Fréttablaðið - 29.03.2012, Page 26
26 29. mars 2012 FIMMTUDAGUR
Ég bjó einu sinni í Þing holtunum með móður minni. Við þá götu
eru stöðumælar sem hafa alla
tíð valdið mér miklu hugarangri.
Þegar vinir og fjölskylda hugðust
heimsækja mig þurftu þau að
sætta sig við það að borga fyrir
það að leggja bílnum í ásættan-
legri fjarlægð frá húsinu. Þessi
tiltekna gata er bara venjuleg
íbúðargata og hún liggur að Skóla-
vörðustígnum. Stöðu mælarnir
eru þó ekki alslæmir. Þegar
ég bjó þarna sá ég að klinkið
sem gestirnir þurftu að greiða í
mælana er fórnar kostnaður þess
að stæðin séu ekki teppt
allan liðlangan daginn
af fólki sem vinnur í
nágrenninu. Ég lærði
því að lifa í sátt við þá,
því það er jú illskárri
kostur að bjóða gestum
upp á gjaldskyld stæði
frekar en engin stæði.
Það er rétt að taka
það strax fram að ég
hef setið báðum megin
borðsins í þessu máli því
nú er ég flutt úr miðbæn-
um og því búin að taka
að mér hlutverk gests
stöðumæla svæðisins.
Þegar ég fer að heim-
sækja móður mína, sem
gerist nánast daglega, þá
verð ég að borga í stöðu-
mæli ellegar sitja uppi með himin-
háar sektir. Í mínu tilfelli gerir
þetta það að verkum að ég reyni að
koma ekki nema þegar stöðumæl-
arnir eru í „fríi“, sem er eftir kl. 18
á virkum dögum.
Þetta er það sem kaupmenn
miðbæjarins þurfa líka að sætta
sig við. Eðlilega vill enginn hafa
stöðumæla fyrir utan verslunina
sína en ef það er það sem þarf til
þess að stæðin séu ekki í notkun
allan daginn af öðrum en við-
skiptavinum þá eru kostir þeirra
fleiri en gallarnir.
Hlutverk gjaldskyldra stæða
Sýn mín á gjaldskyld stæði er því
þessi; gjaldskyldan er í þágu okkar
allra. Ég hef aldrei litið þannig á
það að ég sé að borga fyrir það eitt
að fá að leggja bílnum mínum þegar
ég set pening í stöðumæli enda
væri það fráleitt að það kostaði að
leggja í einu hverfi en ekki öðru.
Ég hef litið á það þannig að þetta
væri allt í þágu íbúa svæðisins, af
ofangreindum ástæðum, og ekki
síður þeirra sem reka fyrir tæki
þar. Að leggja í þessi stæði á ekki
að vera mikill kostnaður nema að
þú sért í því allan daginn. Þeir sem
þurfa að stoppa á þessum gjald-
skyldu stæðum í lengri tíma hafa
þess kost að leggja í bílastæðahús
sem er mun hagstæðara. Reyndar
finnst mér að það ætti að vera frítt
fyrsta klukkutímann til þess að
fleiri myndu nota húsin en það er
kannski aðeins út fyrir efnið að svo
stöddu.
Skert samkeppnishæfni
verslana svæðisins
Stjórn FUF í Reykjavík birti
nýlega eftirfarandi ályktun:
Stjórn Félags ungra framsóknar-
manna í Reykjavík mótmælir
öllum hugmyndum um hækkun
bílastæðagjalda í miðborg Reykja-
víkur.
Þessi aðgerð mun fæla fólk frá
hverfinu og veikja samkeppnis-
hæfni verslana í miðborginni.
Ungir framsóknarmenn í Reykja-
vík minna á það að
stöðumælarnir eru nú
þegar að þjóna tilgangi
sínum sem er að rýma
stæðin reglulega og
tökum við því undir með
verslunareigendum að
hækkunin sé fullkom-
lega óþörf.
Tilefni ályktunar-
innar er að nú stendur
til að hækka gjald fyrir
bílastæðin úr 150 kr. á
klst. í 250 kr. og lengja
gjaldskyldan tíma. Til-
lögunni hefur nú þegar
verið beint til borgar-
ráðs og ef hún verður
staðfest er áformað að
þetta taki gildi 15. apríl
næstkomandi. Að nota
stöðumælana til þess að auka inn-
komu borgarinnar þegar þrengir
að er augljóslega á skjön við þær
hugmyndir sem ég hef um notagildi
mælanna. Þeir verslunareigendur
sem þegar hafa tjáð sig um málið
eru sammála um að flæðið í og úr
stæðunum er fullkomlega ásætt-
anlegt í núverandi ástandi og sem
fyrrverandi íbúi og tíður gestur
svæðisins er ég því sammála.
Úr tilkynningu frá Reykja-
víkurborg er þessi hækkun m.a.
réttlætt með því að skýra frá því
að þessi gjöld séu mun hærri í
borgum skandinavískra frænda
okkar. Þetta þykja mér þunn rök
í ljósi stöðu margra verslana mið-
borgarinnar okkar. Við vitum öll,
sem kærum okkur um að vita,
að það hefur verið mikið vanda-
mál að fá Íslendinga til þess að
klæða sig í gallann yfir vetrar-
mánuðina og nota Laugaveginn til
jafns við verslunarmiðstöðvarnar.
Illa ígrundaðar og illa tímasettar
hækkanir gætu fælt þá fáu sem
þó gera það frá sem myndi fljótt
skila sér út í verðlagið og setja af
stað dómínóáhrif í gegnum veikar
stoðir samfélagsins.
