Fréttablaðið - 22.03.2012, Side 41

Fréttablaðið - 22.03.2012, Side 41
HAUST | 2.-15. NÓV. 2012 MEXIKÓ OG GVATEMALA ■ Ævintýraferð á slóðir Maya, Mexíkó og Gvatemala Tveggja landa sérferð til Mexíkó og Gvatemala. Þessi ferð veitir einstaka innsýn inn í hinn forna menningarheim Maya indíána. Stórkost- leg náttúra og fjölbreytt dýralíf ásamt töfrandi regn- skógarsvæðum. Heimsókn í afskekkt þorp Maya til að kynnast menningu þeirra, handverki og daglegu lífi. Einstök ferð sem mun lifa í minningunni um ókomin ár. VERÐ á mann í tveggja manna herbergi 399.560 krónur. | INNIFALIÐ Flug, skattar, hótel með morgunmat, allar ferðir og íslensk fararstjórn. SUMAR | 28. JÚNÍ TIL 6. JÚLI TALLINN OG PÉTURSBORG ■ Tvær af glæsilegustu borgum Evrópu Ferðamenn fá að heimsækja eina fegurstu borg Evrópu í ferð sem Trans-Atlantic býður til Tallinn og Pétursborgar í sumar. Í Tallinn upplifa ferðamenn ósvikna miðaldastemningu í borginni sem er frá 11. öld. Sjá söfn, dómkirkjur, klaustur og upplifa stórfenglegan arkitektúr, með- al annars torgið í gamla bænum, Maiden-turninn og Toompea-kastalann svo fátt eitt sé nefnt. Unnendur sagnfræði og fallegrar byggingalistar ættu að finna ýmislegt við sitt hæfi í Pétursborg. Pétur mikli byrjaði á því að reisa þessa stórkost- legu borg sem stendur við Finnska flóa (Kirjála- botn). Hún hefur verið nefnd Feneyjar norðurins vegna margra síkja sem í henni eru og hægt er að sigla eftir. Ferðamenn fá meðal annars tækifæri til að heimsækja hina glæsilegu höll og lystigarð Katrínar miklu og Vetrarhöllina. Ferð til Péturs- borgar lætur engan ósnortinn. VERÐ | 217.900 krónur á mann í tveggja manna herbergi INNIFALIÐ Flug ásamt öllum sköttum til Tallinn og til- baka frá Helskini í Finnlandi, allar skoðunarferðir, rúta, ferja, hótel og íslensk fararstjórn. Flug með sköttum Keflavík–Tallinn 28. júni einungis 19.900 krónur. HAUST | Í ÁGÚST OG SEPTEMBER ÍTALÍA|RÓM OG FLÓRENS ■ Ríkuleg menning og ljúffengur matur Yndisleg og áhugaverð ferð þar sem tvinn-ast saman skoðunarferð um Flórens og svo nokkrir dagar í Rómaborg, borginni eilífu. Ítölsk matar- og vínmenning í einstaklega fallegu umhverfi, ríkuleg menning og iðandi mannlíf. Ítar- legar skoðunarferðir innifaldar. VERÐ frá 213.300 á mann í tveggja manna herbergi. INNIFALIÐ Flug, allir skattar og gjöld, hótel með morgun- mat, rútur, safnagjöld, 3 rétta máltíð í Flórens, vín og ostar við komu. Íslensk fararstjórn. HAUST | 25.-28. OKT. 2012 RÍGA Í LETTLANDI ■ Beint flug frá Egilsstöðum, Akureyri og Keflavík Hvort sem það er menningin, söfn, fallegar byggingar, lystigarðar, tónlistarviðburðir eða úrval verslana með allt það nýjasta á góðu verði – þá finnur þú það í Ríga. Röltu um gamla bæinn frá miðöldum, skoðaðu Art Noveau- byggingarstílinn, prófaðu eitthvað gott og fram- andi að borða og njóttu þess að vera í umhverfi þar sem gamli og nýi tíminn mætast. Úrval skoð- unarferða innan borgarinnar og utan. VERÐ 95.900 krónur á mann í tveggja manna herbergi. INNIFALIÐ Flug, skattar, hótel með morgunmat, rúta til og frá flugvelli og íslenskur fararstjóri. HAUST | 28. SEPT. - 8. OKT. ALBANÍA ■ Vegamót sögunnar Ferðamenn kynnast ævafornri menningu og upplifa söguna á hverju horni. Sjá ótrúlega fagurt landslag og kynnast alveg einstaklega viðkunnanlegu heimafólki sem á alltaf bros handa ferðalöngum. Land Móður Theresu er fyrst núna að opnast og einstakt tækifæri hér á ferðinni til að kynnast einum af mest spennandi áfangastöðum og perlum Evrópu með því að heimsækja Albaníu. VERÐ krónur 262.500 á mann í tveggja manna herbergi. INNIFALIÐ Flug, skattar, hótel með hálfu fæði, aðgangur sem við á, allar skoðunarferðir og íslensk fararstjórn. HAUST | 6.-19. OKT. 2012 SRÍ LANKA ■ Eyjan fallega Ferðaskrifstofan Trans-Atlantic býður ein-staka ferð til Srí Lanka dagana 5. til 17. októ-ber. Ferðalangar fá einstakt tækifæri til að fara á slóðir dulúðar, ótrúlegrar náttúru og lands sem sagt er, í arabísku sögunum Þúsund og einni nótt, að Sinbað sæfari hafi farið til. Spennandi ferðir á sömu slóðir og landkönnuðurinn Marco Polo, sem taldi að eyjan væri hin jarðneska Para- dís, ferðaðist um. TILBOÐSVERÐ Aðeins 436.250 á mann miðað við tvo í herbergi. INNIFALIÐ Flug, skattar hálft fæði, allar ferðir, hotel með hálft fæði, íslenskur fararstjóri, safari ferð og margt fleira. HAUST | 6. - 16. OKTÓBER 2012 INDLAND ■ Dekurferð og sjálfsrækt Einstök dekurferð um Indland með yoga-ívafi - fyrir þá sem vilja rækta sjálfa sig og upplifa ævintýralega fegurð Indlands, sögufræga staði og framandi matargerðarlist. Gisting á 4-5 stjörnu lúxushótelum, spa og heilsulindir og allt fæði (nema hádegismatur). Einstaklega vönduð dagskrá þar sem við upp- lifum og sjáum það markverðasta svo sem Taj Mahal, Gullna hofið í Amristar og Rauða virkið í Delhi. VERÐ frá 389.000 krónur. INNIFALIÐ Flug, skattar, gisting á 4-5 stjörnu lúxus hótelum, Spa og heilsulindir & allt fæði (nema hádegis- matur), íslenskur fararstjóri og margt fleira. SKOÐAÐU HEIMINN MEÐ OKKUR TRANS-ATLANTIC KYNNIR ótrúlegt úrval af ferðum. Sjá nánar á vefsíðu okkar www.transatlantic.is. Upplifðu eitthvað nýtt og spennandi, ævintýralegt og dulúðugt, litríkt og fræðandi. Ferðin hefst hjá okkur. Farðu út í heim fyrir 19.900 krónur. ÆVINTÝRI Ferðamönnum gefst færi á að fara á slóðir dulúðar og ótrúlegrar náttúru. Landsins sem lýst er í Þúsund og einni nótti. ANDSTÆÐUR Indland er sannkallaður heimur andstæðna. Þangað býður Trans Atlantic einstaka dekurferð í október á þessu ári. Trans-Atlantic hefur skipulagt ferðir til Mexíkó frá 2005. Nú skipuleggur ferðaskrifstofan ferðir á Yu- catan-skagann í suðausturhluta Mexíkó sem er eitt vinsælasta ferðamannasvæðið. Með falleg- asta svæðinu er strandlengjan Riviera Maya en þar er stærsti bærinn Playa Del Carmen. Viva Vyndham Maya er fjögurra stjörnu hótelsvæði í bænum. Þar er allt innifalið. Ævintýra- leg stemning einkennir svæðið þar sem skoða má Maya-pýra- mída, forn þorp og fleira. Utan við ströndina er næststærsta kóralrif heims. Betri staður til köfunar eða til að snorkla er vandfundinn. Fólk getur bókað ferðir hvenær sem er og verið eins lengi og það vill. MEXÍKÓ ALLT ÁRIÐ UM KRING Ferðaskrifstofan Trans-Atlantic býður ferðir allt árið til Mexíkó. FERÐIR |FÓLK Sími 588 8900 www.transatlantic.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.