Fréttablaðið - 22.03.2012, Blaðsíða 16
22. mars 2012 FIMMTUDAGUR16
Umsjón: nánar á visir.is
Peningastefnunefnd Seðlabank-
ans kynnti í gær þá ákvörðun sína
að hækka vexti bankans um 0,25
prósentustig. Eftir hækkunina eru
vextir af sjö daga lánum bankans
gegn veði, svokallaðir stýrivextir,
5,0 prósent.
Ákvörðun peningastefnunefndar-
innar kom fæstum á óvart en grein-
ingardeildir stóru viðskiptabank-
anna þriggja höfðu allir spáð 25
punkta hækkun. Þá hafði ákvörðun-
in að því er virðist ekki mikil áhrif
á skuldabréfamarkað.
Í yfirlýsingu peningastefnunefnd-
arinnar segir að verðbólguhorfur til
skamms tíma hafi versnað nokkuð
frá því að síðasta hagspá bankans
var gefin út í febrúar. Þá hafi gengi
krónunnar veikst þótt efnahagsum-
svif séu í megindráttum svipuð og
gert var ráð fyrir í spánni.
„Litið lengra fram á veginn er
hætta á að verðbólga verði lengur
fyrir ofan verðbólgumarkmið en
spáð var, styrkist krónan ekki á
komandi mánuðum,“ segir í yfir-
lýsingunni og enn fremur: „Batni
verðbólguhorfur ekki er líklegt
að hækka þurfi nafnvexti frekar á
næstunni til þess að taumhald pen-
ingastefnunnar, sem er enn tiltölu-
lega laust, verði hæfilegt.“
Verðbólga mældist 6,3% í febrú-
ar og hefur farið hækkandi þótt hún
hafi að vísu lækkað frá mælingu
upp á 6,5% í janúar. Verðbólgan var
síðast undir 2,5% verðbólgumark-
miði Seðlabankans í mars í fyrra.
Greiningardeildir Arion banka og
Íslandsbanka fjölluðu um ákvörð-
unina í fréttabréfum sínum í gær
og eru sammála um að frekari
vaxtahækkanir séu í kortunum. Í
Markaðspunktum greiningar Arion
banka segir að flest hnígi í þá átt að
frekari vaxtahækkanir séu fram
undan samhliða auknum umsvif-
um í hagkerfinu og þeirri verð-
bólgu sem fram undan er. Þá telur
bankinn að gengi krónunnar verði
lágt næstu árin sem auki líkurnar á
hærri vöxtum.
Þá var því spáð í Morgunkorni
greiningar Íslandsbanka að Seðla-
bankinn muni hækka vexti aftur um
0,25 prósentustig við næstu vaxta-
ákvörðun í maí og svo aftur síðar á
árinu. Stýrivextir verði því komnir
í 5,5% í árslok.
Aðilar vinnumarkaðarins tóku
illa í ákvörðun peningastefnunefnd-
arinnar. Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ, sagði ákvörðunina ekki koma á
óvart í ljósi fyrri yfirlýsingar seðla-
bankastjóra en kallaði hana samt
sem áður dapurlega. Þá sagði hann
að hærri vextir myndu leiða til mun
veikari atvinnuuppbyggingar en
vonast hefði verið eftir. Hannes G.
Sigurðsson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins, tók
í sama streng, sagði vaxtahækkun
hafa neikvæð áhrif á atvinnulífið og
fjárfestingar. magnusl@frettabladid.is
Batni verðbólgu-
horfur ekki er líklegt
að hækka þurfi nafnvexti
frekar á næstunni til þess að
taumhald peningastefnunnar,
sem er enn tiltölulega laust,
verði hæfilegt.
ÚR YFIRLÝSINGU PENINGASTEFNU-
NEFNDAR SEÐLABANKANS
HÚSGAGNAHÖLLIN Bíldshöfða 20 Reykjavík sími 585 7200
OPIÐ Virka daga 10-18 laugardaga 12-18 sunnudaga lokað
0% VEXTIR - Húsgagnahöllin býður nú upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða
NÚNA
20%
AFSLÁTTUR
GABRIELLA sófaborð
L:130 H:70 B:40 cm.
GABRIELLA hornborð
Þvermál: 60cm H:48,5 cm.
23.99039.980
FLOTT HÚSGÖGN
FYRIR HEIMILIÐ ÞITT
FULLT VERÐ: 149.990 FULLT VERÐ: 199.990
SANTANDER sófasett, svart leður.
2 sæta sófi B:176 D:91 H:86 cm.
3 sæta B:213 D:91 H:86 cm.
2 SÆTA
159.990119.990
3 SÆTA
STÍLHREIN
SÓFABORÐ
Seðlabankinn hækkar vexti –
útlit fyrir frekari hækkanir
Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði í gær vexti bankans um 0,25 prósentustig. Versnandi verðbólguhorfur og lágt gengi krón-
unnar eru helstu ástæður hækkunarinnar sem var í takt við væntingar. Aðilar vinnumarkaðarins eru óánægðir með hækkunina.
SEÐLABANKANUM Í GÆR Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Már Guð-
mundsson seðlabankastjóri kynntu ákvörðun peningastefnunefndar í gær. Þeir eiga
báðir sæti í nefndinni auk Þórarins G. Péturssonar, aðalhagfræðings bankans, Gylfa
Zoëga prófessors og Katrínar Ólafsdóttur lektors. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hátekjuskattur í Bretlandi verð-
ur lækkaður úr 50 prósentum í
45 prósentum fyrir apríl á næsta
ári. George Osborne, fjármála-
ráðherra Bretlands, greindi meðal
annars frá þessu þegar hann
kynnti fjárlagafrumvarpið í gær.
Osborne sagði að hækkun
hátekjuskatts hefði ekki skilað
eins miklum fjármunum og von-
ast hefði verið til. Nú hefur sjö
prósenta skattur verið settur á
sölu húsa sem kosta meira en tvær
milljónir punda, eða 400 milljónir
íslenskra króna.
Skattleysismörk verða jafnframt
hækkuð í 9.205 pund, eða rúmlega
1,8 milljónir króna. - þeb
Fjárlagafrumvarp lagt fram:
Bretar lækka hátekjuskattinn
Enn eru fá ummerki um eignaverðs-
bólu á Íslandi þrátt fyrir að gjald-
eyrishöftin skapi skilyrði mjög lágra
vaxta og fárra fjárfestingarkosta.
Þetta er mat Más Guðmundsson-
ar seðlabankastjóra, sem segir þó
að Seðlabankinn verði að fylgjast
vel með eignaverði enda geti gjald-
eyrishöftin ýtt undir bólumyndun.
Ingólfur Bender, forstöðumaður
greiningar Íslandsbanka, spurði Má
hvort hann hefði áhyggjur af því að
höftin myndu skapa eignaverðsbólu
á vaxtaákvörðunarfundi Seðlabank-
ans í gær.
„Það er auðvitað alveg hugsan-
legt [að eignaverðsbóla myndist]
því við erum með fjármagn lokað
inni í landinu sem leitar að ein-
hverri útrás. Hvert ætti þá viðbragð
okkar að vera? Jú, þá ættu vextirnir
að vera hærri,“ sagði Már og bætti
við: „En við sjáum hins vegar ekki
mjög mikil merki um þetta enn þá.
Við höfum til dæmis verið að skoða
húsnæðismarkaðinn og okkur virð-
ist að hækkanir á húsnæðisverði séu
nú bara í línu við þá hækkun sem
hefur orðið á ráðstöfunartekjum.
Það er því erfitt að sjá mikil bólu-
einkenni enn þá.“
Greining Íslandsbanka birti
nýverið spá um þróun húsnæðis-
verðs til næstu tveggja ára. Var þar
spáð samanlagt 16% hækkun á hús-
næðisverði á næstu tveimur árum
eða um 8,5% hækkun að raunvirði.
Ingólfur Bender segir að höftin
séu áhrifavaldur í spánni en segir
það þó ekki þýða að greiningardeild-
in sé að spá bólu.
„Það er auðvitað spurning hvað
maður kallar bólu og hvað ekki. En
höftin eru klárlega áhrifavaldur í
þessu. Þau hafa áhrif bæði með því
að skapa skilyrði fyrir mjög lága
vexti og skapa líka skilyrði mjög
fárra fjárfestingarkosta. Hvort
tveggja ýtir undir eftirspurn eftir
húsnæði,“ segir Ingólfur og heldur
áfram: „Hvort að það sé innistæða
fyrir þessum hækkunum fer svo
eftir því hvernig okkur gengur að
byggja upp trúverðugleika hagkerf-
isins og afnema höftin.“
Þá segir Ingólfur að erfitt verði
að svara þeirri spurningu fyrr en
eftir á þegar verði hægt að sjá hvort
krónan gefi mjög mikið eftir í kjöl-
far afléttingar hafta. Lækki krón-
an mikið muni lækkun á húsnæðis-
verði og eignabruni fylgja í kjölfarið
en það fari eftir því hvernig spilað
verði úr stöðunni. - mþl
Hætta á að höftin valdi bólu á húsnæðismarkaði:
Enn þá fá ummerki
um eignaverðsbólu
VAR STAÐA OMXI6ISK, íslensku hlutabréfavísitölunnar, við lokun
markaða í gær. Vísitalan hefur hækkað um 12,3% frá áramótum.1021,85
MÁR
GUÐMUNDSSON
INGÓLFUR
BENDER