Fréttablaðið - 02.04.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag
HEILBRIGÐISMÁL Biðlistar eftir
skurðaðgerðum á augasteinum
hafa ekki verið lengri síðan í
október 2009. 710 einstaklingar
höfðu í febrúar beðið lengur en
þrjá mánuði eftir slíkri aðgerð,
en á sama tíma í fyrra voru 526 á
biðlista. Þetta kemur fram í tölum
Landlæknisembættisins um bið-
lista eftir völdum skurðaðgerðum
í febrúar.
Að sögn Björns Zoëga, forstjóra
Landspítalans, er óljóst af hverju
biðlistinn er svo langur. Áætlaður
biðtími eftir aðgerð á augasteini
á Landspítalanum er rúmar 44
vikur. Hjá stofunum Sjónlagi og
Lasersjón er biðtíminn frá 14
vikum og upp í 18. Framkvæmdum
aðgerðum á augasteinum fækkaði
um rúman þriðjung frá árinu 2010
til 2011. Þær voru 2.653 árið 2010
en 1.764 í fyrra. Á öllum sjúkra-
húsum og stofum voru færri slíkar
aðgerðir gerðar, en mestu munar
um lokun skurðstofa á St. Jósefs-
spítala. Þar voru 673 aðgerðir
framkvæmdar árið 2010.
Fundað var um þessi mál á
Landspítalanum í síðustu viku.
„Við finnum ekki fyrir miklum
þrýstingi vegna þessara bið lista.
Venjulega fáum við kvartanir
vegna biðlista en í þessu tilviki
finnum við eiginlega ekki fyrir
þessu. Við getum ekki alveg
útskýrt þetta,“ segir Björn. „Það
er stundum svona með læknis-
fræðilega hluti, eftirspurnin getur
verið óendanleg.“
Björn segir hins vegar grannt
fylgst með þróuninni. „Við vitum
af þessari aukningu. Hún er að
hluta til, en ekki eingöngu, vegna
þess að St. Jósefsspítali sam-
einaðist Landspítalanum. Við
ætlum að fylgjast með þessu og
sjá hvað verður. Við stefnum að
því að gera þúsund svona aðgerðir
á þessu ári, sem er töluvert.“
Eins segir Björn mikilvægt að
skoða tölur um biðlista með hlið-
sjón af því eftir hvaða aðgerðum
er beðið. „Það er stöðug forgangs-
röðun í gangi hjá okkur,“ segir
hann og áréttar að til dæmis verði
að horfa til þess hvort sjúklingar
bíði eftir því að fá fjarlægt krabba-
mein, eða hvort biðin sé eftir ein-
hverju sem auka eigi lífsgæði fólks
á efri árunum. - þeb
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011
Mánudagur
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Fasteignir.is
2. apríl 2012
78. tölublað 12. árgangur
Litla bókasafnið mitt
- 4 tegundir
sjá nánar á ungaastinmin.is
50% afsláttur í apríl
TILBOÐ MÁNAÐARINS
Tilboðið gildir í öllum helstu verslunum landsins
Verð nú 795 kr.
Verð áður 1599 kr.
L júffengur
Páskaostur
fæst nú í
verslunum
2. – 4. apríl
Gull á CenterHotel Klöpp
GREITT FYRIR GULLIÐ Á STAÐNUM!
Skoðið nánar bls. 8
aðgerðir
voru
fram-
kvæmdar á augasteinum í
fyrra, þriðjungi færri en árið á
undan.
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ
1.765
skoðun 14
Stuðlar að heilbrigði
Magnús Scheving hlaut
verðlaun fyrir að stuðla að
auknu heilbrigði barna.
popp 38
Fimm stjörnu sýning
Leiksýningin Tengdó
segir mikilvæga sögu á
fallegan máta að mati
gagnrýnanda.
menning 26
Liverpool í krísu
Liðið tapaði sínum áttunda
leik á árinu í gær.
sport 34
Ég hef geymt heilmikið af leikföngum frá
því ég var stelpa því þeim fylgja góðar
minningar. Mig langaði til að hafa þau uppi við en þau passa hvergi. Með kerta-
stjökunum er ég að færa þessa nost-algíu nær mér,“ útskýrir Anna en kerta-
stjakarnir Fjölskylda, sem hún frumsýndi
á Hönnunarmars, sækja form sín til gamalla leikfangakarla. Stjakarnir eru handrenndir úr íslensku birki og verða
fljótlega fáanlegir í Epal og víðar, þangað
til fást þeir í gegnum heimasíðuna www.
annathorunn.is. Stjakarnir eru í fjórum
litum og í fjórum mismunandi formum og
saman mynda þeir litríka fjölskyldu.Ég valdi svart og hvítt og bætti svo við bláa litnum inn til að poppa þá að-eins upp. Í framhaldinu ætla ég að bæta
við litaflóruna en formin munu haldsér Ég sá f i
Auk stjakanna frumsýndi Anna einnig postulínsskálina Feed me en hugmyndina að henni fékk hún þegar
hún var að horfa á fréttirnar. „Ég sá litla frétt um krummafjölskyldu í hreiður gerð í Reykjavík. Myndin af ungunum með opna goggana rann svo
saman við aðra mynd, pappírsgogginn,
sem mörg okkar léku sér með í æsku
og úr varð nytjavara,“ útskýrir Anna.Hún er ánægð með nýliðinn Hönnunar mars sem hún segir hrista hönnunarsamfélagið saman og vekja athygli á því sem hönnuðir eru að fást
við. Þá sé mikill fengur að fá erlenda blaðamenn á hátíðina. „Það hafa nokkrir blaðamenn haft sambandvið mig eftir Hö
PÁSKASKRAUTGaman er að skreyta með greinum um páska. Greinar má klippa af birki, ösp og víði og setja
í vasa. Á greinarnar má síðan hengja fallegt
páskaskraut og lífga þannig upp á heimilið.
NOSTALGÍA ÆSKUÁRANNA
FJÖLSKYLDA Anna Þórunn Hauksdóttir vöruhönnuður frumsýndi handrennda
kertastjaka úr birki og postulínsskál á nýliðnum Hönnunarmars.
FJÖLSKYLDA Hand-renndir kerta stjakar úr íslensku birki.
HANDUNNIÐ Anna Þórunn Hauks-dóttir vöruhönnuður frumsýndi tvær nýjar vörur á Hönnunar-Mars.
MYND/ANTON
FASTEIGNIR.IS
2. APRÍL 2012
14. TBL.
Valhöll er með á skrá
einbýlishús við Tunguás 6.
Húsið er á einni hæð og með tvöföldum bílskúr. Forstofa er með flísalögðu gólfi og er
hiti í því. Parketlagt og rúmgott
svefnherbergi er við hlið forstofu.
Stofa er parketlögð, búin arni og
með góðri lofthæð. Eldhús og borð-
stofa eru samliggjandi við stofu. Í
eldhúsi er vönduð inn rétting, eyja
með vaski, helluborð, háfur og stein-
flísar á gólfi. Tvöföld hurð er úr eld-
húsi og á verönd.
Við herbergjagang er gesta-
salerni með innréttingu, sturtuklefa
og vegghengdu salerni. Parket lagt
barnaherbergi er við ganginn. Rúm-
gott hjónaherbergi og inn af því bað-
herbergi búið innréttingu, nudd-
baðkari, sturtuklefa og vegghengdu
salerni. Þvottaherbergi er búið inn-
réttingu. Þaðan er útgengt út í garð
og inn í bílskúr Bílskúr er t ö
Einbýli í rólegri götu
Húsið er á einni hæð og með tvöföldum bílskúr.
Landmark leiðir þig heim!
* Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Fjórir löggiltir fasteignasalar. Áralöng reynsla.
