Fréttablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2012 7Geðhjálp ●
Lagið Ég óska þér góðra jóla vann
jólalagakeppnina Geðveik jól. Lagið
samdi starfsmaður Eimskips.
„Ég fékk frjálsar hendur hvernig ég
nálgaðist verkefnið og ákvað strax að
semja lag og texta,“ segir Gottskálk Krist-
jánsson, verkefnastjóri í upplýsingatækni-
deild hjá Eimskip og höfundur að laginu „Ég
óska þér góðra jóla“, en lagið vann jólalaga-
samkeppni Geðhjálpar, Geðveik jól 2011.
Gottskálk er ýmsum hnútum kunnugur í
tónlistar bransanum en segir þó ekki einfalt
mál að semja jólalag.
„Ég hef verið að semja og spila, bæði
sem trúbador og í hljómsveitum í mörg ár
og samið slatta af popplögum og rokk lögum
en það er ekkert einfalt að semja jólalag. Ég
þurfti að setja mig í ákveðnar stellingar,
drekka jólaöl og borða konfekt,“ segir Gott-
skálk og hlær. Hann fékk strax hug myndir
að lögum en ákvað svo að taka sér gömlu
meistarana til fyrirmyndar.
„Ég fór að hugsa með mér hvernig meist-
ararnir hafa gert þetta, Bjöggi Halldórs og
fleiri. Þeir hafa yfirleitt samið jólatexta
við ítalskar ballöður svo ég fór að hlusta
á ítalska popptónlist til að skilja hljóma-
ganginn. Prófaði svo að setja eitthvað saman
með svipaðri blöndu og þá kom þetta bara.“
Gottskálk segir eftirleikinn hafa gengið
eins og í sögu. Lítið mál hafi verið að finna
hæfileikafólk úr röðum starfsmanna til að
syngja og spila og allir boðnir og búnir að
leggja hönd á plóginn.
„Það var auðveldi hlutinn. Það er margt
hresst fólki hér hjá Eimskip sem er til í að
prófa ýmislegt skemmtilegt, eitthvað sem
brýtur upp daginn. Það var rosalega gaman
að vinna þetta og margir voru að stíga vel
út fyrir þægindarammann en höfðu gaman
af. Sérstaklega þegar myndbandið var tekið,
þá vorum við öll langt fyrir utan þæginda-
rammann en það lukkaðist vel,“ segir hann
hlæjandi.
En var hópnum þá ekki tekið eins og rokk-
stjörnum á göngunum í fyrirtækinu? „Jú,
þú getur rétt ímyndað þér það,“ segir Gott-
skálk. „Lagið var spilað í matsalnum og í
jólafögnuði hjá öllum deildum og sviðsljósið
skein á okkur í nokkurn tíma. Það var auð-
vitað gaman að sjá hvað allir voru ánægðir
með útkomuna og það er fyrir öllu. Líka
hvernig gekk með söfnunina hjá Geðhjálp.“
Aðspurður segir hann hópinn ekki hafa
stofnað formlega hljómsveit ennþá en til-
tækið hafi þó kveikt ákveðinn neista hjá
starfsfólki fyrirtækisins. „Eimskip var allt-
af með kór og eftir þetta kom til tals að end-
urvekja hann. Þetta lífgaði upp á tilveruna í
desember sem oft er dimmur. Kannski búum
við bara til nýtt lag, hver veit.“
Eins og rokkstjörnur á göngunum
Gottskálk segir lítið mál hafa verið að finna hæfi-
leikafólk í fyrirtækinu til að syngja.
Starfsmenn stigu út fyrir þægindarammann þegar þeir léku í myndbandi við lagið en allt lukkaðist vel.
Tilvonandi rokkstjörnur hjá Eimskip. MYND/ÚR EINKASAFNI
Markaðsstjóri Eimskips var
efins um jólalagakeppni
Geðhjálpar til að byrja með
en komst fljótlega á allt aðra
skoðun.
