Fréttablaðið - 29.03.2012, Qupperneq 37
Geðhjálp ●FIMMTUDAGUR 29. MARS 2012 5
Jólastund með Styrmi Gunnarssyni.
Dagleg starfsemi hússins miðar að því gefa gestum tækifæri til að rjúfa félagslega einangrun, þroska hæfileika sína og njóta
fræðslu og stuðnings af ýmsu tagi. Geðhjálp er með starfsemi sína í húsnæði að Túngötu 7.
Anna Þrúður Þorvaldsdóttir, einn af stofnendum og frumkvöðlumVinjar (lengst t.v.), hlaut
hvatningarverðlaun Geðhjálpar í október síðastliðnum.
G eðhjálp er með aðsetur að Túngötu 7 og dagleg starf-semi hússins miðar að því
að gefa gestum tækifæri til að
rjúfa félagslega einangrun, þroska
hæfileika sína og njóta fræðslu og
stuðnings af ýmsu tagi. Geðhjálp
heldur einnig úti ráðgjöf og hags-
munagæslu fyrir fólk sem glímir
við geðraskanir og aðstandendur
þeirra. Hjá Geðhjálp starfa tveir
ráðgjafar, Sólrún Ósk Lárusdóttir
og Kristín Tómasdóttir, sem sinna
þessari þjónustu. Þá heldur Jó-
hanna G. Erlingsdóttir utan um
rekstur skrifstofunnar, fjármál
félagsins og símavörslu.
HAGSMUNAGEÐ
Geðhjálp hefur á undanförnum
misserum lagt áherslu á að efla
þjónustu sem snýr að hagsmuna-
gæslu þeirra sem þurfa á geð-
heilbrigðiskerfinu að halda og að-
standendum þeirra. Ráð gjafar
Geðhjálpar reyna að greiða fyrir
að fólk fái þá geðheilbrigðis-
þjónustu sem það á rétt á. Sum
mál leysast skjótt en önnur eru
yfir gripsmikil og tímafrek. Ráð-
gjafar geta meðal annars farið
yfir fyrirliggjandi gögn í máli,
mætt á fundi sem óháðir aðilar og
haft samband við hlutað eigandi
aðila ef þörf krefur. Nýlega hafa
samtökin tekið sérstaklega til
skoðunar hagsmunamál fanga og
þeirra sem eru nauðungarvistaðir.
Geðhjálp eru landssamtök og
vilja því efla þjónustu í geðheil-
brigðismálum á landinu öllu. Sú
þjónusta er afar misjöfn eftir
landshlutum og sveitarfélögum.
Geðhjálp er að vinna að því að
kortleggja geðheilbrigðis þjónustu
á landsbyggðinni. Í kjölfarið er
markmiðið að þrýsta á úrbætur
þar sem þörf er á svo og að benda
á það sem vel er gert og nota sem
fyrirmynd.
RÁÐGJAFARGEÐ
Geðhjálp heldur úti öflugri ráð-
gjöf og stuðningi við fólk sem
stríðir við geðsjúkdóma og að-
standendur þeirra. Ráðgjöfin er
veitt í gegnum síma, tölvupóst
eða á staðnum sé þess óskað. Við-
talsþjónusta felur ekki í sér með-
ferð en ráðgjafar reyna að leggja
mat á vandann með ráðþegum og
ákveða síðan næstu skref í sam-
einingu. Ráðgjafar reyna að hafa
yfirsýn yfir þá þjónustu og úrræði
sem eru í boði í geðheilbrigðis-
kerfinu og vísa skjólstæðingum til
viðeigandi aðila. Hægt er að hafa
samband símleiðis mánudaga til
fimmtudaga frá klukkan 9 til 16
og föstudaga frá klukkan 9 til 12.
Einnig er hægt að senda ráðgjöf-
um fyrirspurnir í gegnum heima-
síðu Geðhjálpar eða gegnum net-
fangið gedhjalp@gedhjalp.is Við-
töl eru veitt eftir samkomulagi.
FRÍSTUNDAGERÐ
Geðhjálp er griðastaður fyrir fólk
sem hefur glímt við eða stríðir
við geðsjúkdóma. Samtökin
haldi úti öflugu félagsstarfi. Á
fyrstu hæð hússins við Túngötu
7 er notalegt mötuneyti þar sem
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir ráðs-
kona eldar góm sætan heimilis-
mat í há deginu mánudaga til
fimmtudaga og hægt er að fá á
vægu verði. Þá er alltaf heitt á
könnunni, hægt að spjalla við
gesti og gangandi, grípa í spil,
lesa blöðin, þvo þvott og fleira.
Hamingjuhópur hittist í húsinu
alla mánudaga klukkan ellefu
þar sem hamingjan er rædd frá
ýmsum hliðum til að hefja vikuna
á jákvæðum nótum. Sjálfboða-
liðinn Monika Danielwicz skipu-
leggur að auki ýmsa frístunda-
viðburði, bíódaga, gönguferðir
og margt fleira.
