Fréttablaðið - 22.03.2012, Qupperneq 66
22. mars 2012 FIMMTUDAGUR50
Enska úrvalsdeildin:
Tottenham-Stoke 1-1
0-1 Cameron Jerome (75.), 1-1 Rafael van der
Vaart (90.+3).
Man. City-Chelsea 2-1
0-1 Gary Cahill (60.), 1-1 Sergio Aguero, víti (78.),
1-2 Samir Nasri (85.)
Everton-Arsenal 0-1
0-1 Thomas Vermaelen (8.)
QPR-Liverpool 3-2
0-1 Sebastian Coates (53.), 0-2 Dirk Kuyt (72.),
1-2 Shaun Derry (77.), 2-2 Djibril Cisse (86.), 3-2
Jamie Mackie (90.+2).
STAÐAN:
STAÐAN:
Man United 29 22 4 3 73-27 70
Man City 29 22 3 4 71-21 69
Arsenal 29 17 4 8 58-39 55
Tottenham 29 16 6 7 53-35 54
Chelsea 29 14 7 8 49-34 49
Newcastle 29 13 8 8 41-41 47
Liverpool 29 11 9 9 35-29 42
Swansea City 29 10 9 10 34-34 39
Sunderland 29 10 7 12 36-33 37
Everton 29 10 7 12 28-32 37
Stoke City 29 10 7 12 28-40 37
Fulham 29 9 9 11 37-40 36
WBA 29 10 6 13 35-38 36
Norwich City 29 9 9 11 39-46 36
Aston Villa 28 7 12 9 31-35 33
Blackburn 29 7 7 15 42-60 28
QPR 29 6 7 16 32-50 25
Bolton 28 7 2 19 31-57 23
Wigan 29 4 10 15 25-54 22
Wolves 29 5 7 17 30-63 22
Þýski handboltinn:
Hamburg-Hannover 34-30
Vignir Svavarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson
skoruðu báðir eitt mark fyrir Hannover. Hannes
Jón Jónsson komst ekki á blað.
Magdeburg-Bergischer 37-27
Rúnar Kárason var markahæstur í liði Bergischer
með sjö mörk.
Melsungen-Kiel 19-27
Aron Pálmarsson lét sér nægja að skora eitt mark
fyrir Kiel að þessu sinni. Kiel er búið að vinna alla
25 leiki sína í deildinni á þessari leiktíð.
Danski handboltinn:
AG-Lemvig 39-25
Snorri Steinn Guðjónsson og Guðjón Valur Sig-
urðsson skoruðu báðir eitt mark fyrir AG. Ólafur
Stefánsson og Arnór Atlason voru hvíldir. Þetta
var lokaumferð deildarkeppninnar en AG var
löngu búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Grindavík er deildar-
meistari og Valur og Haukar eru
fallin lið en það er samt nóg undir
í 22. og síðustu umferð Iceland
Express-deildar karla í körfubolta
í kvöld.
Þrjú lið eiga möguleika á öðru
sætinu og auk þess gætu Kefl-
víkingar nælt í heimavallarrétt
ef úrslitin verða KR-ingum óhag-
stæð.
Njarðvík situr eins og er í
áttunda og síðasta sætinu inn
í úrslitakeppnina en Fjölnis-
menn eiga smá von um að taka
það af þeim. ÍR-ingar eiga aftur
á móti ekki lengur möguleika á
sæti í úrslitakeppninni þar sem
liðið verður alltaf neðar á lakari
árangri í innbyrðisviðureignum
við Njarðvík (og Fjölni).
KR gæti farið niður í 5.sæti
KR, Stjarnan og Þór eru öll með 28
stig í 2. til 4. sæti deildarinnar og
eiga því öll möguleika á því að ná
öðru sætinu í kvöld. KR-ingar eiga
það á hættu að detta niður um þrjú
sæti í töflunni verði úrslitin þeim
óhagstæð. Stjarnan og Þór verða
aftur á móti með heimavallarrétt
í átta liða úrslitunum hvernig sem
fer í kvöld.
Ástæðan fyrir þessu er að KR-
ingar eru með lakari innbyrðis-
stöðu á móti Keflavík en Keflvík-
ingar eru hins vegar með lakari
innbyrðisárangur á móti bæði Þór
og Stjörnunni. Eina leiðin til þess
að Keflvíkingar nái heimavallar-
rétti í átta liða úrslitunum er að
þeir vinni sinn leik, KR tapi sínum
leik og bæði Stjarnan og Þór vinni
sína leiki. Fari svo yrði Keflavík í
4. sætinu en KR-ingar dyttu alla
leið niður í 5. sætið.
Grindavík og Snæfell eru og
verða áfram í 1. og 6. sæti hvernig
sem fer í kvöld en það á síðan eftir
að koma í ljós hvernig hin liðin
raða sér upp inn í úrslitakeppnina.
Hvað gerist í Síkinu?
