Fréttablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 29. mars 2012 23
Frumkvöðullinn Vigdís Finn-bogadóttir er nú skotspónn
margra eftir að hafa svarað
spurningum blaðamanns Moni-
tor um „öfgafemínisma“ án þess
að fyrirbærið væri skýrt frekar
né heldur að hún hafi notað sjálft
orðið í svari sínu.
Framboð Vigdísar til forseta
Íslands var róttæk jafnréttisað-
gerð sem skilaði miklum árangri
hvað varðar þjóðfélagsleg áhrif
kvenna, ekki síst á sviði stjórn-
mála. Þegar hún bauð fram
krafta sína var hlutur kvenna á
þingi undir fimm af hundraði. Í
kosningabaráttunni og í embætti
benti hún margsinnis á þennan
lýðræðis halla í vestrænum sam-
félögum.
Hún sagði að það ætti að vera
sjálfsagður hlutur að kjósa konu
til jafns til karla en raunveru-
leikinn væri hins vegar sá að
ekkert jafnrétti ríkti í þessum
málum. Hún væri í framboði
fyrir dætur þjóðarinnar. Hún
lagði á sig óeigin gjarna, óvægna
og kynjapólitíska kosningabar-
áttu – hún var óhrædd við að skil-
greina sig sem afurð kvennafrí-
dagsins og sagðist alltaf vona
að hún gæti verið öðrum konum
fyrirmynd. Framboðið var róttæk
aðgerð sem bæði afhjúpaði og
braut upp fastmótað kynjakerfi
íslenskra stjórnmála.
Vigdís hefur verið málsvari
kvennahreyfingarinnar og stutt
ýmis samtök og stofnanir sem
vinna að jafnréttismálum með
ráðum og dáð. Í umræddu viðtali
kemur fram sú skoðun hennar að
á meðan launajafnrétti er ekki
náð ríki ekki jafnrétti meðal
kynja. Rúmum þrjátíu árum eftir
kjör Vigdísar er hún sami róttæki
femínistinn og áður. Sitt sýnist þó
hverjum enda einstaklingar innan
kvennahreyfingarinnar jafn mis-
jafnir og þeir eru margir. Páll
Valson ræðir í bók sinni Vigdís,
kona verður forseti um mikil-
vægi Vigdísar sem fyrirmyndar
í allri jafnréttisbaráttu og segir
að fyrir myndir séu oft í tvíbentri
stöðu. Hinir dáðu verði stundum
fangar aðdáenda sinna og sæta
ásökunum ef breytni þeirra er á
annan veg en aðdáendum hugnast.
Vigdís hefur einkum verið
gagnrýnd fyrir það að hafa ekki
gert nóg fyrir konur hvorki í
embætti né eftir að hún hvarf
frá Bessastöðum. Í bók Páls
segir hún: „Ég er auðvitað kona
en ég var kosin forseti Íslands,
karla jafnt sem kvenna, og hlaut
að gera báðum kynjum jafnhátt
undir höfði. […] Ég hef barist
fyrir konur með því að vera bara
ég. Kvenréttindakonum, hvar sem
ég kem, finnst sjálfsagt að ég sé
ein af þeim og sjálfsagt að ég tali
fyrst og fremst um konur en ekki
okkur öll sem búum saman í þjóð-
félagi, karlar og konur. En það er
fremur minn stíll og hefur alltaf
verið. […] Ég held að afstaða mín,
að tala frekar máli kvenna út
frá almennu breiðu sjónarhorni,
nýtist konum betur.“ Hún segist
hafa óendanlegan metnað fyrir
hönd íslenskra kvenna en sam-
hliða því hafi hún áhyggjur af
ungum drengjum sem velji síður
að nema í háskóla og skili lakari
námsárangri en stúlkur. Við sem
höfum lengi barist fyrir sjálf-
stæði ungra stúlkna hljótum að
berjast líka fyrir sjálfstæði ungra
drengja, segir Vigdís.
Ef til vill er hér komin ein
skýringin á þjóðhylli Vigdísar og
farsælum ferli hennar sem for-
seta Íslands. Hún var ekki alltaf
óumdeild á forsetastóli en þjóðin
skynjaði að hún hafði verið þátt-
takandi í heimsviðburði og var
stolt af fyrsta þjóðkjörna kven-
forsetanum í heimi.
Ekkert í orðum Vigdísar í við-
talinu í blaðinu Monitor ætti að
koma á óvart. Hún hefur margoft
útskýrt þá skoðun sína að án þátt-
töku karla nái jafnréttisbaráttan
ekki markmiðum sínum. Hún
hefur við ýmis tækifæri viðrað
þá ósk sína að haldin væri alþjóð-
leg ráðstefna um stöðu kvenna
með þeim skilyrðum að eingöngu
karlar sæktu hana, þannig yrðu
þeir að setja sig inn í málin og
koma með lausnir. Í umræddu
viðtali er haft eftir henni að hinn
gullni meðalvegur sé alltaf sterk-
astur – að allar öfgar fari öfugt
inn í hugsunargang sam félagsins,
barátta sem sé mjög öfgafull
snúist upp í andhverfu sína.
Hér talar kona sem hefur verið
virkur þátttakandi í mennta- og
menningarmálum hér heima og
á alþjóðavettvangi í u.þ.b. hálfa
öld. Hún var þjóðarleiðtogi á
annan áratug og er enn mikils
virtur fyrirlesari og í starfi hjá
Mennta-, menningar- og vísinda-
stofnun Sameinuðu þjóðanna,
UNESCO, sem velgjörðarsendi-
herra tungumála. Vigdís er í
miklum samskiptum við fjölda
fólks um allan heim. Við Íslend-
ingar eigum ekki marga slíka
fulltrúa. Þegar hún biður okkur
að staldra við og stíga gætilega til
jarðar – ættum við þá ef til vill að
leggja við hlustir?
Ísbrjóturinn Vigdís og öfgarnar
Jafnrétti
Guðbjörg Lilja
Hjartardóttir
stjórnmálafræðingur
Rósa Guðrún
Erlingsdóttir
stjórnmálafræðingur
Opið laugard. kl. 10-14
www.ms.is
Sumir líta á Hrísmjólkina sem sparimorgunmat,
aðrir sem gómsætt millimál. En það er vel þekkt
leyndarmál að Hrísmjólkin er líka glæsilegur
eftirréttur í skál sem þú getur reitt fram hraðar
en gestirnir ná að segja: „Takk fyrir mig.“
...hvert er
þitt eftirlæti?
...endilega fáið ykkur
11
-0
56
8
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA