Fréttablaðið - 02.04.2012, Qupperneq 21
Ég hef geymt heilmikið af leikföngum frá
því ég var stelpa því þeim fylgja góðar
minningar. Mig langaði til að hafa þau
uppi við en þau passa hvergi. Með kerta-
stjökunum er ég að færa þessa nost-
algíu nær mér,“ útskýrir Anna en kerta-
stjakarnir Fjölskylda, sem hún frumsýndi
á Hönnunarmars, sækja form sín til
gamalla leikfangakarla. Stjakarnir eru
handrenndir úr íslensku birki og verða
fljótlega fáanlegir í Epal og víðar, þangað
til fást þeir í gegnum heimasíðuna www.
annathorunn.is. Stjakarnir eru í fjórum
litum og í fjórum mismunandi formum og
saman mynda þeir litríka fjölskyldu.
Ég valdi svart og hvítt og bætti svo
við bláa litnum inn til að poppa þá að-
eins upp. Í framhaldinu ætla ég að bæta
við litaflóruna en formin munu halda
sér. Ég sá fyrir mér að hægt væri að
safna stjökunum eins og sinni eigin fjöl-
skyldu en samsetningar fjölskyldna er
eins fjölbreyttar og þær eru margar.“
Auk stjakanna frumsýndi Anna
einnig postulínsskálina Feed me en
hugmyndina að henni fékk hún þegar
hún var að horfa á fréttirnar. „Ég sá
litla frétt um krummafjölskyldu í
hreiður gerð í Reykjavík. Myndin af
ungunum með opna goggana rann svo
saman við aðra mynd, pappírsgogginn,
sem mörg okkar léku sér með í æsku
og úr varð nytjavara,“ útskýrir Anna.
Hún er ánægð með nýliðinn
Hönnunar mars sem hún segir hrista
hönnunarsamfélagið saman og vekja
athygli á því sem hönnuðir eru að fást
við. Þá sé mikill fengur að fá erlenda
blaðamenn á hátíðina. „Það hafa
nokkrir blaðamenn haft samband
við mig eftir Hönnunarmars.
Bæði vegna nýju varanna en
líka eldri vara, sem er mjög
gaman. Mig dreymir auð-
vitað um að komast út
fyrir landsteinana með vörurnar.“ ■ rat
PÁSKASKRAUT
Gaman er að skreyta með greinum um páska.
Greinar má klippa af birki, ösp og víði og setja
í vasa. Á greinarnar má síðan hengja fallegt
páskaskraut og lífga þannig upp á heimilið.
NOSTALGÍA ÆSKUÁRANNA
FJÖLSKYLDA Anna Þórunn Hauksdóttir vöruhönnuður frumsýndi handrennda
kertastjaka úr birki og postulínsskál á nýliðnum Hönnunarmars.
FJÖLSKYLDA Hand-
renndir kerta stjakar úr
íslensku birki.
HANDUNNIÐ
Anna Þórunn Hauks-
dóttir vöruhönnuður
frumsýndi tvær nýjar
vörur á Hönnunar-
Mars.
MYND/ANTON
FJALL Púði eftir Önnu
Þórunni frá 2007.
Fermingartilboð
Gerið GÆÐA- og verðsamanburð
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
12 má
naða
vaxtal
ausar
greiðs
lur*
Stærð Verð Tilboð
120x200 84.900 kr. 79.900 kr.
VALHÖLLNý hönnun
5 svæðaskipt gormakerfi, gæðabólstrun,
stál kantstyrkingar
Verð með íslenskum botni og fótum
10.000 kr
. vöruútte
kt
fylgir öllum
fermingar
rúmum
*3,5%
lánt
ökug
jald