Við erum Landmark*
Sími 512 4900
landmark.is
Vantar allar
gerðir eigna
á skrá
Söluverðmetum eign þína
þér að kostnaðarlausu
Rúnar Gíslason
Lögg. fasteignasali
audur@fasteignasalan.is
GLAÐBEITTUR MEÐ STÖNGINA Eggert Árni Sigurbjörnsson var verklegur þar sem hann
stóð með stöngina úti í Vífilsstaðavatni í gær. Fjöldi manns nýtti sér veðurblíðuna og hélt til veiða við upphaf
stangveiðitímabilsins. Veiði var víða allgóð og þótti tímabilið fara ágætlega af stað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓLK Eþíópíski veitinga staðurinn
Minilik opnaði í Hlíðarsmára í
Kópavogi þann 1. mars síðast-
liðinn. Yirga Mekonnen á og rekur
staðinn ásamt
eiginkonu
sinni, Lemlem
Kahssay. Hún
annast alla
matseld. „Mig
langaði alltaf að
opna eþíópískan
veitingastað og
kynna þannig
Íslendingum
landið mitt. Allir þekkja vanda-
málin sem eru í Eþíópíu, en fáir
þekkja söguna og menninguna,“
segir Yirga.
Boðið er upp á hefð bundinn
eþíópískan mat þar sem allt ferskt
hráefni er keypt hérlendis. Krydd
og kaffibaunirnar koma frá Eþí-
ópíu. Brauð kemur í stað hnífapara
á staðnum. - trs / sjá síðu 38
Ferskt hráefni allt keypt hér:
Kynna fólki
eþíópískan mat
BJART eða nokkuð bjart norðan- og
vestanlands en lítils háttar snjókoma
eða slydda með austur- og suður-
ströndinni. Fremur kalt í veðri.
VEÐUR 4
2
-1
-3
-2
-1
Sjö hundruð sjúklingar bíða
eftir aðgerð á augasteinum
Fólk getur vænst þess að bíða í 44 vikur eftir aðgerð á augasteini á Landspítalanum. Forgangsraðað er eftir
nauðsyn aðgerða. Fylgst er með biðlistum og stefnt er á að gera þúsund aðgerðir á árinu, segir forstjórinn.
YIRGA MEKONNEN
ALÞINGI Ríkisstjórnin lagði fram
50 þingmál á Alþingi í síðustu
viku. Frestur til að leggja ný mál
fram rann út á laugardag. Þann
dag komu 25 mál frá stjórninni.
Verklagið hefur nokkuð verið
gagnrýnt á Alþingi. Gunnar
Helgi Kristinsson stjórnmála-
fræðingur segir þetta hvorki
æskilegt né heppilegt verklag.
Allir séu sammála um það, en það
gangi illa að bæta starfshættina.
„Þetta endurspeglar það að
stjórnarráðið er að reyna að gera
marga hluti í einu og nær því
kannski ekki
alveg að vinna
hlutina á þeim
tíma sem eðli-
legt væri. Það
er ekki æskilegt
að þingið hafi
of lítinn tíma
til að vinna úr
málum.
Stundum
hefur mann
grunað að svona væri gert af
ákveðnum klókindum, til að
stytta vísvitandi þann tíma sem
mál fá til umfjöllunar í þinginu.
Í einhverjum tilvikum á það vafa-
laust við, en ég veit ekki hvort
það á við í þessu tilviki.“
Gunnar segir þetta einnig sýna
ríkjandi álag í stjórnarráðinu.
Menn lendi óviljandi í tímahraki
með mál.
Meðal mála sem lögð voru fram
í síðustu viku má nefna frumvörp
um fiskveiðistjórnun, veiðigjald,
Ríkisútvarpið, lögreglulög, gjald-
eyrismál, heimild til fjár mögnunar
Vaðlaheiðarganga, útlendinga og
rafrænar undirskriftir. - kóp
Fimmtíu stjórnarfrumvörp voru lögð fram í síðustu viku á Alþingi:
Hvorki æskilegt né heppilegt
GUNNAR HELGI
KRISTINSSON