Fréttablaðið - 29.03.2012, Síða 52

Fréttablaðið - 29.03.2012, Síða 52
29. mars 2012 FIMMTUDAGUR32 32 menning@frettabladid.is Páskamyndin Ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins hefst í dag og er þemað „Páskastemning“. Besta myndin mun prýða forsíðu Fréttablaðsins laugardaginn 7. apríl næstkomandi. Verðlaun fyrir fyrsta sætið er heimaljósastúdíó frá Nýherja; 2x150W ljósastandar, regnhlíf og DVD kennsludiskur. Verðlaun fyrir annað og þriðja sætið eru ferðir í Borgarleikhúsið fyrir tvo. Frestur til að skila inn mynd rennur út klukkan tólf á hádegi þriðjudaginn 3. apríl. Hver ljósmyndari má senda eina mynd inn, fyrsta myndin gildir. Tekið er við myndum í netfanginu ljosmyndasamkeppni@frettabladid.is Nánari upplýsingar um keppnina eru á www.visir.is/ljosmyndakeppni Sinfóníuhljómsveit unga fólksins heldur tónleika í kvöld klukkan átta í Neskirkju. „Hljómsveitin heldur yfirleitt þrenna tónleika á ári, auk þess að fara á þjóð- lagahátíð á Siglufirði,“ segir Björg Brjáns dóttir sem situr í stjórn sveitarinnar. „Hljómsveitin er skipuð nemendum á aldrinum 13 til 25 ára, nemendum sem eru í fram- haldsnámi. Sumir eru komnir í háskólanám erlendis og koma heim til þess að leika á tón- leikunum.“ Efnisskrá kvöldsins er viða mikil. Nýtt verk eftir Halldór Smárason verður frumflutt, leikinn verður flautukonsert eftir Carl Gottlieb Reissiger í flutningi Hafdísar Vig- fúsdóttur flautuleikara og loks verður flutt sjálf Hetju sinfónían, sinfónía nr. 3 eftir Ludwig van Beethoven. Stjórnandi er Gunn- steinn Ólafsson sem stýrt hefur sveitinni frá stofnun hennar 2004. Viðamikil efnisskrá FRUMFLYTJA VERK Sinfóníuhljómsveit unga fólksins leikur í Neskirkju í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Guðrún Pálína Guðmunds dóttir myndlistarmaður verður með listamannsspjall í Flóru, Lista- gilinu á Akureyri, í kvöld frá klukkan 20 til 21. Þar er sýning hennar Faðirinn með mynd- verkum af ætt föður hennar í 8. lið. Hún kveðst eiga ljósmyndir af langafa og langömmu en aftan við þau byggi hún myndir sínar á getgátum og tilfinningum. „ Verkin eru máluð með akríl- litum á svartan pappír,” lýsir lista- konan. „Það er dimmt í salnum og þeir sem koma á sýninguna fá vasaljós og lýsa á myndverkin, þannig öðlast þau dýpt og skapa þrívíddar áhrif.“ Þ e t t a e r fjórða sýning Guðrúnar Pál- ínu sem tengist ættfræðirann- sóknum. „And- arnir minna á sig, þeir lifa áfram í okkur gegnum erfða- fræðina, ekki b a r a e f n i ð heldur líka andann og hugsunina,” segir hún. „Á málþinginu í kvöld ætla ég að útskýra þessa stúdíu og minn lífsferil í leiðinni.“ Sýningin í Flóru stendur til 14. apríl. - gun Andlit úr fortíðinni GUÐRÚN PÁLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR Heimildarleikverkið Tengdó verður frumsýnt á litla sviði Borgarleikhússins í kvöld. Þar er sögð sönn saga ástandsbarns, „eina litaða barnsins í Höfnum“. „Saga tengdamóður minnar hefur heillað mig alveg frá því ég kynntist henni, en það eru um fimm eða sex ár frá því ég fékk þá hugmynd að reyna að útfæra þá sögu fyrir svið,“ segir Valur Freyr Einarsson, höfundur og annar leikara í verk- inu Tengdó, sem verður frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins í kvöld klukkan 20. Um er að ræða heimildarleik- verk, þar sem skyggnst er inn í fjöl- skyldusögu eiginkonu Vals og sam- starfskonu, Ilmar Stefánsdóttur. Þau Valur, Ilmur og Davíð Þór Jóns- son tónlistarmaður mynda kjarna leikhópsins