hafa gagnrýnt þennan skatt og sagt að hann mismuni fyrirtækj- um mikið. „Skatturinn er mjög skringilega skilgreindur og menn eiga erfitt með að skilja þetta. Ef þessi skatt- ur á að vera til staðar þá væri mun heppilegra að hafa hann bara frekar á hvern haus,“ segir Erna Hauksdóttir. - gh Samkeppniseftirlitið skoðar gistináttaskatt Samkeppniseftirlitið skoðar ábendingu þar sem nýr gistináttaskattur er gagn- rýndur. Skatturinn er sagður fela í sér ójafnræði milli aðila í gistirekstri. Sam- tök ferðaþjónustunnar segja skattinn vera illa skilgreindan og óskiljanlegan. ERLENDIR FERÐAMENN Framkvæmdastjóri Reykjavík Backpackers segir að greiddur sé hlutfallslega hærri skattur af svefnpokarýmum en af hótelherbergjum. Lög um gistináttaskatt tóku gildi 1. janúar á þessu ári. Markmiðið með lögunum er að afla tekna til að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun fjölsóttra ferðamannastaða, friðlýstra svæða og þjóðgarða. Á vef ríkisskatt- stjóra er mismunandi hvernig gistirými eru skilgreind. Hótelherbergi teljast sem gistirými á meðan hvert svefnpláss sem er leigt út á farfuglaheimilum fellur í þann flokk. Í íbúðum og orlofshúsum telst hver íbúð sem gistirými en sama á ekki við um sumarhús í eigu verkalýðsfélaga. Þau þurfa ekki að vera með rekstrarleyfi eða að greiða virðisaukaskatt og eru því undanþegin gistináttaskatti. Á tjaldsvæðum er stæðið undir hvert tjald gistirýmið og sama á við um stæði húsbíla, tjaldvagna og fellihýsa. Skatturinn tók gildi í byrjun árs VEÐURFAR Spáð er ört hlýnandi veðri í dag og næstu daga. Veður- stofan spáir allt að 15 stiga hita um helgina, hlýjast fyrir norðan. „Einstaka hefur meira að segja verið að gæla við þá hugsun að gamla marshitametið frá 1948 gæti verið í hættu, en 27. mars það ár mældust 18,3°C á Sandi í Aðal- dal,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á vef sínum. Mikil hlýindi miðað við árstíma munu um skeið hafa verið við Bret- landseyjar án þess þó að hlýindin hafi náð að teygja anga sína hingað. „Við höfum þess í stað verið mestmegnis undir áhrifum frá miklum kuldapolli í háloftunum sem haldið hefur sig á kunnugleg- um slóðum við Grænland.“ Einar bendir á að hitaskilum sem marka framrás loftmassans í suðaustri sé spáð norður yfir landið seint í dag og í nótt. „Þá hlýnar hér og gerir eindregna leysingu með S- og SA- átt í nokkra daga hið skemmsta.“ Um leið bendir Einar á að hlýind- in verði að öllum líkindum skamm- góður vermir því ýmislegt bendi til þess að kuldinn úr vestri nái sér aftur á strik einhvern tímann upp úr miðri næstu viku. Milda loftið um og fram yfir helgi verði því aðeins nokkurra daga breyting í átt til vors. „Og þá ekki raunveru- leg vorkoma sem ég veit að margir óska sér,“ segir Einar. - óká Komandi hlýindi eru nokkurra daga umbreyting en ekki raunveruleg vorkoma: Hitamet kann að falla um helgina DANMÖRK Danska ríkisstjórnin leggur til að ríkustu sveitarfélög landsins leggi þeim fátækustu til 400 milljónir danskra króna. Frá því að breytingar voru gerðar á sveitarfélögum árið 2007 hafa 39 lítil sveitarfélög mótmælt viðbótarkostnaðinum sem lagðist á þau. Ríkisstjórnin reynir nú að koma til móts við kröfur þeirra. Borgarstjórar í því 31 sveitar- félagi sem þarf að inna af hendi greiðslur eru óánægðir og segir einn þeirra að um eignaupptöku sé að ræða. - ibs Draga á úr ójöfnuði: Rík sveitarfélög hjálpi fátækum Alveg mátulegur Heimilis GRJÓNAGRAUTUR H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA Telur þú að vorið sé nú endan- lega komið? JÁ 25,1% NEI 74,9% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ert þú sátt(ur) við að Íslending- ar hafi fjármagnað byggingu spítala í Malaví? Segðu þína skoðun á visir.is Á Vísi er hægt að horfa myndskreyttan upplest úr þessum sígildu ævintýrum. Hlustaðu á Dísu ljósálf og Alfinn álfakóng á Vísi á ur Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára. DÓMSTÓLAR Tuttugu og sjö ára maður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun sem átti sér stað í samkvæmi í heimahúsi í júnílok í fyrra. Dómurinn yfir manninum, Jóhanni Inga Gunnarssyni, var kveðinn upp á þriðjudag í Héraðs- dómi Norðurlands eystra. Að auki er manninum gert að greiða konunni með vöxtum 800 þúsund krónur í miskabætur og tæpar 977 þúsund krónur í sakarkostnað. Samkvæmt dómnum þekktust maðurinn og konan, en vinskapur hafði tekist með þeim þegar þau voru saman í námi. Málsatvik voru þannig að þau fóru með öðru fólk heim til mannsins eftir skemmtanahald. Þar var meðal annars farið í heitan pott. Fram kemur í dómnum að eftir ferðina í pott- inn hafi átt sér stað kynferðisleg samskipti milli mannsins og konunnar með vitund beggja. „Jafn- framt liggur fyrir að þeim lauk fljótt og að hennar frumkvæði,“ segir í dómnum. Bæði voru þá í öðru sambandi. Fyrir liggur að konan læsti að sér í herbergi í hús- inu, en opnaði það síðar svefndrukkin þegar mað- urinn hafði lengi barið dyra. „Hún kveðst ekki hafa vaknað aftur fyrr en höfuð hennar hafi skellst í vegginn, en muna brotakennt eftir því að ákærði var að snúa henni til og hafa mök við hana,“ segir í dómnum. Þegar konan vaknaði til fulls hrakti hún manninn af sér, flúði úr húsinu og kallaði til lög- reglu. - óká Maður nýtti sér svefn- og ölvunarástand konu eftir samkvæmi í heimahúsi: Nauðgari fékk tveggja ára dóm HÉRAÐSDÓMUR Á AKUREYRI Ekki þótti ástæða til að skilorðs- binda dóm yfir manni sem á þriðjudag var dæmdur fyrir nauðgun. KJÖRKASSINN Einstaka hefur meira að segja verið að gæla við þá hugsun að gamla marshitametið frá 1948 gæti verið í hættu. EINAR SVEINBJÖRNSSON VEÐURFRÆÐINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.