„Í hreinskilni sagt leist mér
ekkert allt of vel á hugmyndina
fyrst,“ segir Ólafur William Hand,
markaðs stjóri Eimskips, þegar
hann rifjar upp fyrstu viðbrögð sín
við jólalagasamkeppni Geðhjálpar,
Geðveik jól 2011. „Það var mikið
að gera hjá okkur á þessum tíma,
einum og hálfum mánuði fyrir jól,
en við samþykktum að fá þau frá
Geðhjálp á fund og hlusta á kynn-
ingu á verkefninu. Ég skipti fljótt
um skoðun, þetta var einmitt það
sem fyrirtækið þurfti á þessum
tíma,“ segir Ólafur og bætir við
að stuttur fyrirvari hafi reynst
kostur þegar upp var staðið.
„Við stukkum einfaldlega í
málið og spurðum starfsfólk sem
er viðloðandi tónlist hvort það
væri tilbúið að spreyta sig, fyrir-
tækið myndi styðja við bakið á
þeim varðandi kostnað og annað.
Gottskálk Kristjánsson tók verkið
að sér og vinnan fór á fullt. Við
auglýstum á innri vefnum okkar
eftir hljóðfæraleikurum og söngv-
urum, fengum fagfólk til að vinna
með okkur að upptöku lagsins
og við gerð myndbandsins. Þetta
vannst allt með góðri samvinnu.“
Ólafur segir þátttöku Eimskips
í keppninni hafa rifið upp andann
í fyrirtækinu. Fólk hafi kynnst
hvert öðru á annan hátt og lært
að vinna hvert með öðru á öðrum
grundvelli en dags daglega. Lagið
hafi hljómað um allt, starfsmenn
horft á það á netinu og allir komist
í jólaskap.
„Þátttakan í þessari samkeppni
reyndist smellpassa inn í þá upp-
byggingu sem við höfðum verið í
með starfsfólki eftir hrunið,“ segir
Ólafur. „Við höfðum haldið nám-
skeið um stefnumótun og fleira
og þetta reyndist mikið mór-
alskt pepp. Mér fannst ljósvaka-
miðlar landsins þó ekki taka verk-
efninu eins opnum örmum og þeir
hefðu átt að gera. Það var miður
því þarna lyftu stærstu fyrir-
tæki landsins grettistaki í að
koma út lagi og myndbandi á mjög
skömmum tíma. Það tekur hljóm-
sveitir eins og U2 fleiri ár að koma
út einni plötu! Við vorum rosalega
stolt af okkar starfsfólki og því var
leiðinlegt gagnvart þeim og gagn-
vart verkefninu sjálfu hvað ljós-
vakamiðlarnir voru seinir til. Ég
hugsa að það hefði safnast meira ef
lögin hefðu til dæmis verið spiluð í
útvarpinu,“ segir Ólafur og bætir
við að það hafi ekki verið takmark
í sjálfu sér að vinna keppnina.
Verkefnið hafi snúist um annað.
„Það skipti engu máli hver
vann, verkefnið var yfir það
hafið. Það var gleðin og ánægjan
sem við sáum að okkar starfs-
fólk hafði af vinnunni við þetta
sem var nóg fyrir okkur. Fólk
fékk að kynnast hlutum sem það
hafði aldrei reynt áður. Ég viður-
kenni að ég var ekki bjartsýnn en
það breyttist þegar ég sá hvert
stefndi. Við sögðum sem betur
fer já við þessu og verðum pott-
þétt með aftur ef af verður. Þetta
er miklu skemmtilegri keppni en
Eurovision!“
Skemmtilegra en Eurovision
Ólafur William Hand, markaðsstjóri Eimskips, segir þátttöku fyrirtækisins í Geðveikum jólum hafa rifið andann upp í fyrirtækinu í
skammdeginu. MYND/GVA
Gottskálk H. Kristjánsson, verkefnastjóri í upplýsingatæknideild hjá Eimskip, er höfundur lagsins „Ég óska
þér góðra jóla“ en lagið vann jólalagasamkeppni Geðhjálpar, Geðveik jól 2011. MYND/GVA