CommonNonsense, sem stendur að baki sýningunni. Ilmur hannar leikmynd og búninga í upp- setningunni nú, leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson og aðalhlutverkið leikur Valur á móti Kristínu Þóru Haralds- dóttur. Leikritið sem úr varð byggir á örlagasögu móður Ilmar, Magneu Reynaldsdóttur. Sumarið 1944 varð móðir hennar, Guðbjörg Gríms- dóttir, ástfangin af bandarískum hermanni og átti í nokkurra mánaða sambandi við hann. Sá var litaður, sem var afar sjaldgæft, því íslensk stjórnvöld höfðu gefið út tilmæli um að hingað skyldu engir litaðir her- menn koma. Um haustið var hann kvaddur í stríðið á meginlandinu. Sagan sagði hins vegar að hann hefði aldrei náð ströndu, því skipið hefði verið skotið í kaf áður en það náði landi. Fimmtíu ára leit Þetta var það eina sem Magnea vissi um föður sinn, en hún hafði alltaf einhverja tilfinningu um að hugsanlega væri hann ekki dáinn. „Á unglingsárum speglaði hún sig í bíómyndum, því hún var ekki lík neinum öðrum í umhverfi sínu. Það sem gerði lífið svo flókið fyrir hana var að hún var eina litaða barnið í Höfnum, þar sem hún bjó, og þær mæðgur voru litnar miklu horn- auga. Barnið stendur alltaf frammi fyrir spurningunni af hverju það er öðruvísi en allir hinir. Hún getur ekki svarað því, því hún skilur ekki forsendurnar. Svo eyðir hún næstu 50 árum í að leita róta sinna, þangað til loksins að hún fær niðurstöðu í málið,“ segir Valur, og hættir hér sögunni, því hann vill ekki gefa upp hvernig leitin endaði. Lítið hefur verið um heimildar- leikhús á Íslandi hingað til. Innblástur frá Finnlandi Hugmyndina að því að setja verkið upp í þessu formi fékk Valur á leiklistarhátíð í Finnlandi fyrir nokkrum árum. „Kveikjan að þessu var sýning sem ég sá úti í Finnlandi á leiklistarhátíð, sem var gjörólík þessari, en var þó líka heimildar- leiksýning. Maðurinn sem gerði þá sýningu fór með okkur í ferða- lag um blaðagreinar, sem fjölluðu allar um leitina að týndum emb- ættismanni. Þetta var ótrúlega falleg sýning sem kveikti hjá mér þá hugmynd að ég þyrfti ekki að setjast niður og skrifa leikrit um þessa sögu, heldur gæti ég notað „staðreyndirnar“ og þau skref sem Magnea tengdamóðir mín hefur tekið í gegnum tíðina í sinni leit og búið til heimildarleikhúsverk. Niður staðan varð þó sú að lokum að ég skrifaði handrit fyrir okkur til að vinna út frá sem varð svo kjöl- festan í vinnu hópsins. Hefði ég byrjað með þá hugmynd þá hefði ég aldrei komist frá landi held ég.“ Flissaði eins og smástelpa Magnea sjálf gaf þeim hjónum fullt leyfi til að vinna með sögu hennar. Valur segir það samt sem áður hafa verið sérkennilega stund að sýna henni verkið að lokum. „Hún var ótrúlega örlát og treysti okkur til að fara með efniviðinn af virðingu og kærleik, sem við auðvitað gerðum. En það var mjög skrítið þegar komið var að fyrsta rennsli og hún sat ein úti í sal og horfði. Ég fékk flisskast eins og smástelpa og rafmagn í hausinn. En hún var sem betur fer mjög ánægð með hvernig við höfðum umgengist sögu hennar, sem skipti auðvitað mestu máli fyrir okkur.“ Fjölskyldusaga á fjalirnar FJÖLMIÐLAKONAN SIRRÝ hefur sent frá sér sína fyrstu bók og ber hún nafnið Laðaðu til þín það góða. Í bókinni fjallar Sirrý um fjölmarga þætti daglegs lífs, framkomu okkar hvert við annað og hvaða augum við lítum á tilverun. MAGNEA Valur Freyr Einarsson og Kristín Þóra Haraldsdóttir í hlutverkum sínum sem Magnea.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.