Fréttablaðið - 22.03.2012, Page 19

Fréttablaðið - 22.03.2012, Page 19
FIMMTUDAGUR 22. mars 2012 Miklu stærri slagur Utan Asíu fer ekki mikið fyrir fréttum af sögulegri valdabaráttu í Kína, einu allra mikilvægasta samfélagi jarð- arinnar. Hér vestra höfum við verið upptekin af prófkjörum í Bandaríkjunum. Þaðan fáum við daglegar fréttir af baráttu fólks sem virðist hafa ofsafeng- inn áhuga á kynlífi nágranna sinna og mikla trú á sköpunar- sögu biblíunnar. Rick Santorum, Rick Perry og Sarah Palin eru því flestum kunn en öllu minna fer fyrir nöfnum eins og Wen Jibao, Xi Jinping, Bo Xilai, Li Keqing eða Wang Qishan. Það getur verið kostulegt að fylgj- ast með prófkjörum repúblik- ana. Sú skemmtun dregur hins vegar athygli manna frá því sem raunverulega er að gerast í stjórnmálum mannkyns. Annar slagur Á meðan Santorum varar við þeirri lausung sem of mikil og almenn menntun getur valdið og frjálshyggjumenn berjast fyrir auknum ríkisafskiptum af kyn- lífi kjósenda er annars konar barátta háð austur í Kína. Hún snýst um hvernig koma eigi á lýðræði í stærsta ríki heimsins, draga úr ójöfnuði og spillingu, tryggja aðgang milljarðs manna að sæmilegu heilbrigðiskerfi og opna eða loka Kína í efnahags- legu og pólitísku tilliti. Löng og tvísýn barátta sem varðar allan heiminn er hafin. Val á valdhöfum Í bráð snýst taflið í Kína um æðstu embætti landsins og ekki síst um sæti í fastaráði stjórnmálanefndar Kommún- istaflokksins. Stór embætti hjá ríki, borgarstjórnum, héraðs- stjórnum, flokki og stofnun- um skipta raunar þúsundum. Kerfið er risavaxið og óraflók- ið. Síðustu ár hefur val á valda- mönnum verið niðurstaða af málamiðlunum á milli ólíkra afla. Óánægja fer ört vaxandi með þau ósýnilegu ferli sem þar liggja að baki. Hagsmunir hafa líka orðið rammari og sundr- ast meira en áður. Nú í þessum mánuði sauð upp úr. Stjarnan Bo Leiðtogi flokksins í risaborginni Chongqing, Bo Xilai, háði opin- bera baráttu fyrir sæti í fasta- ráðinu. Bo náði snilldartökum á kínverskum fjölmiðlum. Hann sá þeim fyrir sífelldum upp- ákomum og gerðist vinsæll lýð- skrumari sem sagðist vilja tala beint við þjóð sína. Bo sagði sig vinstri mann og þjóðernissinna sem vildi endurlífga „rauða“ menningu Maótímans. Hann endurvakti byltingarsöngva og slagorð og fór í vinsælar her- ferðir gegn spillingu og glæp- um um leið og hann hamraði á einföldum áróðri. Wen Jibao forsætisráðherra tók Bo af lífi í pólitískum skilningi fyrir skemmstu með ræðu þar sem hann minnti á ógnir Maótímans og sagði að umbætur í lýðræðis- átt væru eina leið Kína til fram- fara. Bo reyndist fámennur og er úr sögunni. Xi Jinping Ekkert er einfalt í Kína en svo virðist sem öfl sem vilja í senn umbætur í efnahagsmálum, aðgerðir gegn spillingu og skref í átt til lýðræðis séu í sókn. Þeir sem gæla við kommúnisma og einangrunarhyggju eru greini- lega á undanhaldi með falli Bo Xilai og afhjúpun á því lýð- skrumi og sjálfsdýrkun sem voru hans ær og kýr. Líklegast er að Xi Jinping verði valinn leiðtogi flokksins á þessu ári og forseti að ári. Hann er umbóta- sinnaður í efnahagsmálum. Xi berst hins vegar ekki aðeins gegn spillingu heldur líka fyrir auknum aga innan flokksins sem gæti orðið á kostnað hug- mynda um aukið lýðræði. Hann er hámenntaður, tvöfaldur dokt- or, og líklegur til að skilja Vest- urlönd betur en forverar hans. Valdakerfið í Kína verður hins vegar hans tímafrekasta við- fangsefni. Wen Jibao Wen Jibao, núverandi forsætis- ráðherra, mun fljótlega stíga til hliðar en hópur fólks sem virð- ist í sókn hefur lík viðhorf. Wen hefur ítrekað rætt um lýðræði sem stjórnarform framtíðarinn- ar og um aukin mannréttindi. Hann leggur þó meiri áherslu á að menn noti þekkingu, vísindi og skynsemi við lausn vanda- mála en á pólitískar breyting- ar, þótt hann hafi raunar nefnt kerfisbreytingar í stjórnmál- um sem möguleika. Wen hefur gefið í skyn að Kínverjar verði að endurmeta atburðina á torg- inu við Hlið hins himneska frið- ar en slíkt endurmat gæti opnað leið fyrir umfangsmiklar póli- tískar umræður í landinu. Wen og menn honum handgengnir hafa líka bent á að Kína þurfi hið fyrsta að verða alvöru rétt- arríki. Næsti forsætisráðherra Baráttan um embætti forsæt- isráðherra virðist vera á milli tveggja manna sem báðir eru umbótasinnaðir. Annar er hag- fræðidoktorinn Li Keqiang, hinn fjármálasérfræðingur- inn Wang Qishan. Li sem er tal- inn líklegri er áhugasamur um bætta stöðu einkafyrirtækja í Kína gagnvart ríkisfyrirtækj- um. Wang sem er þekktur af áhuga á aukinni tengingu Kína við fjármálakerfi heimsins virð- ist njóta stuðnings þeirra sem nú gagnrýna forustuna fyrir of litlar efnahagsumbætur. Báðir þekkja vel alþjóðleg efnahags- mál. Áhugi á breytingum Þrátt fyrir að í Kína hafi orðið stærsta lífskjarabylting mann- kynssögunnar gætir vaxandi óánægju í landinu. Almenn- ingur hefur til þessa verið frá- hverfur stjórnmálum og talið þau uppsprettu ills eins. Áhugi á lýðræði og opnu samfélagi fer hins vegar ört vaxandi og sömu- leiðis áhugi á alvöru baráttu gegn spillingu, ofríki embættis- manna og gífurlegum ójöfnuði í landinu. Fram undan er tími gerjunar, átaka og sköpunar í kínversku þjóðlífi. Í DAG Jón Ormur Halldórsson dósent Þrátt fyrir að í Kína hafi orðið stærsta lífs- kjarabylting mannkynssögunnar gætir vaxandi óánægju í landinu. Ego vill stuðla að fjölgun á umhverfishæfari bílum á Íslandi og býður því græn bílalán. Græn bílalán standa til boða við kaup á bílum í útblástursflokkum A, B og C og eru þau án lántökugjalda út júnímánuð 2012. Kannaðu kosti grænna bílalána á ergo.is Engin lántökugjöld á grænum bílalánum Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.