Fréttablaðið - 22.03.2012, Blaðsíða 58
22. mars 2012 FIMMTUDAGUR42
popp@frettabladid.is
200
Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur
Jonathan Davis, söngvari rokk-
sveitarinnar Korn, fékk stutta
leiðsögn í því hvernig á að
aftengja sprengju þegar hann
hitti bandaríska hermenn í
Þýskalandi.
Bandaríski rokkarinn gaf
eiginhandaráritanir, sat fyrir á
myndum og spjallaði við her-
mennina á Ramstein-herstöðinni
í Rheinland-Pfalz. Þeir komu
Davis í opna skjöldu með því að
klæða hann í sprengjuheldan
búning og kenna honum að nota
sprengjuvélmenni. Korn lauk
nýverið tónleikaferð sinni til
kynningar á plötunni The Path of
Totality.
Aftengdi
sprengju
Grínhópurinn Mið-Ísland forsýndi fyrsta þáttinn í nýrri gamanþáttaröð sinni í Bíó Para-
dís á miðvikudag. Fjöldi fólks mætti á svæðið og tók vel í grínið. Fyrsti þátturinn fer
í loftið á Stöð 2 í kvöld. Ljósmyndari Fréttablaðsins mætti á forsýninguna og fangaði
stemninguna.
Mið-Ísland hressir og kætir
MEÐ STUÐ Í EYRUM Steinunn og Jóhann Alfreð, Mið-Íslandsmeðlimur, voru hress að vanda. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
STUÐ STUÐ STUÐ Mið-Íslendingurinn Ari Eldjárn ásamt Jóhanni Ævari Grímssyni og
Árna Filippussyni. Góðir.
TF-STUÐ Ingunn Unnsteinsdóttir og Ester Rós Björnsdóttir létu
sig ekki vanta.
MEIRA STUÐ Gagga, Drauma og Þorsteinn voru gríðarlega hress.
STANSLAUST STUÐ Kvikmyndagerðarkonan Vera Sölvadóttir og
leikarinn Damon Younger misstu ekki af fjörinu.
STUÐ AÐ EILÍFU María Hjálmtýsdóttir og Hugleikur Dagsson fóru um víðan völl.
HITTI HERMENN Jonathan Davis lærði
að aftengja sprengju hjá bandarískum
hermönnum.
Leikkonan Kathy Bates hefur í fyrsta
sinn greint frá því opinberlega hvers
vegna hún þagði í átta ár yfir baráttu
sinni við krabbamein, sem lauk með
sigri hennar.
Bates segist hafa fengið ráðlegg-
ingar um að greina ekki frá veik-
indunum. „Ég var búin að skrifa
undir samning um að leika í
kvikmynd á þessum tíma,
Little Black Book á móti
Brittany Murphy sem ég
sakna mjög mikið,“ sagði
hinn 63 ára Óskarsverð-
launahafi. „Læknarnir
mínir þurftu að fá sam-
þykki frá tryggingunum
og þess vegna sagði ég ekki neitt.
Ég þurfti strax að fara að vinna.“
Bates, sem leikur í sjónvarpsþáttunum
Harry´s Law, fór í gegnum krabbameins-
meðferðina án utanaðkomandi hjálpar.
„Mér fannst ég þurfa að gera þetta ein.
Enginn veit í raun hvað þú ert að ganga
í gegnum nema aðrir krabbameins-
sjúklingar, þrátt fyrir að fjölskyldan
sé alltaf til staðar.“ Hún bætti við:
„Ef ég þarf að fara í gegnum þetta
aftur þá mun ég tjá mig meira
opinskátt um veikindin.“
KATHY BATES Leikkonan þagði í átta ár
yfir krabbameini sínu.
Þagði í átta ár yfir krabbameini
DOLLARAR Á MÁNUÐI er það sem Jennifer Aniston
segist eyða í snyrtimeðferðir. „Blöðin eiga það til að ýkja og
upphæðirnar sem þau nefna eru fjarri lagi,“ sagði leikkonan.