Fréttablaðið - 22.03.2012, Blaðsíða 10
22. mars 2012 FIMMTUDAGUR10
SAMFÉLAGSMÁL Mun fleiri Íslend-
ingar spila reglulega peningaspil
en áður. Samkvæmt niðurstöð-
um nýrrar rannsóknar á vegum
Háskóla Íslands og innanríkis-
ráðuneytisins eru 0,8 prósent
þjóðarinnar spilafíklar og um 1,7
prósent glíma við alvarlegan spila-
vanda.
Hlutfallið er mun hærra hjá
körlum en konum, 4,3 prósent á
móti 0,7 prósent. Gera má ráð
fyrir því að fjögur til sjö þús-
und Íslendingar eigi í alvarlegum
vanda með peningaspil.
Niðurstöðurnar sýndu meðal
annars að drengir eru margfalt
líklegri en stúlkur til að greinast
með spilavanda og að aðrir mögu-
legir áhættuþættir spilavanda
unglinga eru meðal annars athygl-
isbrestur með ofvirkni, neysla
áfengis og annarra vímuefna og
regluleg þátttaka í peningaspil-
um á netinu.
Um 75 prósent þjóðarinnar
spiluðu einhvers konar peninga-
spil síðustu tólf mánuði áður en
könnunin var gerð, sem var fyrri
hluta síðasta árs. Vinsælustu spil-
in eru Lottó, flokkshappdrætti,
skafmiðar, póker og spilakassar.
Svipaðar kannanir voru gerðar á
árunum 2005 og 2007 og séu þær
niðurstöður bornar saman við
nýjustu könnunina kemur í ljós að
þátttaka í peningaspilum var mest
í fyrra.
Um 15 prósent Íslendinga spila
peningaspil vikulega eða oftar.
Eins og með aðra þætti könnun-
arinnar er það mun algengara
meðal karla en kvenna. Tæp 20
prósent hafa lagt peninga undir
í peningaspilum á netinu, og um
3,3 prósent höfðu spilað á erlend-
um fjárhættuspilasíðum. Rúmlega
helmingur svarenda í könnuninni
taldi sig hafa tapað lítillega á pen-
ingaspilum og um 30 prósent töldu
sig vera á sléttu. Þeir sem eru á
aldrinum 18 til 25 ára eru marg-
falt líklegri en aðrir til að eiga
við spilavanda að glíma, en einn-
ig benda niðurstöðurnar til þess
að vandinn sé algengari hjá þeim
sem hafa minni menntun og eru í
lægri tekjuhópum.
Rannsóknin var unnin af
Félagsvísindastofnun HÍ og
byggði á 3.227 manna slembiúr-
taki úr Þjóðskrá. Svarhlutfall var
62 prósent. sunna@frettabladid.is
PÁFI OG DJÖFULL Benedikt sextándi
páfi mun heimsækja Mexíkó í fyrsta
skipti á morgun. Þessi maður dansaði
í gervi djöfulsins fyrir framan vegg-
spjald af páfanum í gær af þessu
tilefni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KÓPAVOGUR Sóknarnefndir Kárs-
ness-, Digraness, Hjalla-, og
Lindasóknar óska eftir því að
bæjarráðið í Kópavogi lækki
verulega vatnsskatt og holræsa-
gjald á kirkjur bæjarins.
„Það er flestum kunnugt að
sóknargjöld hafa lækkað verulega
undanfarin ár og því mikill vandi
fyrir höndum að viðhalda því
mikla starfi sem unnið er í öllum
kirkjum bæjarins og því leitað
leiða til að lækka þann kostnað,“
segir í sameiginlegu bréfi sóknar-
nefndanna til bæjarráðs.
Í bréfinu segir að í Reykjavík
séu umrædd gjöld lægri. „Er það
von okkar að beiðni okkar verði
tekið af velvild og skilningi og
sem viðurkenning á því mikla
starfi sem unnið er fyrir unga
sem aldna í kirkjum bæjarins,“
segja sóknarnefndirnar í Kópa-
vogi.
Bæjarráðið hefur falið bæjarrit-
ara að gefa því umsögn um erindi
sóknarnefndanna. - gar
Sóknarnefndir vega upp á móti lækkun sóknargjalda:
Vilja lækkun vatnsskatts
HJALLAKIRKJA Fjórar sóknarnefndir í
Kópavogi segja í bréfi til bæjaryfirvalda
að þeim sé mikill vandi á höndum.
