Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.03.2012, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 22.03.2012, Qupperneq 26
22. mars 2012 FIMMTUDAGUR VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 LÉTTÖL FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT - 512 5100 - STOD2.IS FYRSTI ÞÁTTUR Í KVÖLD KL. 21.00 NÝ GAMANÞÁTTARÖÐ Á STÖÐ 2 STÖÐ 2 Á AÐEINS 244 KR. Á DAG Allir áskrifendur Stöðvar 2 safna punktum Má bjóða ykkur jákvæða frétt í tilefni dagsins? Stórfrétt sem sýnir svart á hvítu hvernig einbeittur vilji og samstaða geta gert heiminn að betri og barn- vænni stað? Þúsaldarmarkmiði Sameinuðu þjóðanna um aðgengi að hreinu drykkjarvatni hefur verið náð! Vatn er undirstaða alls. Þó eru ekki allir þeirrar gæfu aðnjótandi að geta drukkið heilnæmt vatn, hvað þá nóg af því. Daglega veikj- ast alltof mörg börn af ástæð- um sem rekja má til óhreins og mengaðs drykkjarvatns. Vatnið veldur til dæmis niðurgangs- pestum sem orsakað geta ofþorn- un og því miður: Dauða. Þetta er ekki einungis skelfilegt heldur óþarft með öllu – dauðsföll þess- ara barna má koma í veg fyrir. Einmitt af þessum sökum glöddumst við hjá UNICEF ákaf- lega þegar stöðuskýrsla á vegum okkar og Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar barst nýverið. Hún leiddi í ljós stóráfangann sem náðst hefur í baráttunni fyrir drykkjarhæfu vatni í heim- inum. Árið 2000 settu Sameinuðu þjóðirnar sér svokölluð Þúsald- armarkmið um þróun og eitt þeirra var að lækka um helming á tímabilinu 1990-2015 hlutfall þeirra jarðarbúa sem ekki hefðu aðgang að drykkjarhæfu vatni. Það er þessu markmiði sem nú hefur verið náð – og það nokkrum árum fyrir tilsettan tíma. Á tutt- ugu árum fengu tveir milljarðar manna aðgang að hreinu vatni! Áður hefðu margir sagt að slíkt væri ógerningur. Heimsforeldrar skipta sköpum Hreinlæti og hreint vatn skipta miklu fyrir heilsu og velferð barna. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, leiðir hjálp- arstarf á sviði vatns- og hrein- lætismála hvar sem neyðar- ástand ríkir. UNICEF rekur á hinn bóginn allt sitt starf með frjálsum framlögum og engu öðru. Mánaðarlegir styrktaraðil- ar samtakanna – heimsforeldrar – gegna lykilhlutverki. Þökk sé þeim getur UNICEF barist fyrir réttindum barna á heimsvísu, sinnt hjálparstarfi á stöðum sem njóta engrar fjölmiðlaathygli og ráðist í risavaxin verkefni eins og að auka aðgengi barna um víða veröld að drykkjarhæfu vatni. Í dag er alþjóðlegur dagur vatnsins. Minnumst þess í dag hversu lánsöm við erum hér á landi að hafa nóg af hreinu vatni og veitum því athygli að áður en degi hallar munu nær 800 millj- ónir jarðarbúa hafa neyðst til að drekka skítugt eða sýkt vatn. Minnumst þess um leið að þessu má vel breyta. Til hamingju með daginn! Viltu brúnt vatn? Dagur vatnsins Stefán Ingi Stefánsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi Gegnumbrot skáldskaparins Nýlega (nánar tiltekið 10. mars sl.) las ég í Fréttablaðinu ágæta grein eftir Hermann Stef- ánsson rithöfund þar sem hann fjallar um það sem hann kall- ar öfgamaskúlínisma og varar við honum og hvetur okkur öll, okkur alla réttara sagt, karla þessa lands, til að hafna honum í orðum og æði. Á sama tíma berast okkur dag- lega fréttir af auknu ofbeldi karla gegn konum og þeim jafnvel barnungum, skipulögðum hóp- nauðgunum og um leið vaxandi ásókn maskúlínglæpagengja utan úr heimi sem hafa líklega frétt að Ísland sé gósenland fyrir kyn- ferðisglæpamenn, hér sé þeim beinlínis hampað sem hetjum. Sennilega er besta leiðin til að sporna gegn þessari ómennsku allri einmitt sú sem Hermann Stefánsson stingur upp á, nefni- lega sú að vel meinandi karlar á öllum aldri, þeir eru ennþá til, við erum ennþá til, rísi upp og lýsi frati sínu opinberlega, í fjölmiðl- um, sem víðast, á þessu öfgafulla maskúlín-mentalíteti sem virð- ist vera að grafa um sig dýpra og dýpra innra með jafnvel ungum drengjum sem greinilega hafa alltof margar vondar fyrirmynd- ir upp á að horfa alltof mörgum stundum. Hættið karlar – afar, pabbar, ungir drengir – að láta sem ykkur þyki klám og t.d. nauðgunartal og nauðgunarhótanir og ofbeldi í orðum og gjörðum fyndið. Það er ekki fyndið heldur hallæris- legt og ógeðslegt. Gerið frekar, gerum frekar allir sem einn það sem Hermann Stefánsson sting- ur upp á. Gerum „eitthvað annað á opinberum vettvangi en fara með vonda fyndni“. Hvernig til dæmis? Gefum Hermanni aftur orðið: Með því að: „Lesa bækur, tefla, fara með fyndna fyndni, spila tónlist, leggja stund á gegn- umbrot skáldskaparins, ástunda sannar ögranir, fíflast, láta öllum illum látum, ganga gegn skin- helginni, hrista upp í hlutunum, vera næs, gera það kúl að vera næs.“ Fyrir allmörgum árum kenndi ég stórum strákahóp í 10. bekk íslensku. Langt fram eftir hausti komst ég í lítið samband við strákana, þeir voru svo rosalega miklir töffarar og ég of mjúkur, of mikill bókabéus, of ljóðrænn fyrir þá. Einu sinni í nóvember var ljóðatími. Ég ákvað að gef- ast ekki upp heldur fór á ljóða- flug og sagði við strákana: Vitiði strákar, það er miklu meira töff, meira kúl og miklu meira næs líka og líklegra til árangurs að fara með ljóð í viðurvist stelpn- anna heldur en að klæmast við þær og vera grófur og dónalegur og ógeðslegur. Prófiði næst þegar ykkur langar að hrífa stelpu og sjáið sólina rísa austan yfir Eyja- fjöll, Tindfjöll og Heklu að segja: Þarna siglir hin rósfingraða morgungyðja upp á himins bláa bogann. Fyrst göptu þeir en svo langaði þá ólma að skilja þessi orð. Og nokkrir lærðu þau strax utan að og ákváðu að slá um sig með þeim við fyrsta tækifæri í góðum félagsskap. Með góðum árangri, það sá ég vel. Gegnumbrot skáldskaparins virkaði! Og getur virkað enn um langa framtíð. Samfélagsmál Trausti Steinsson kennari á Selfossi Hættið karlar – afar, pabbar, ungir drengir – að láta sem ykkur þyki klám og t.d. nauðgunartal og nauðgunarhótanir og ofbeldi í orðum og gjörðum fyndið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.