Þessi aðgerð
mun fæla
fólk frá
hverfinu og
veikja sam-
keppnishæfni
verslana í
miðborginni.
Ágætu Austfirðingar og lands-menn allir! Nú hefur það verið
staðfest: Vegurinn frá Norðfirði
til Stöðvarfjarðar er hættulegasti
vegarkafli landsins, samkvæmt
niðurstöðum rannsókna sem
nýverið birtust í Læknablaðinu.
Því miður reyndist illur grunur
okkar réttur. Fyrir ókunnuga er
rétt að taka fram að vegurinn
liggur um sveitarfélagið Fjarða-
byggð, nánast endilangt.
Frá því að ég hóf störf sem
sveitar stjórnarmaður vorið 2010
hef ég smám saman sannfærst um
að stjórnmálamenn eigi sem allra
minnst að skipta sér af vegagerð.
Þeirra aðkoma að málaflokknum
á aðeins að vera með þeim hætti
að samþykkja forgangsröðun
verkefna út frá fræðilegum niður-
stöðum fagfólks. Stjórnmálamenn
eiga að hafa öryggissjónarmið og
ekkert annað að leiðarljósi enda
er það frumskylda stjórnvalda að
gæta að öryggi íbúanna.
Stjórnmálamenn, þingmenn og
sveitarstjórnarmenn ættu að sam-
einast um þessa rökréttu aðferð
sem tryggir að öryggissjónarmið
ráði forgangsröðun vegafram-
kvæmda. Þennan hátt ætti að við-
hafa þar til tryggt verður að allir
landsmenn geti ekið til vinnu eða
náms, a.m.k. innan síns sveitarfé-
lags, án þess að fara um stórhættu-
lega og löngu úrelta vegi. Það er
því hlutverk sérfræðinga og fag-
fólks að meta hvar mesta hættan
er en hlutverk okkar stjórnmála-
manna er að taka ákvörðun um
að öryggissjónarmið séu alltaf í
fyrirrúmi og látin ráða röð fram-
kvæmda og annað ekki.
Fyrir skömmu fór rúta með átta
farþega út af veginum á Odds-
skarði og litlu munaði að stórslys
hlytist af. Vegurinn um Oddsskarð
og gömlu göngin eru hættulegasti
hluti hættulegasta vegkafla lands-
ins. Út frá öryggissjónarmiðum
ætti að vera búið að gera ný göng
fyrir löngu. Þá eru ótalin önnur
rök, t.d. efnahagsleg rök og loforð
við sameiningu sveitarfélaga en
undirritaður og fleiri hafa skrifað
um þau og verður það því ekki
tíundað frekar í þessari stuttu
grein þótt rökin séu knýjandi. Það
voru engin rök fyrir því að seinka
framkvæmdum árið 2009 og það
eru engin rök fyrir því að fresta
þeim enn frekar. Hönnun vegarins
og ganganna er lokið og það er
ekkert sem stendur í vegi fyrir
því að verklegar framkvæmdir
hefjist strax á næsta ári, og þótt
fyrr hefði verið.
Fjarðabyggð er sveitarfélag
í blóma. Þar hefur verið mikil
uppbygging á síðustu árum og
í sveitar félaginu er mikil verð-
mætasköpun. Mjóeyrarhöfn er
önnur stærsta útflutningshöfn
landsins og 22,4% af heildarkvóta
landsmanna koma á land í sveitar-
félaginu. Íbúar Fjarðabyggðar búa
í sátt við umhverfið og náttúruna
en vilja losna við erfiðan fjallveg
og einbreið úrelt jarðgöng sem
tengja saman byggðarkjarna í
Fjarðabyggð.
Öryggissjónarmið eiga að ráða
forgangsröðun vegaframkvæmda
Samgöngur
Elvar
Jónsson
bæjarfulltrúi í
Fjarðabyggð
Höfnum hækkun
bílastæðagjalda
Samfélagsmál
Snædís
Karlsdóttir
formaður Félags ungra
framsóknarmanna í
Reykjavík
Konfúsíusarstofnunin norðurljós sýnir heimildamyndina
Sýnd í Odda 101, í dag kl. 17:00
Kína: Byltingaöldin - 3. hluti
Undir rauða fánanum
Hádegisfyrirlestur Steingríms Þorbjarnarsonar
Nám í Kína árið 1988
Lögberg 103, föstudaginn 30. mars
kl. 12:00-13:00
Allir velkomnir
Aðgangur ókeypis
Söluferli TM hafið
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Stoðir hf. hafa falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu
á öllu hlutafé sínu í Tryggingamiðstöðinni hf. (TM). Um er að ræða
99,94% útistandandi hlutaár í félaginu og er það til sölu í heild eða
að hluta.
TM er eitt stærsta tryggingafélag landsins. Félagið byggir á 56 ára
farsælli sögu, er árhagslega sterkt og rekstur þess er traustur. Í lok árs
2011 nam eigið fé TM 12,2 milljörðum króna og var eiginárhlutfallið
41,8%.
Áhugasömum árfestum er bent á að setja sig í samband við Fyrir-
tækjaráðgjöf Landsbankans, á netfangið tm@landsbankinn.is. Nálgast
má stutta sölukynningu, trúnaðaryfirlýsingu og eyðublað vegna hæfis -
mats á vef bankans, landsbankinn.is. Þeir árfestar sem uppfylla skil yrði
fyrir þátttöku í söluferlinu fá afhent ítarleg kynningargögn um TM
og gera óskuldbindandi tilboð á grundvelli þeirra gagna.
Frestur til að skila óskuldbindandi tilboðum
er til kl.12:00 föstudaginn 4. maí 2012.
Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur