Fréttablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 4
29. mars 2012 FIMMTUDAGUR4
GENGIÐ 28.03.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
230,6463
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,36 126,96
201,20 202,18
168,60 169,54
22,671 22,803
22,165 22,295
18,981 19,093
1,5214 1,5302
195,38 196,54
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Við styðjum þig
STOÐ
P
O
R
T
hö
nn
un
FARSÍMI Flestir símar geta tengst netinu
og þannig geta farsímanotendur notað
forrit á borð við Skype og Viber.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SVÍÞJÓÐ Stjórnendur símafyrir-
tækja í Svíþjóð vilja koma í veg
fyrir að farsímanotendur geti
notað Skype og Viber, forrit sem
gera fólki kleift að hringja frítt í
gegnum internetið.
Talskona Telia í Svíþjóð segir
að tæknin sé fyrir hendi til að
loka á ókeypis símtölin. Frá þessu
er sagt í sænska ríkisútvarpinu.
Fyrirtæki í fleiri Evrópulöndum
eru sögð íhuga þennan mögu-
leika. Framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins gæti þó stöðvað
þessar fyrirætlanir, en þar er
verið að íhuga bann við hömlum
af þessu tagi. Fyrirtæki megi
ekki skipta sér af netnotkun með
þessum hætti. - þeb
Farsímafyrirtæki í Svíþjóð:
Vilja banna
Skype í símum
ALÞINGI Ásmundur Einar Daðason,
þingmaður Framsóknarflokks, vill
fá að vita hvort starfsmenn RÚV
hafi þegið kynnisferðir kostaðar
af Evrópusambandinu eða stofn-
unum þess, þar á meðal Evrópu-
stofu. Einnig vill þingmaðurinn
vita hvort RÚV hafi tekið við fjár-
munum frá ESB í þeim tilgangi
að kynna starfsemi þess. Þetta er
meðal þess sem kom fram í fyrir-
spurn Ásmundar til Katrínar Jak-
obsdóttur, mennta- og menningar-
málaráðherra, á þriðjudag.
Þá kom einnig fram í fyrirspurn
þingmannsins hvort stjórn RÚV,
útvarpsstjóri, dagskrárstjóri og
fréttastjóri hefðu mótað reglur
um samskipti RÚV við ESB vegna
aðildarviðræðna Íslands. - sv
Ásmundur vill svör um RÚV:
Spyr um tengsl
RÚV og ESB
Í frétt í blaðinu í gær af umferðar-
málum á Miklubraut var missagt í
undirfyrirsögn að tillaga Hverfisráðs
Hlíða fæli í sér að aksturstefna á
ystu akreinum yrði breytileg. Hið
rétta er að hverfisráðið leggur til að
aksturstefnan verði breytileg á innri
akreinunum tveimur.
HALDIÐ TIL HAGA
REYKJAVÍKURBORG Stjórnsýsluút-
tektir á stjórnkerfi borgarinnar
og Orkuveitu Reykjavíkur munu
kosta borgina samtals 58,1 milljón
króna fram á árið 2013 samkvæmt
áætlun sem borgarráð hefur sam-
þykkt.
Á þessu ári er áætlað að 21,6
milljónir króna fari til úttektar-
nefndar á stjórnkerfi borgar-
innar og 10 milljónir á næsta ári.
Nefndin var skipuð á síðasta ári í
tilefni hrunsins og skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis. Úttekt
á OR sem hófst í fyrra á síðan að
kosta samtals 26,5 milljónir. - gar
Úttektir á OR og borginni:
Tugmilljónir í
kerfisúttektir
Hafís færist frá landi
Hafís sem verið hefur á Vestfjarða-
miðum undanfarið færist nú frá
landinu. Fyrir viku var ísbrúnin 50
sjómílur frá Straumnesi en hún er nú
komin í 90 sjómílna fjarlægð.
VESTFIRÐIR
ÍÞRÓTTIR Fjöldi fólks og hunda tók
þátt í Íslandsmeistaramóti Sleða-
hundaklúbbs Íslands á Mývatni
um síðustu helgi. Veðrið lék við
keppendur, sem voru 28 talsins,
og keppt var í 21 grein. Er þetta
í annað sinn sem keppnin er
haldin á vegum Sleðahundaklúbbs
Íslands.
Klúbburinn er félagsskapur
áhugafólks um sleðahunda með 55
virka þátttakendur. Alls eru 125
félagsmenn á skrá, að sögn Önnu
Marínar Kristjánsdóttur, for-
manns klúbbsins.
„Þetta verður árlegur viðburður
hjá okkur, þetta gengur svo vel,“
segir Anna, og bætir við að mikil
breyting hafi orðið til hins betra
síðan síðasta mót var haldið, í
mars árið 2010.
„Þá vissum við lítið hvað við
vorum að gera, en þróunin hefur
verið ör síðan þá. Nú vorum við öll
á sama stað.“
Þrjár tegundir hunda tóku þátt í
mótinu í ár; siberian husky, græn-
lenskir sleðahundar og labrador.
Meðal sigurvegara voru
Sigurður B. Baldvinsson í flokki
fullorðinna og Iðunn Pálsdóttir í
barnaflokki. - sv
Þrjár hundategundir tóku þátt í Íslandsmeistaramóti Sleðahundaklúbbsins:
Sleðahundasport vaxandi grein
FYRSTU KEPPENDUR KOMA Í MARK
Alls tóku 28 manns þátt í keppninni
sem var haldin í annað sinn í ár.