Baráttan um síðasta sætið inn í
úrslitakeppnina stendur á milli
tveggja liða, Njarðvíkina og Fjöln-
is. Það ræðst mjög mikið á leik
Tindastóls og Njarðvíkur í Síkinu
á Sauðárkróki
Njarðvík er í betri stöðu og
tryggir sig áfram með sigri á
Tindastól en Fjölnismenn þurfa
aftur á móti að treysta á önnur
úrslit auk þess að klára sinn leik.
Það er mikið um að liðin í efri
hlutanum séu að keppa við liðin í
neðri hlutanum en það er eitthvað
undir í öllum leikjum nema leik
Vals og Snæfells í Vodafonehöll-
inni. Í tveimur þeirra eru síðan
bæði lið að keppa um að bæta
stöðu sína en það er í leik Fjölnis
og Keflavíkur í Dalhúsum og leik
Tindastóls og Njarðvíkur á Sauð-
árkróki.
KR-ingar og Stjörnumenn eiga
þó örugglega ekki auðvelda leiki
fyrir höndum, í Grindavík og
Seljaskóla, þótt heimaliðin hafi
að engu að keppa. Þórsarar heim-
sækja síðan Hauka á Ásvelli en
þetta verður síðasti úrvalsdeildar-
leikurinn í Hafnarfirði í dálítinn
tíma. Allir leikir kvöldsins hefjast
kl. 19.15.
Lokaumferðin ætti að bjóða upp
á spennu allt til loka leikjanna
og virka sem fín upphitun fyrir
úrslitakeppnina sem bíður hand-
an við hornið. ooj@frettabladid.is
Eitt stórt reikningsdæmi í lok kvölds
Það gæti þurft dágóðan tölfræðiútreikning eftir lokaumferð Iceland Express-deildar karla í kvöld en þá
verður barist bæði um annað sætið og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Sjö lið hafa tryggt sér sæti inn í
úrslitakeppnina en enginn veit hverjir mætast fyrr en eftir leiki kvöldsins.
ÞURFA SIGUR Í SÍKINU Elvar Már Frið-
riksson og félagar í Njarðvík þurfa sigur
á Króknum til þess að tryggja sér sæti í
úrslitakeppninni og vinni þeir með átta
stigum sleppa þeir við deildarmeistara
Grindavíkur í fyrstu umferð.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ef allt gengur upp hjá liðunum í lokaumferðinni í kvöld
Grindavík 36 stig
Grindvíkingar eru orðnir
deildarmeistarar og úrslit
kvöldsins skipta þá engu
máli.
KR 28 stig
Getur náð öðru sætinu með
því að vinna ÍR og verða
alltaf í 2. sæti á betri árangri
í innbyrðisleikjum ef þeir eru
jafnir Þór og Stjörnunni.
Stjarnan 28 stig
Getur náð öðru sætinu
með því að vinna Grindavík
á sama tíma og KR tapar
sínum leik. Stjarnan er með
betri innbyrðisstöðu á móti
Þór úr Þorlákshöfn.
Þór Þorlákshöfn 28 stig
Getur náð öðru sætinu með
því að vinna Hauka á útivelli
á sama tíma og bæði KR og
Stjarnan tapa sínum leikjum.
Keflavík 26 stig
Getur náð fjórða sætinu
með því að vinna Fjölni
á útivelli á sama tíma og
KR tapar fyrir ÍR en bæði
Stjarnan og Þór vinna sína
leiki.
Snæfell 24 stig
Verður í sjötta sæti hvernig
sem aðrir leikir fara. Getur
náð Keflavík að stigum en
Hólmarar eru með lakari
árangur í innbyrðisleikjum
eftir tvö naum töp.
Tindastóll 20 stig
Er komið inn í úrslitakeppn-
ina og verður í sjöunda
sæti svo framarlega sem
liðið tapar ekki með meira
en sjö stigum á móti
Njarðvík í kvöld.
Njarðvík 18 stig
Getur náð sjöunda sætinu
með því að fá átta stiga
sigur (eða stærri) á
Tindastól en tryggir sér sæti
í úrslitakeppninni með sigri.
ÍR 16 stig
Getur ekki náð áttunda
sætinu af því að liðið er
með lakari innbyrðisár-
angur en Njarðvík auk þess
að vera ekki með bestan
árangur verði öll þrjú liðin
jöfn.
Fjölnir 16 stig
Getur náð áttunda sætinu
ef liðið vinnur Keflavík
á sama tíma og bæði ÍR
og Njarðvík tapa sínum
leikjum. Fjölnir er með betri
árangur í innbyrðisleikjum á
móti Njarðvík.
Haukar 12 stig og Valur
0 stig
Bæði eru fallin í 1. deild.
MÆTTUR AFTUR Carlos Tevez var í leik-
mannahópi Man. City í fyrsta skipti í
gær síðan hann neitaði að spila gegn
FC Bayern í september. Hann kom af
bekknum þegar tæpur hálftími var eftir
og City lent undir í leiknum. Hann lagði
upp sigurmarkið. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES