Fréttablaðið - 22.03.2012, Blaðsíða 54
22. mars 2012 FIMMTUDAGUR38
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is.
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 15. - 21. mars 2012
LAGALISTINN
Vikuna 15. - 21. mars 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 Valdimar Guðmunds. / Helgi Júl. ..Stöndum saman
2 Fun / Janelle Monae .............................. We are Young
3 Magni ..................................................................... Hugarró
4 Blár ópall...........................................................Stattu upp
5 Retro Stefson ..........................................................Qween
6 Of Monsters and Men ...................................Lakehouse
7 Kelly Clarkson ......................................................Stronger
8 Dikta ........................................................................... Cycles
9 Gabríel, Valdimar og Opee ........................Stjörnuhröp
10 Bruce Springsteen ............We Take care Of Our Own
Sæti Flytjandi Plata
1 Mugison ....................................................................Haglél
2 Of Monsters and Men ............ My Head is an Animal
3 Adele .................................................................................. 21
4 Ýmsir ...................... Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012
5 Leonard Cohen .................................................Old Ideas
6 Bruce Springsteen ....................................Wrecking Ball
7 Helgi Björnsson ........Íslenskar Dægurperlur í Hörpu
8 Valgeir Guðjónsson .....................Spilaðu lag fyrir mig
9 Sigurður Guðm. og Sigríður Thorl. ......... Ásamt Sinfó
10 Whitney Houston .......................... Ultimate Collection
Madonna er mætt til leiks
enn á ný með sína tólftu
hljóðversplötu. Hún er sú
fyrsta á ferli hennar sem
kemur ekki út hjá Warner.
Tólfta hljóðversplata Madonnu
heitir MDNA og er hennar fyrsta
í fjögur ár, eða síðan Hard Candy
kom út. Sú fór beint á toppinn í 37
löndum og seldist í fjórum milljón-
um eintaka.
Útgáfan er samstarfsverk-
efni þriggja fyrirtækja, eða Boy
Toy sem er í eigu Madonnu, Live
Nation Entertainment og Inter-
scope Records. Þar með verður
þetta fyrsta platan á löngum ferli
Madonnu sem kemur ekki út hjá
Warner Bros. Records sem hún
samdi við árið 1982.
Fyrsta smáskífulagið, Give Me
All Your Luvin’, kom út í byrjun
febrúar þar sem gestasöngkonur
voru Nicki Minaj og M.I.A. Þær
sungu einmitt með Madonnu í hálf-
leik Ofurskálar bandaríska fótbolt-
ans. Lagið fór beint í efsta sæti
danslista Billboard og er 41. lag
Madonnu sem nær þeim árangri.
Annað smáskífulagið sem er
nýkomið út heitir Girl Gone Wild.
Lagið Masterpiece er einnig á plöt-
unni. Það fékk Golden Globe-verð-
launin fyrr á árinu en það hljómar
í kvikmyndinni W.E. sem Madonna
leikstýrði.
Söngkonan, sem verður 54 ára í
ágúst, tók MDNA upp í New York
og Los Angeles í samstarfi við
William Orbit sem vann með henni
við hina vinsælu Ray of Light sem
kom út 1998 og hefur selst í um
tuttugu milljónum eintaka. Tveir
aðrir upptökustjórar sem eru einn-
ig þekktir fyrir elektrónískt popp,
Frakkinn Martin Solveig og Ítalinn
Marco „Benny“ Benassi, eiga einn-
ig stóran þátt í plötunni.
MDNA, sem kemur út eftir
helgi, hefur fengið góða dóma.
Rolling Stone gefur henni þrjár og
hálfa stjörnu og heldur því fram
að Madonna geri upp skilnað sinn
við leikstjórann Guy Ritchie á plöt-
unni. The Independent gefur plöt-
unni fjórar stjörnur og segir að
Madonna sé enn drottning popps-
ins, Lady Gaga eigi ekkert í hana.
Blaðamaður Billboard fullyrðir
það sama í umfjöllun sinni.
Eins og svo oft áður ætlar Mad-
onna í risavaxna tónleikaferð um
heiminn til að fylgja plötunni eftir.
Hún hefst í Ísrael 29. maí og lýkur
20. nóvember í borginni Miami.
freyr@frettabladid.is
Poppdrottning snýr aftur
POPPDROTTNING Madonna gefur eftir helgi út sína tólftu hljóðversplötu, MDNA. NORDICPHOTOS/GETTY
Don Van Vliet, sem kallaði sig Captain Beefheart, er einn af merki-
legustu tónlistarmönnum rokksögunnar. Hann féll frá í desember
2010, en þessa dagana er samt að koma út með honum áður óútgefin
plata, Bat Chain Puller sem var tekin upp árið 1976. Ekkert varð af
útgáfunni þá vegna ósættis
á milli Beefheart og Frank
Zappa, en plötufyrirtækið
hans Discreet ætlaði að gefa
hana út.
Þó að Bat Chain Puller
sé fyrst að koma út núna,
36 árum á eftir áætlun, þá
þekkja harðir Beefheart-
aðdáendur hana samt vel.
Upphaflegu upptökurnar
komust í hendurnar á sjó-
ræningjaútgáfu sem gaf
þær út, í litlum gæðum
að vísu, og margar aðrar
fylgdu í kjölfarið. Auk þess
tók Beefheart nokkur laganna á plötunni upp aftur tveimur árum
seinna og gaf út undir nafninu Shiny Beast (Bat Chain Puller). Eftir
fráfall Franks Zappa (sem hélt útgáfuréttinum) árið 1993 vildu afkom-
endur hans gefa plötuna út, en þá var Beefheart alfarið á móti því. Það
er þess vegna ekki fyrr en núna þegar þeir eru báðir farnir yfir móð-
una miklu sem hægt er að koma þessari fínu plötu út.
Bat Chain Puller er mjög flott Beefheart-plata, full af þessum sér-
einkennum sem gerðu karlinn svona skemmtilegan. Tónlistin er sam-
bland af blús, djassi og rokki með skrýtnum töktum og hljóðum, hug-
myndaríkum textum og einstökum söng. Nýja útgáfan hljómar mjög
vel og greinilegt að þeir sem sáu um hljóðvinnslu hjá VAULTernative
Records, útgáfufyrirtæki Zappa-fjölskyldunnar, hafa sett metnað í
verkið. Þrjátíu og sex árum seinna hljómar Beefheart ennþá ferskur.
Betra seint en aldrei!
Betra seint en aldrei
NÝTT GAMALT FRÁ BEEFHEART Bat Chain Puller
var tekin upp 1976, gefin út 2012.
> Í SPILARANUM
AMFJ - Bæn
Paul Weller - Sonik Kicks
Schoolboy Q - Habits & Contradictions
Odd Future - The Odd Future Tape, Vol 2
AMFJ PAUL WELLER
Teiknimynd Bítlanna, Yellow Submarine, frá
árinu 1968 hefur verið endurunnin stafrænt og
verður gefin út á mynddiski 28. maí. Plata með
tónlist myndarinnar verður endurútgefin
sama dag.
John Lasseter, yfirmaður hjá Pixar og
Disney, skrifar í sextán blaðsíðna bækling
sem fylgir með útgáfunni. „Sem aðdá-
andi teiknimynda og sem kvikmynda-
gerðarmaður, tek ég ofan fyrir þeim sem
bjuggu til Yellow Submarine. Byltingar-
kennt starf þeirra ruddi brautina fyrir fantas-
íuheim teiknimyndanna sem við höfum svo
gaman af í dag,“ skrifaði hann.
Meðal laga í myndinni eru titillagið Yellow
Submarine, Eleanor Rigby, When I´m Sixty
Four, Lucy in the Sky with Diamonds og All You
Need Is Love.
> PLATA VIKUNNAR
★★★★ ★
Myrra Rós - Kveldúlfur
„Fyrsta plata Myrru Rósar er gæða-
gripur.“ - TJ
Stafrænir Bítlar
milljónir
platna hefur
Madonna
selt um allan heim. Hún er
söluhæsti kvenkyns tónlistar-
maður allra tíma.
300