Fréttablaðið - 22.03.2012, Blaðsíða 39
KYNNING − AUGLÝSING Skólar & námskeið22. MARS 2012 FIMMTUDAGUR 7
MPM-nám er mastersnám í verkefnastjórnun sem hentar þeim sem vilja
stýra flóknum og krefjandi verk-
efnum. MPM stendur fyrir Master
of Project Management og hljóta
nemendur meðal annars alþjóð-
lega vottun í verkefnastjórnun.
Námið var sett á laggirnar í Há-
skóla Íslands árið 2005 en flutti al-
farið yfir til Háskólans í Reykjavík
síðastliðið sumar. „Þessi breyting
hefur hleypt alveg nýju lífi í námið
auk þess sem aðstaða nemenda
hefur batnað til mikilla muna.
Við finnum öll fyrir meiri hvatn-
ingu, örvun og áhuga á nýjum
stað,“ segir dr. Haukur Ingi Jónas-
son, sem stýrir náminu ásamt dr.
Helga Þór Ingasyni. Hann segir
alla kennara og nemendur hafa
flust sem einn maður yfir til HR,
en þetta er eina meistaranámið
í verkefnastjórnun sem boðið er
upp á hér á landi.
„Námið er orðið vel slípað og
megininntak þess hefur í meg-
indráttum ekki breyst. Þróunin
heldur þó sífellt áfram og er tölu-
vert um nýja kennara, bæði ís-
lenska og erlenda. Má þar nefna
dr. Ellen Gunnarsdóttur, sem
kennir nú í námskeiðinu verkefna-
stjórnun á framandi slóð og Ben-
jamin Lund, danskan sérfræðing
í samningatækni, sem kemur að
kennslu í námskeiðinu Samning-
ar í verkefnastjórnun: Samning-
ar, deilur og áföll. Haukur segir
lagt upp úr góðum tengslum við
fólk sem er í fremstu röð í faginu
og kemur meðal annars frá MIT,
Stanford, Heriot-Watt og víðar.
Sjötíu nemendur stunda nú
MPM-nám við HR á tveimur árum
en nemendur á lokaári vinna nú
að lokaverkefni á sviði verkefna-
stjórnar sem verða kynnt á ár-
legri ráðstefnu MPM-námsins á
ráðstefnunni Vor í íslenskri verk-
efnastjórnun. Ráðstefnan verður
haldin 25. maí og kennir þar ým-
issa grasa. Kennsla MPM-námsins
fer fram í meistararými Háskólans
í Reykjavík og segir Haukur að-
stöðuna til fyrirmyndar. „Það er
líka gaman að finna þann áhuga
sem ríkir á náminu innan skólans,
bæði meðal kennara og annars
starfsfólks, og leggja sig allir fram
um að gera það sem best úr garði.“
Haukur Ingi segir forsvars-
menn námsins hafa mikinn
metnað fyrir hönd þess og er sí-
fellt verið að skerpa á áherslum og
auka samstarf við erlenda aðila.
Til langs tíma litið gæti jafnvel
farið svo að námið yrði kennt á
ensku og þar með opnað fyrir er-
lendum nemendum. Þeir Hauk-
ur Ingi og Helgi Þór Ingason eru
virkir þátttakendur í þróun verk-
efnastjórnunar og halda iðulega
erindi erlendis um nýjungar í fag-
inu, nú síðast á IPMA Expert Sem-
inar við Tækniháskólann í Zurich.
„Þarna kom fram að eftirspurn
eftir fagmenntuðum verkefna-
stjórum væri að aukast og myndi
stóraukast til dæmis í
Þýskalandi á komandi
árum. Þá erum við, ásamt Ara
Kristni Jónssyni rektor HR, búnir
að kalla saman sérfræðinga úr ís-
lensku atvinnulífi sem munu hitt-
ast á morgun til að ræða fagið,
námið og starf verkefnastjóra í
framtíðinni. Þar er ætlunin að fá
fram góðar og gagnrýnar hug-
myndir til áframhaldandi þróun-
ar námsins.”