MYND/SIGURÐUR MAGNÚSSON
HEILSA Dagleg inntaka af aspiríni
getur komið í veg fyrir myndun
krabbameins og getur jafnvel
hjálpað til við krabbameinsmeð-
ferð. Læknablaðið The Lancet
greinir frá þessu í þremur
nýjum rannsóknum.
Einnig eru vísbendingar um
að lyfið geti heft útbreiðslu
ákveðinna tegunda krabba-
meins.
Prófessor við Oxford-háskóla
segir hins vegar að ekki liggi
nægar sannanir fyrir þessu að
svo stöddu.
Ný rannsókn um aspirín:
Gæti unnið gegn
krabbameini
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
16°
11°
11°
16°
17°
11°
11°
21°
17°
15°
14°
29°
12°
20°
16°
8°
Á MORGUN
3-8.
LAUGARDAGUR
5-10 m/s.
6
6
7
7
5
8
10
10
9
8
8
5
8
8
9
7
7
6
8
5
8
5
-1
-2
8
6
2 2
3
2
7
6
FÍNT VEÐUR Það
verður ágætt veður
áfram á landinu
næstu daga. Styttir
víðast upp vestan
til í mildu veðri í
dag en kólnar á
morgun einkum
norðaustanlands.
Hægur vindur á
morgun og víðast
úrkomulítið.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
SAMFÉLAGSMÁL Ættleiðingar barna
erlendis frá eru í uppnámi ef ekki
næst að semja við ríkið um hærri
fjárframlög. Þetta segir formaður
Íslenskrar ættleiðingar (ÍÆ),
Hörður Svavarsson. Komið getur
til þess síðar á árinu að félagið
þurfi að hætta að taka við nýjum
umsóknum frá verðandi foreldrum.
„Ef við fáum ekki hærri fjár-
framlög er þessum kafla í Íslands-
sögunni lokið,“ segir Hörður.
„ Þjónusta til félagsmanna verður
skorin niður og ættleiðingarsam-
bönd við erlend ríki sett í hættu.“
Til stóð að halda aðalfund hjá
ÍÆ í gær, en honum var frestað
vegna ríkjandi óvissu um fram-
tíð fé lagsins vegna uppnáms við
þjónustusamninga ríkisins og við-
varandi fjármagnsskorts. Því var
ákveðið að halda almennan félags-
fund í staðinn þar sem greint yrði
frá stöðunni.
„Ríkið leggur félaginu á hendur
töluvert miklar skyldur og það
kostar mikla peninga að standa
undir þeim,“ segir Hörður. Félagið
hefur verið í samstarfi við ráðu-
neytið í þrjú ár, en nú segir hann
stöðuna orðna mjög alvarlega og
því hafi verið tekin sú ákvörðun
að gera félagsmönnum grein fyrir
henni á fundi gærkvöldsins.
Að sögn Harðar hefur stjórnin
átt í viðræðum við Ögmund Jón-
asson innanríkisráðherra í tölu-
verðan tíma til að reyna að bæta
fjárhagsgrundvöll félagsins, en
hlutverk þess er meðal annars
skýrt í hinum ýmsu lögum og reglu-
gerðum er varða ættleiðingu. Farið
hefur verið fram á það við ráðu-
Ættleiðingar erlendis
frá gætu hætt á árinu
Íslensk ættleiðing gæti þurft að hætta að taka við nýjum umsóknum á árinu
náist ekki samningar við innanríkisráðuneytið. Fara fram á fimmfalt fjárfram-
lag frá ríkinu. Meira en 600 börn hafa komið hingað til lands í gegn um ÍÆ.
FLEST FRÁ KÍNA Á UNDANFÖRNUM ÁRUM Á undanförnum árum hafa flest börn
komið hingað til lands frá Kína, en alls hafa fleiri en 600 börn flust til Íslands frá
fjórum löndum í gegn um Íslenska ættleiðingu. NORDICPHOTOS/GETTY
Meira en 600 börn hafa flust hingað til lands á þeim 34 árum sem Íslensk
ættleiðing hefur verið starfandi. Flest hafa þau komið frá Kína og Indlandi,
en einnig frá Kólumbíu og Tékklandi.
Meira en 600 börn til Íslands á 34 árum
neytið að fimmfalda fjárframlög til
málaflokksins í ár, bæði til stjórn-
sýslunnar og félagsins, en framlög-
in voru engu að síður skorin niður
síðan í fyrra. Að sögn Harðar er
enginn ágreiningur við ráðuneyt-
ið um verkefnin sem ÍÆ á að sinna
eða kostnað við vinnslu þeirra.
Innanríkisráðherra tók málefni
ættleiðingafélagsins fyrir fund rík-
isstjórnarinnar þann 9. mars síðast-
liðinn. Þó hefur ekkert heyrst frá
ráðu neytinu síðan þá. Ekki náðist
í Ögmund í gærkvöld, en hann er
staddur erlendis.
sunna@frettabladid.is
Ef við fáum ekki hærri
fjárframlög er þessum
kafla í íslandssögunni lokið.
HÖRÐUR SVAVARSSON,
FORMAÐUR ÍSLENSKRAR
ÆTTLEIÐINGAR