Fréttablaðið - 29.03.2012, Síða 60
29. mars 2012 FIMMTUDAGUR40
popp@frettabladid.is
HEILSA Í nútímasamfélagi situr
fólk lengur en áður og getur það
haft slæmar afleiðingar á heilsu
fólks. Vefsíðan Health.com ráð-
leggur fólki að nýta hvert tækifæri
til að standa upp frá skrifborðinu
yfir vinnudaginn og auka þannig á
blóðflæði og hreyfingu.
Meðal þess sem ráðlagt er að
gera er að ganga um á meðan þú
sinnir persónulegum símtölum í
farsímanum, þannig kemst blóð-
flæðið af stað og fólk teygir svo-
lítið úr fótleggjunum í leiðinni.
Annað gott ráð er að hætta að
senda vinnufélögum netpóst og
standa heldur upp og ræða við þá í
eigin persónu. Fólki er einnig ráð-
lagt að breyta oft og reglulega um
stöðu í stólnum, krossleggja fætur
og standa reglulega upp.
Á fætur í
vinnunni
STATTU UPP Fólk sem vinnur við tölvu á
að standa oft og reglulega upp úr sæti
sínu. NORDICPHOTOS/GETTY
LÍFIÐ ER FERÐALAG
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.I
S
U
TI
5
90
49
0
3/
12
TILBOÐ 16.990 KR.
HIGH PEAK NEVADA
Þriggja manna tjald með fortjaldi.
Vatnsheldni: 2.000 mm.
Þyngd: 3.980 g.
Verð áður: 19.990 kr.
TILBOÐ 14.990 KR.
TNF ALEUTIAN
Hentugur til notkunar sumar, vor
og haust.
Þyngd 1.545 g.
Þolmörk -5°C.
Verð áður: 19.990 kr.
ÚRVAL FERMINGARGJAFA Á FRÁBÆRU VERÐI
TILBOÐ 18.990 KR.
HIGH PEAK TRANGO 65
Vandaður og traustur bakpoki
með góðu burðarkerfi.
Þyngd: 1.850 g.
Verð áður: 23.990 kr.
TILBOÐ 29.990 KR.
HIGH PEAK VIPER 1400
Vandaður léttur dúnsvefnpoki.
Þolmörk: -6°C.
Þyngd: 1.275 g.
Þriggja árstíða.
Verð áður: 39.990 kr.
NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS
Marsmánuður hefur verið einkar viðburða-
ríkur fyrir þá sem hafa gaman af tísku og
hönnun en í dag hefst tískuhátíðin Reykja-
vik Fashion Festival. Ýmsar uppákomur eru
í Reykjavík í tengslum við hátíðina, sem
er einstaklega glæsileg í ár. Fréttablaðið
kynnti sér þá viðburði sem tískuunnendur
mega alls ekki láta framhjá sér fara á RFF.
Hægt er að kaupa miða á tískusýningarnar,
sem fara fram í Hörpu á morgun og laugar-
dag, á vefsíðunni midi.is.
TÍSKUVEISLA
RFF HAFIN
TÍSKUVAKA
Stjórnendur RFF blása til svokallaðrar tískuvöku í
miðbæ Reykjavíkur í kvöld að erlendri fyrirmynd.
Tískuborgir hafa yfirleitt haldið Fashion Night Out í
tengslum við tískuvikurnar þar sem búðirnar halda
upp á tískuhátíðina hver með sínum hætti. Um 47
búðir á Laugavegi og Skólavörðustíg ætla að taka
þátt og hafa opið til klukkan 21 í kvöld. Það er því um
að gera að kíkja í búðirnar sem flestar eru fullar af
vorvörum.
ELLA BY ELINROS LINDAL
Fatahönnun
Elínrósar Líndal,
Ella, hefur vakið
mikla eftirtekt en
þetta er í fyrsta sinn
sem hún tekur þátt
í Reykjavik Fashion
Festival. Klæðileg
og falleg snið eru
aðalsmerki Ellu en
ilmvötn og kerti
úr hennar smiðju
hafa einnig verið
vinsæl. Ef marka
má fatnaðinn frá
Ellu má búast við
því að vandað
verður vel til verka
í sýningunni, sem
er sú fyrsta á
laugardagskvöldinu.
HRESSANDI SÝNING
Kormákur og
Skjöldur, með
fatahönnuðinn
Guðmund
Jörundsson í
fararbroddi, sýna
nýja herrafata-
línu frá verslun-
inni á morgun
en þetta er í
fyrsta sinn sem
þeir taka þátt í
tískuhátíðinni.
Kormákur og
Skjöldur loka
sýningarkvöldinu
í Hörpu á
morgun.
PALLBORÐSUMRÆÐUR UM TÍSKU
Á laugardaginn verða
haldnar pallborðsumræður
um tískuiðnaðinn á hótel
Reykjavík Natura. Salman
Khokhar stjórnar umræðunum
en hann á ráðgjafafyrirtækið
Koka Consulting í New York
sem sérhæfir sig í stjórnunar-
ráðgjöf fyrir ung og vaxandi
tískufyrirtæki. Það er því um
að gera fyrir áhugasama að
fjölmenna en meðal fyrirlesara
eru Áslaug Magnúsdóttir, stofn-
andi tískufyrirtækisins Moda
Operandi, Rúnar Ómarsson
stofnandi Nikita, fatahönnuður-
inn Bernhard Willhelm og Edda
Guðmundsdóttir starfandi
stílisti i New York.
RAUTT Í TÍSKU Vísindamenn halda því fram að rauðhærðu fólki fari fækkandi, og getur svo
farið að rauðhærðir verði útdauðir innan 100 ára. Rautt er þó tískuliturinn um þessar mundir og
sífellt fleiri sem kjósa að lita hárið rautt. Þeirra á meðal má nefna stórstjörnuna Rihönnu.
lifsstill@frettabladid.is
40