Fréttablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 18
29. mars 2012 FIMMTUDAGUR18 Umsjón: nánar á visir.is Sími 570 2400 · oryggi.is Stöndum vaktina allan sólarhringinn Sérfræðingar Öryggismiðstöðvarinnar kynna nýjar vörur, hjúkrunarrúm og rafskutlur. Iðjuþjálfi verður á staðnum og veitir ráðgjöf. Allir velkomnir. PIPA R\TBW A • SÍA • 1210 20 Opið hús hjá Öryggismiðstöðinni, Askalind 1, á morgun föstudaginn 30. mars, kl. 9–17 Aðalfundur Geðverndarfélags Íslands verður haldinn laugardaginn 31. mars næstkomandi, að Hátúni 10, 9. hæð kl. 10 árdegis. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Að aðalfundarstörfum loknum flytur Styrmir Gunnarsson erindið „Aðstandendur geðsjúkra – falinn vandi?” Félagar eru hvattir til að mæta. Stjórn Geðverndarfélags Íslands Aðalfundur Geðverndarfélags Íslands Arion banki hefur stefnt Dróma og Fjármálaeftirlitinu (FME) fyrir dómstóla vegna vaxtakjara á um 80 milljarða króna skuldabréfi sem gefið var út vegna yfirtöku Arion á innlánum Spron. Drómi, sem heldur á útlánum hins fallna sparisjóðs, hefur á móti stefnt bankanum og FME vegna sama máls. Munnleg- ur málflutningur í fyrra málinu fór fram í fyrradag og fer fram í hinu seinna á morgun, föstudag. Um gríðar legar fjárhæðir er um að ræða, enda er hvert prósent í vöxt- um um 800 milljóna króna virði. Þann 21. mars 2009 ákvað FME að færa innlán SPRON yfir til Arion en útlán bankans urðu eftir í félagi sem í dag heitir Drómi. Til að mæta innlánunum, sem eru skuld á efna- hagsreikningi Arion, var gefið út skuldabréf sem fært er á eignarhlið Arion. Virði þess er tæplega 10% af heildareignum bankans. Í ársreikningi Dróma fyrir árið 2010 er umrædd skuld bókfærð á 77,4 milljarða króna. Hún er ekki sérstaklega tilgreind í ársreikningi Arion heldur felld undir lið sem kallast „óskráð skuldabréf“. Virði þeirra samkvæmt ársreikningnum Tekist á um vexti á tugmilljarða skuld Arion og Drómi hafa stefnt hvor öðrum fyrir dómstóla vegna vaxtakjara á um 80 milljarða skuldabréfi. Báðir aðilar eru óánægðir með vaxtaákvarðanir FME. Skuldabréfið var útgefið vegna yfirtöku Arion á innlánum SPRON. FALLINN SPRON féll í mars 2009. Í kjölfarið voru innlán viðskiptavina sjóðsins færð til Arion en eignir hans skildar eftir hjá því sem í dag heitir Drómi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Drómi átti 115,4 milljarða króna í lok árs 2010, samkvæmt síðasta birta árs- reikningi félagsins. Eignir þess höfðu þá dregist saman um tæplega 58 millj- arða króna frá árinu áður vegna uppgreiðslu á langtímaskuldum, að mestu við Arion banka. Stærsta einstaka eign Dróma er krafa á þrotabú Frjálsa fjárfestingabankans sem metin var á 52 milljarða króna í lok árs 2010. Skuldir Dróma voru alls 121,5 milljarðar króna á sama tíma. Um 77,4 milljarðar króna, 64% heildarskulda félagsins, eru við Arion banka vegna innlána SPRON sem voru færð þangað. Drómi greiddi 10,4 milljarða króna í vaxtagjöld og verðbætur á árinu 2010 og ljóst að stór hluti þeirrar upp- hæðar hefur runnið til Arion banka. Drómi tapaði 10,6 milljörðum króna á umræddu ári, eða nánast sömu upphæð og félagið greiddi í vaxtagjöld og verðbætur. Eigendur Dróma eru kröfuhafar SPRON. Tíu milljarðar í vexti og verðbætur er um 85 milljarðar króna og því ljóst að Dróma-skuldabréfið er uppi- staðan í þessum lið reikningsins. Í þeim skilmálum sem settir voru þegar skuldabréfið var gefið út var FME gefið einhliða vald til að ákvarða hverjir vextir þess eru. Samkvæmt ákvörðun eftirlits- ins átti skuldabréfið að bera fasta árlega Reibor-vexti (vexti á milli- bankamarkaði með krónur) auk 175 punkta vaxtaálags þar til að skuldin væri að fullu greidd. Drómi fór fram á það í desember 2009 að FME endurskoðaði fyrri ákvörðun um þá vexti sem skuldabréfið átti að bera. Í febrúar 2011 ákvað eftir- litið að afnema vaxtaálagið þar til bréfið er að fullu greitt. Við þetta sætti Arion banki sig ekki og stefndi bæði FME og Dróma til að reyna að fá ákvörðuninni frá því í febrúar í fyrra hnekkt. Drómi hefur auk þess stefnt Arion og FME og vill fá öllum vaxtaákvörðunum á skuldabréfinu hnekkt. Til vara krefst félagið að lægri vextir séu á bréfinu frá útgáfu þess. thordur@frettabladid.is KRÓNUR fyrir evru er aflandsgengi krónunnar með tilliti til evru.247,5 Sigurður Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri hjá Íslenskum aðalverktökum, hlaut nýverið alþjóðlega A-stigs vottun sem verkefnastjóri (e. Certified Proj- ect Director). Hann er fyrsti Íslendingurinn sem hlýtur slíka vottun sem veitt er að alþjóðlegu samtökunum International Pro- gram Management Association (IPMA). Um er að ræða hæsta stig sem hægt er að fá sem vott- aður verkefnastjóri og aðeins um 200 manns í heiminum eru með A-vottun. Þetta kemur fram í til- kynningu frá Verkefnastjórnunar- félagi Íslands. E k k i e r boðið upp á A- vottunar ferlið á Íslandi, og því fór Sigurður í gegnum það í Danmörku. Ferl ið hefur s t a ð i ð y f i r s íðust u sex mánuði. Sam- kvæmt tilkynn- ingunni er vottun verkefnastjórna „staðfesting á að viðkomandi fyrir tæki notar starfsmenn til verkefnastjórnunar sem uppfylla ákveðnar hæfniskröfur“. -þsj Um 200 verkefnastjórar í heiminum lokið A-vottun: Fyrsti Íslendingurinn fær A-vottun frá IPMA SIGURÐUR RAGNARSSON EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Íslands stóð í gær fyrir tveimur gjald- eyrisútboðum. Í fyrra útboðinu bauðst bankinn til þess að kaupa evrur fyrir íslenskar krónur eða ríkisskuldabréf en í því seinna að kaupa krónur fyrir evrur. Alls 79 tilboð, að fjárhæð 92,9 milljóna evra, bárust í fyrra til- boðinu. Var tilboðum að fjárhæð 22,5 milljónum evra tekið og var samþykkt verð 239 krónur fyrir evru. Í seinna útboðinu bárust alls 40 tilboð að fjárhæð 26,3 milljörðum króna. Var til- boðum tekið fyrir 4,9 milljarða á genginu 235 krónur fyrir evru. Útboð Seðlabankans eru liður í áætlun stjórnvalda um losun gjaldeyrishafta. Bankinn hafði boðist til þess að kaupa saman- lagt allt að 100 milljónir evra og 25 milljarða króna í útboðunum. - mþl Gengið á bilinu 235 til 239 krónur fyrir evru: Gjaldeyrisútboð í gær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.