Fréttablaðið - 29.03.2012, Page 38
29. MARS 2012 FIMMTUDAGUR6 ● Geðhjálp
F
élagasamtök þurfa sífellt
að finna nýjar og hugvit-
samar leiðir til að fjár-
magna sig og starf Geð-
hjálpar væri ekki mögulegt ef
að við hlytum ekki styrki ýmiss
konar. Síðastliðið haust setti Geð-
hjálp á fót í fyrsta sinn átaks-
og söfnunarverkefnið „Geðveik
jól“ . Viðtökurnar voru framar
björtustu vonum og átakið er nú
komið til að vera.
En hvað eru eiginlega Geðveik
jól? Geðveik jól er söngvakeppni
milli fyrirtækja þar sem starfs-
menn þátttökufyrirtækjanna
leggja Geðhjálp lið með flutningi
á jólalagi, ýmist frumsömdu eða
tökulagi. Síðan er kosið um besta
lagið eða besta flutninginn og
allur ágóði af kosningunni rennur
til Geðhjálpar til að standa
straum af kostnaði við fjölbreytt
starf okkar. Þetta árið tóku fjór-
tán fyrirtæki þátt og má ætla að á
milli 100- 200 starfsmenn þeirra
fyrirtækja hafi á einn eða annan
hátt lagt hönd á plóg.
Markmið átaksins er tvíþætt.
Í fyrsta lagi styrktarsöfnun eins
og komið hefur fram, en „Geð-
veik jól“ eru ekki síður sett á
fót til þess að hvetja til um-
ræðu, helst vitundarvakningu
um geðsjúkdóma á sem breið-
ustum grundvelli. Við viljum að
það sé eðlilegt að tala um geð-
sjúkdóma. Með þessari hispurs-
lausu, mannlegu og gleðilegu
nálgun viljum við hvetja fólk til
þess að brjótast úr viðjum feimni
og óöryggis þegar það ræðir um
geðræn veikindi og margvís-
leg áhrif þeirra á okkur öll. Við
viljum leggja til grundvöll til
umræðu þar sem allir eru vel-
komnir, og hvetja helst þá til að
taka þátt sem áður hafa ekki haft
sig mikið í frammi. Þess vegna
leitum við til hinnar venjulegu
Gunnu og hins venjulega Jóns á
hinum ýmsu vinnustöðum. Við
viljum að umræða skapist og að
fólk tali saman um allt sem við-
kemur geðsjúkdómum. Um stöðu
notenda við ýmiss konar kerfi í
okkar samfélagi, um margvíslega
og mismunandi sjúkdóma, um
möguleika, um stuðning, um drif-
kraft, um allt sem þarf að ræða
um svo að við getum hjálpast sem
best að.
Það þekkja nefnilega allir til
geðsjúkdóma, þeir eru ekki einka-
mál fárra. Allir eiga vini,vinnu-
félaga, börn, frænku, frænda,
foreldra eða aðra að sem glíma
við hin ýmsu geðrænu veikindi.
Það sem meira er; langflestir eru
sammála um grundvallaratriðið;
að hlúa verði að þessum stóra
hópi fólks og að við sem samfélag
gerum það best saman.
Starfsmenn þeirra fjórtán
fyrir tækja sem tóku þátt í Geð-
veikum jólum 2011 sýndu þennan
samhug og samtakamátt þegar
þeir lögðu lóð sín á vogar skálar
okkar í Geðhjálp. En það sem
meira er, allir höfðu mikið gaman
af og fólk talaði um skemmtilegt
hópefli sem sameinað hafði ólíkt
fólk innan þessara fyrirtækja.
Það er svo annar bónus við átaks-
verkefnið sem starfsmenn Geð-
hjálpar eru ánægðir með að hafa
stuðlað að og hlakka til að gera
aftur fyrir næstu jól.
Geðveik jól komin til að vera
Jón Gnarr borgarstjóri brá sér í gerfi Geðgóðs jólasveins í þágu málefnisins.
Markmið átaksins er tvíþætt. Annars vegar styrktarsöfnun og hins vegar til að hvetja til umræðu og vitundarvakningu um geðsjúkdóma á sem breiðustum grundvelli.
Eimskip hampaði fyrsta sæti en hér er Björt með fulltrúum Landsbankans sem lentu
í öðru sæti.
● VIN HLAUT HVATNINGAR
VERÐLAUNIN Geðhjálp veitti sín
árlegu hvatningarverðlaun 12. október
síðastliðinn og féllu þau í skaut Vinjar,
athvarfs Rauða kross Íslands fyrir fólk
með geðraskanir. Mikilvægt er að halda
úti fjölbreyttri starfsemi fyrir notendur
geðheilbrigðiskerfisins en til stóð að
loka Vin nú í mars. Geðhjálp harmaði þá
ákvörðun og skoraði á Rauða kross Ís-
lands, Reykjavíkurborg og aðra opin-
bera aðila að leita úrræða svo Vin gæti
haldið áfram óbreyttri starfsemi.
Vin, líkt og Geðhjálp, er félags-
legur bakhjarl þeirra sem eiga við
geðræn veikindi að stríða á Íslandi
og hefur starfsemin öðlast virðingu
innan geðheilbrigðiskerfisins. Lokun
hefði getað skert lífsgæði geðfatlaðra.
Í kjölfarið safnaðist rekstrarfé fyrir Vin
og er rekstur félagsins nú tryggður til
þriggja ára.
● GEÐORÐIN 10
1. Hugsaðu jákvætt, það er
léttara
2. Hlúðu að því sem þér þykir
vænt um
3. Haltu áfram að læra svo
lengi sem þú lifir
4. Lærðu af mistökum þínum
5. Hreyfðu þig daglega, það
léttir lundina
6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu
7. Reyndu að skilja og hvetja
aðra í kringum þig
8. Gefstu ekki upp, velgengni í
lífinu er langhlaup
9. Finndu og ræktaðu hæfi-
leika þína
10. Settu þér markmið og láttu
drauma þína rætast
● HVERNIG GERIST ÉG FÉLAGI? Geðhjálp eru
óháð hagsmunasamtök þeirra sem þurfa aðstoð vegna
geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra og annarra er
láta sig geðheilbrigðis-
mál varða. Samtökin
eru rekin sem frjáls
félagasamtök og eru
fjármögnuð með
styrkjum. Sökum þessa
fer mikil orka á vegum
félagsins í fjármögnun
og styrktarsöfnun. Öllu
fjármagni sem kemur inn til félagsins er beint eftir fremsta
megni í málstaðinn þannig að það nýtist hagsmuna-
hópnum sem allra best.
Geðhjálp treystir á velgjörðir sinna félagsmanna sem
greiða félagsgjald einu sinni á ári. Margt smátt gerir eitt
stórt og því getur fjölgun félagsmanna lyft grettistaki í
starfsemi félagsins.
Hægt er að gerast félagi með því að skrá sig á www.
gedhjalp.is eða hringja á skrifstofu félagsins í síma 570-
1700.
Anna Þrúður
Þorvaldsdóttir,
einn af stofnendum
og frumkvöðlum
Vinjar.