„Taktu þátt í Mottumars.
Þitt framlag skiptir máli.”
Safnaðu mottu og áheitum á www.mottumars.is
H
:N
M
ar
ka
ðs
sa
m
sk
ip
ti
/ S
ÍA
Spilafíkn hrjáir 4,3
prósent karlmanna
Talið er að fjögur til sjö þúsund Íslendingar glími við spilafíkn. Samkvæmt
nýrri rannsókn er spilafíkn mun algengari meðal karlmanna en kvenna. Lög
verða endurskoðuð til að bregðast við vandanum, segir innanríkisráðherra.
GULLNÁMAN Spilakassa Gull-
námunnar, sem reknir eru af Happ-
drætti Háskóla Íslands, er að finna
á 31 stað á landinu, þar af eru 27 á
höfuðborgarsvæðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segir brýnt að samræma það
regluverk sem gildir um spilakassa og
happdrætti. Einnig vill hann láta auka
eftirlit gífurlega og takmarka aðgengi
að spilakössum. Þá vill hann grípa til
úrræða til að sporna gegn fjárhættu-
spilum á netinu.
„Allt þetta og fleira verður tekið til
skoðunar,“ segir Ögmundur. „Það var
gott að heyra hve alvarlega menn taka
þessari umræðu.“
Innanríkisráðuneytið er nú að láta
skoða hvaða lagabreytinga er þörf
til þess að sporna við þeim vaxandi
vanda sem spilafíkn er hér á landi.
„Auk þess hef ég kallað til sérstakan
starfsmann til að kortleggja þetta og
undirbúa stefnumótun sem ég ætla
að leggja fram með haustinu,“ segir
Ögmundur. „Í samræmi við það verða
breytingar á lögum og reglugerðum
og starfsumhverfi þessara spilakassa
og fjárhættuspilum almennt.“ Að hans
mati er ágengasti aðilinn á mark-
aðnum fjárhættuspil á netinu. „Í gegn
um þau renna gríðarlegir fjármunir
út úr landi í verðmætum gjaldeyri, en
það sem verra er að þetta eyðileggur
verðmæt líf fjölskyldna.“
Aðgengi að kössunum verði takmarkað
SVÍÞJÓÐ Ingvar Kamprad, stofn-
andi IKEA, vill að velgjörðar-
sjóður fyrirtækisins verði meðal
þeirra stærstu í heimi. Markmið-
ið er að taka
þátt í að hjálpa
hundrað millj-
ónum barna
til ársins 2015,
hefur Dagens
Industri eftir
Per Heggenes,
framkvæmda-
stjóra sjóðsins.
Kamprad,
sem talinn er meðal ríkustu
manna heims, hefur verið gagn-
rýndur fyrir lítil framlög til góð-
gerðarmála.
Í fyrra var veitt 580 milljón-
um sænskra króna úr velgjörðar-
sjóði IKEA og var það 44 prósenta
aukning frá árinu áður. Markmið-
ið er að veita nær einum milljarði
sænskra króna úr sjóðnum í ár.
- ibs
Veitt úr velgjörðarsjóði:
Kamprad gefur
milljarða króna
INGVAR KAMPRAD
ÍRAK, AP Al-Kaída hefur lýst
sprengjuárásum í átta borgum í
Írak á hendur sér. Minnst 46 létust
í árásunum í fyrradag, en þeim
var beint gegn lögreglunni og
sjíta-múslimum.
Í borginni Karbala sprungu
tvær bílasprengjur á fjölfarinni
götu. Þá var hús lögreglumanns
í Fallujah sprengt í loft upp,
sprengja sprengd við lögreglustöð
í borginni Kirkuk og nokkrar víðs
vegar um Bagdad. Að auki voru
árásir gerðar á veitingastaði og
verslanir í tveimur litlum bæjum
í suðurhluta landsins.
Leiðtogar arabaríkjanna hitt-
ast á fundi í Bagdad í næstu viku
og hafði verið óttast að reynt yrði
að grafa undan öryggi í landinu
vegna þess. - þeb
Al-Kaída ber ábyrgð:
46 drepnir í
árásum í Írak
BELGÍA, AP Þúsundir manna mættu
á minningarathöfn fyrir fimm-
tán af þeim sem létust í rútuslysi í
Sviss í síðustu viku.
Albert konungur Belgíu var við-
staddur athöfnina sem og Willem
Alexander, krónprins Hollands.
Þá voru forsætisráðherrar beggja
ríkjanna þar.
Fjórtán barna og eins kenn-
ara úr barnaskóla í Lommel var
minnst í athöfninni og voru kistur
þeirra á staðnum svo fólk gæti
vottað virðingu sína. Önnur minn-
ingarathöfn verður haldin í dag
í bænum Heverlee, en börnin
voru úr þessum tveimur bæjum.
Þau voru á leið heim úr skíðaferð
þegar slysið varð. Þrjár stúlkur
eru enn á sjúkrahúsi í Sviss, en
eru úr lífshættu. - þeb
Þrjár stúlkur úr lífshættu:
Fórnarlamba
rútuslyss minnst
FYLGST MEÐ Íþróttahöllin þar sem
minningarathöfnin var haldin rúmar
fimm þúsund manns en fjöldi fólks
fylgdist með fyrir utan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÍBÍA Yfirvöld í Máritaníu ætla
að framselja Abdullah al-Seno-
ussi, fyrrverandi samstarfsmann
Gaddafís, til Líbíu, þar sem réttað
verður yfir honum.
Abdullah er sakaður um að
hafa skipulagt árásir á óbreytta
borgara í Líbíu á síðasta ári. Hann
er jafnframt talinn hafa staðið
að fjöldamorðum þar í landi árið
1996 þegar um 1.200 fangar voru
myrtir. Abdullah er eftirlýstur af
stríðsglæpadómstólnum í Haag og
yfirvöldum í Frakklandi. - sþ
Liðsmaður Gaddafís framseldur:
Fjöldamorð og
árásir á borgara
SJÁVARÚTVEGUR Loðnuvertíð er að
ljúka en aðeins tuttugu þúsund tonn
eru óveidd af 591 þúsund tonna afla-
marki, samkvæmt upplýsingum á
heimasíðu Fiskistofu. Skip HB
Granda áttu í gær óveidd um 1.500
tonn af kvóta fyrirtækisins og er
vonast til þess að hægt verði að ná
því magni í vikunni.
Ingunn AK hefur lokið veiðum en
hin skipin eru enn að.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálmsson-
ar, deildarstjóra uppsjávarsviðs
HB Granda, hafa aðstæður til veiða
verið erfiðar síðustu dagana vegna
leiðinda sjólags. Loðnan er að mestu
hrygnd og hefur legið á botninum
og lítil færi gefið á sér.
„Veiðivonin hefur verið frá því
um hádegisbil og fram á kvöld en
það eru ekki stórar torfur sem
menn hafa verið að kasta á. Við
erum að vona að úr þessu rætist
þannig að kvótinn náist og það vant-
ar ekki mikið upp á til þess að það
takist,“ segir Vilhjálmur.
Þar sem loðnan er búin að hrygna
fara síðustu farmar skipanna allir
í framleiðslu á fiskmjöli og lýsi.
Þess má geta að þrátt fyrir að lítið
sé eftir af úthlutuðum loðnukvóta
hafa tíu skip verið á miðunum síð-
ustu daga en þegar mest var stund-
uðu 25 skip loðnuveiðarnar, segir á
heimasíðu HB Granda. - shá
Aðeins smáslatti óveiddur af 590 þúsund tonna loðnukvóta:
Fáeinir dagar eftir af vertíðinni
Á MIÐUNUM Vertíðin hefur gengið vel,
þrátt fyrir að brælur hafi tafið skip frá
veiðum með reglulegu millibili.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
HEILSA Þeir sem eru með lengri
baugfingur en vísifingur eru lík-
legri til þess að þurfa gervilið í
hné vegna slitgigtar. Þetta kom
fram á rannsóknarráðstefnu Lyf-
lækningasviðs LSH.
Rúmlega 5.100 ljósmyndir af
körlum og konum í kringum sjö-
tugt voru skoðaðar. Þá voru einn-
ig gerviliðir í hnjám og mjöðmum
skoðaðir með hjálp tölvusneið-
mynda. Orsakir tengslanna eru
óþekktar en mögulegar skýring-
ar tengjast meðal annars útlima-
lengd og kynhormónum. - sþ
Fólk um sjötugt rannsakað:
Lengd fingra
skiptir máli