Haukur Ingi segir fólk úr öllum
geirum at vinnulífsins sækja
námið. Til hálfs er um að ræða
tækni- og viðskiptamenntað fólk
en svo er líka fólk úr heilbrigðis-
stéttum, leikarar, kennarar, tann-
læknir, og svo mætti áfram lengi
telja. Námið er sérsniðið fyrir þá
sem vilja læra tækni- og verk-
fræðilegar aðferðir og hagnýta
þær í leik og starfi. Fólk lærir öguð
vinnubrögð og hvernig á að bera
sig að við að láta hlutina ganga
upp og því gagnast námið víða.
Félag útskrifaðra MPM-nema
er líka að verða sífellt öflugra og
stendur meðal annars fyrir fyr-
irlestrum, ráðstefnum og fleiru.
Næsta ráðstefna þeirra er 12. apríl
á Hótel Natura undir yfirskriftinni
Ný tækifæri.
Nánari upplýsingar um
MPM-námið er að finna
á: hr.is/mpm.
„Það sem vakti áhuga minn á nám-
inu var fyrst og fremst sá hluti sem
snertir fólk og samskipti,“ segir
Yngvi Rafn Yngvason sem útskrif-
ast úr MPM-námi í verkefnastjórn
í vor. „Verkefnastjórar vinna mikið
með fólki og því eins gott að hafa
samskiptahæfnina í þokkalegu
lagi. Námið kemur þó ekki ein-
göngu inn á samskipti við aðra
heldur þarf líka að læra að þekkja
og höndla sjálfan sig í erfiðum að-
stæðum. Í því sambandi má nefna
námskeiðið Verkefnastjórinn:
sjálfsskilningur, þroski og þróun
þar sem farið er í mikla innri vinnu
og meðal annars reynt að skilja
eigin varnarviðbrögð og annarra.“
Yngvi Rafn segir námið frá-
bærlega framsett og að námsbæk-
ur kennaranna Hauks Inga Jón-
assonar og Helga Þórs Ingasonar
séu virkilega góðar. „Námið skil-
ur mikið eftir sig og er gríðarlega
praktískt. Til marks um það má
nefna að þegar við höfum farið yfir
akademíska hlutann verðum við
okkur úti um verkefni og vinnum í
þrjá mánuði í samstarfi við aðila úti
í bæ og beitum þeim aðferðum sem
við höfum lært.“ Yngvi Rafn segir
námið allt eins nýtast í einkalífi
og við vinnu erlendis. „Það er tölu-
vert fjallað um verkefnastjórnun í
alþjóðlegu samhengi sem mun ef-
laust nýtast mér í nýju starfi í Köln
þar sem ég kem til með að starfa
við greiningar á flugatvikum. Þar
verð ég með mörg verkefni á minni
könnu og mun námið hjálpa mér
við að skipuleggja mig, hafa yfirsýn
og vera skilvirkur í starfi.“
Kemur sér vel
á erlendri grund
Yngvi Rafn Yngvason, sérfræðingur hjá Flugmálastjórn Íslands, hóf MPM nám í
verkefnastjórn haustið 2010 og útskrifast í vor. Hann hefur verið ráðinn til
Flugöryggisstofnunar Evrópu í Köln og segir námið án efa hafa fleytt sér langt.
Yngvi Rafn Yngvason, sérfræðingur hjá flugmálastjórn.
MPM-námið á Íslandi flutt til HR
MPM-nám í verkefnastjórnun var sett á laggirnar árið 2005 og er kennt við Háskólann í Reykjavík í dag. Þar er öll aðstaða til fyrirmyndar og mikill
metnaður lagður í stöðuga framþróun námsins. Forsvarsmenn námsins semja sjálfir hluta kennsluefnisins en fá auk þess til liðs við sig erlenda sem
innlenda kennara sem standa framarlega í faginu. Námið nýtist fólki úr öllum geirum samfélagsins.
Að sögn Hauks Inga stunda sjötíu
nemendur MPM-nám við Háskólann í
Reykjavík og koma þeir úr ýmsum áttum.
Þeir Haukur Ingi Jónasson og Helgi Þór Ingason stýra náminu. MYND/ANTON