Fréttablaðið - 22.03.2012, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 22.03.2012, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 22. mars 2012 11 SVEITARSTJÓRNIR Áskorun með undirskriftum 48 íbúa Blönduósbæjar vegna starfsloka æskulýðsfulltrúa var tekin fyrir í bæjarráði á þriðjudag. „Mér finnst þetta náttúrlega alveg frá- bært,“ segir Rannveig Rós Bjarnadóttir á Hólabaki, sem verið hefur æskulýðsfulltrúi frá árinu 2006 en sagði starfinu upp í fyrra- haust vegna bágra launakjara og lét af störf- um um síðustu mánaðamót. Starfsvettvangur hennar var félagsmiðstöðin Skjólið. „Það er eindregin ósk þeirra sem skrifa undir að bæjaryfirvöld sjái sóma sinn í því að gera allt hvað þau geta til að halda í Rann- veigu. Viljum við með þessum undirskrifta- lista skora á stjórn Blönduósbæjar að taka þetta mál fyrir á stjórnar- og/eða nefndar- fundum bæjarins og reyna að ná sáttum við Rannveigu í málinu,“ segir í áskoruninni. Bæjarráðið sagði að því hefði verið ókunn- ugt um að æskulýðsfulltrúinn væri ósáttur við starfskjörin. „Æskulýðsfulltrúi hefur unnið farsælt starf og leitt er ef starfslok hennar beri að með ósætti,“ bókaði bæjar- ráðið. „Ég hef þá líklega unnið mína vinnu, ég vona það að minnsta kosti,“ segir Rannveig um undirskriftasöfnunina sem hún kveðst ekki hafa vitað af. Spurð hvort hún geti hugsað sér að snúa aftur ef kjörin verði betri svarar Rannveig einfaldlega: „Já, mig langar það.“ - gar Íbúar á Blönduósi ósáttir við að laun tómstundafulltrúa hafi ekki verið hækkuð og safna undirskriftum: Vilja endurheimta æskulýðsfulltrúann BLÖNDUÓS Vinsæll æskulýðsfulltrúi er hættur vegna lágra launa en segir sig langa að snúa aftur og margir skora á bæjaryfirvðld að greiða fyrir því. DANMÖRK Grímuklæddur ræningi komst undan á hjóli eftir að hafa rænt kjörbúð í Vissenberg á Fjóni í fyrrakvöld. Hann bar þung- ar klyfjar á flóttanum enda var meginþorri ránsfengsins, 30 þús- und danskra króna, í smámynt. Ræninginn ógnaði ungri starfs- stúlku og þvingaði hana til að opna peningahirslu þar sem fjár- munirnir voru. Eftir það batt hann stúlkuna og hélt á brott. Myndir náðust af ræningjanum og stúlkan gat auk þess lýst vexti mannsins og klæðnaði. Lögreglan á Fjóni rannsakar málið. - þj Búðarræningi á Fjóni: Komst undan með klinkhaug MYNT Ræninginn slapp með um 30.000 danskar krónur, nær allt var í smámynt. SVÍÞJÓÐ Stjórnvöld í Svíþjóð úti- loka ekki hertar aðgerðir vegna svindls háskólanema. Í fyrra var 548 háskólanemum vísað tíma- bundið úr skóla vegna svindls, samkvæmt könnun fréttastofunn- ar TT. Hægt er að vísa háskóla- nema úr skóla í sex mánuði í mesta lagi. Hugmyndir eru uppi um að lengja þetta tímabil eða reka þá sem svindla úr háskóla fyrir fullt og allt. Tímabundinn brottrekst- ur jókst um 60 prósent á milli áranna 2009 og 2010. Fjöldinn sem var vísað frá námi í fyrra var svipaður og 2010 eða sjö fleiri. - ibs 548 nemar höfðu rangt við: Tekið á svindli FÉLAGSMÁL Orlofssjóður Kenn- arasambands Íslands (KÍ) hefur opnað nýjan bókunarvef og vef- verslun fyrir orlofshús sín, hótel- og flugmiða auk veiðikorts. Orlofssjóðurinn er einn sá stærsti á landinu og leigir út á sumrin um 150 orlofshús og -íbúðir, en félagsmenn KÍ eru um 11.500 talsins. Sjóðurinn samdi í lok síðasta árs við hugbúnaðar- og tæknifyrir- tækið AP Media um að taka upp orlofshúsakerfið Frímann, sem AP Media hefur þróað frá 2005. - óká Orlofssjóður KÍ notar Frímann: 150 hús og íbúð- ir handa 11.500 ORLOFSHÚS Nítján starfsmanna- og stéttarfélög með um 46.000 félags- menn nota Frímann. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Romney sigraði í Illinois Mitt Romney sigraði í forkosningum Repúblikanaflokksins í Illinois á þriðjudag. Romney hlaut 47 prósent atkvæða og Rick Santorum 35. Ron Paul fékk níu prósent og Newt Gingrich átta. Næstu forkosningar verða í Louisiana á laugardag. BANDARÍKIN skattur.is Veflyklar Veflyklar hafa verið sendir til nýrra fram teljenda. Hafi veflykill glatast má sækja um nýjan á skattur.is. Einnig er hægt að opna framtalið og skila með rafrænum skilríkjum. Leiðbeiningar Leiðbeiningar er að finna á skattur.is. Auðvelt er að kalla fram skýringar við einstaka kafla eða reiti í vefframtali. Prentaðar leiðbeiningar má fá á skattstofum. Aðstoð í síma 442-1414 Í mars verður veitt aðstoð í síma 442-1414 alla virka daga frá kl. 9:30 til 15:30. Dagana 22., 26. og 27. mars verður þjónustan í boði til kl. 19:00. Í dag er síðasti skiladagur skattframtala Það er einfalt að telja fram Falklandseyjar skulu varðar Um 61 prósent Breta vilja að breski herinn verji Falklandseyjar hvað sem það kostar. Þetta kemur fram í nýrri könnun. Argentínumenn hafa lengi gert tilkall til eyjanna og hafa deilur þeirra og Breta magnast á síðustu mánuðum. BRETLAND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.