FORVARNARGEÐ
Geðhjálp leggur áherslu á for-
varnir til að fyrirbyggja frekari
geðheilbrigðisvanda á Íslandi.
Ráðgjafar Geðhjálpar veita í
þeim tilgangi fræðslu um Geð-
hjálp og geðheilbrigðimál í skóla
og fyrirtæki sé þess óskað. Hvort
tveggja er hægt að sækja í höf-
uðstöðvar samtakanna að Tún-
götu 7. Undan farið hafa samtökin
unnið að sérstakri aðgerðaráætl-
un sem er sérsniðin fyrir fyrir-
tæki þegar geðræn vandamál
koma upp á vinnustöðum.
Í húsnæði Geðhjálpar starfa
nokkrir sjálfshjálparhópar,
sumir sjálfstætt og aðrir undir
handleiðslu ráðgjafa Geðhjálpar.
Félagsfælnihópur hittist á mið-
vikudagskvöldum og geðhvarfa-
hópur á fimmtudags kvöldum.
Einnig stendur til að fara af
stað með enskumælandi hóp á
næstunni.
Fjölbreytt starfssemi og vinalegt andrúmsloft
Mugison tekur lagið fyrir gesti
Geðhjálpar.
endurskoðun og skattskil Síðumúla 25
Krit ehf Ármúla 10
Landsnet hf Gylfaflöt 9
Landssamtökin Þroskahjálp Háaleitisbraut 13
Leiguval ehf Kleppsmýrarvegi 8
Leikskólinn Vinaminni ehf Asparfelli 10
Lital Bílasalan ehf Eirhöfða 11
Líf og sál sálfræðistofa ehf Fiskislóð 75
Ljósmyndaver Hörpu Hrundar ehf Fákafeni 11
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Sölvhólsgötu 4
Menntaskólinn við Hamrahlíð Hamrahlíð 10
Motus Laugavegi 97
Nexus afþreying ehf Hverfisgötu 103
Nýi ökuskólinn ehf www.meiraprof.is Klettagörðum 11
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins Kringlunni 7
Og fjarskipti ehf Skútuvogi 2
ORKUVIRKI ehf Tunguhálsi 3
Ó. Johnson & Kaaber - Sælkeradreifing
Tunguhálsi 1
Ósal ehf Tangarhöfða 4
Parlogis hf - Lyfjadreifing ehf Krókhálsi 14
Plúsmarkaðurinn Hátúni 18b
Prentmet ehf Lynghálsi 1
Rafstilling ehf Dugguvogi 23
Rafsvið sf Þorláksgeisla 100
Raftækjaþjónustan sf Lágmúla 8
Ráðgjafar ehf Garðastræti 36
Renniverkstæði Jóns Þorgrímssonar ehf
Súðarvogi 18
Rolf Johansen & Co ehf Skútuvogi 10a
Rue de Net Reykjavík ehf Vesturgötu 2a
Samhjálp Stangarhyl 3a
Samtök atvinnulífsins Borgartúni 35
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja,SSF
Nethylur 2 e
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur Síðumúla 31
Seljakirkja Hagaseli 40
SFR stéttarfélag í almannaþjónustu
Grettisgötu 89
SÍBS Síðumúla 6
Sínus ehf Grandagarði 1a
Sjómannadagsráð Laugarási Hrafnistu
Sjómannasamband Íslands Borgartúni 18
Skotfélag Reykjavíkur Engjavegi 6
Skólavefurinn.is Laugavegur 163
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins Skógarhlíð 14
Sportbarinn Álfheimum 74
Stólpi ehf Klettagörðum 5
Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga
Fossaleyni 17
Suzuki bílar hf Skeifunni 17
Svínahraun ehf
Talnakönnun hf Borgartúni 23
Tannlæknastofa Björns Þ Þórhallssonar Háteigsvegi 1
Tannþing ehf, tannlæknastofa Þingholtsstræti 11
Terra Export ehf Ljósuvík 38
Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar Engjateigi 1
Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
Skólavörðurholti
Umslag ehf Lágmúla 5
V.R. Kringlunni 7
Veiðiþjónustan Strengir Smárarima 30
Veitingahúsið Caruso Þingholtsstræti 1
Verslunarskóli Íslands Ofanleiti 1
Verslunin Brim, Laugavegi 71 og Kringlunni
Vélsmiðjan Harka hf Hamarshöfða 7
Vímulaus æska - Foreldrahús Borgartúni 6
www.ibudagisting.is Síðumúla 14, 2. hæð
Yndisauki, Alhliða veisluþjónusta Vatnagörðum 6
Seltjarnarnes
Seltjarnarneskirkja Kirkjubraut 2
Vogar
V.P.vélaverkstæði ehf Iðndal 6
Kópavogur
Axis-húsgögn ehf Smiðjuvegi 9d
Bílamálunin Varmi ehf Auðbrekku 14
Við þökkum stuðninginn