Fréttablaðið - 02.04.2012, Side 52
2. apríl 2012 MÁNUDAGUR28
popp@frettabladid.is
ISIO 4
með D-vítamíni
góð fyrir æðakerfið
ISIO4 er heilsusamleg blanda af olíum — auðug af
náttúrulegu E-vítamíni og viðbættu D-vítamíni.
Olíurnar fjórar sem sameinast í ISIO4, repju-, oléisol-,
sólblóma- og vínberjaolía, eru ríkar af E-vítamíni,
andoxunarefni sem verndar frumur líkamans.
Auk þess inniheldur ISIO4 núna meira af D-vítamíni
sem hjálpar þér að styrkja ónæmiskerfið.
Hugsaðu um heilsuna og veldu ISIO4
með lífsnauðsynlegum Omega-3 fyrir hjarta og æðakerfi
og Omega-6 til að halda kólesteróli í skefjum.
Olían er bragðgóð og hentar vel í alla matargerð,
heita rétti sem kalda.
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
N
AT
5
80
50
0
3/
12
ÁRA hefði tónlistarmaðurinn Marvin Gaye orðið í dag ef
hann hefði verið á lífi. Gaye lést þann 1. apríl árið 1984. 73
Leikkonan Anne Hathaway er þessa dagana í
tökum á myndinni Les Misérables eða Vesa-
lingunum en hún er undir stöðugu lækna-
eftirliti á tökustað. Ástæðan fyrir því er að
Hathaway þarf að fara í strangan megrunarkúr
á meðan á tökum stendur en hún leikur dauð-
vona vændiskonuna Francine. Hathaway hefur
lokið við að taka upp senurnar þegar Francine
er heilbrigð en þarf að missa um 8 kíló á næstu
15 dögum til að smellpassa inn í hlutverkið
sem dauðvona Francine. Svo mikið þyngdar-
tap á stuttum tíma getur verið lífshættulegt og
þess vegna er hún undir stöðugu læknaeftirliti,
með einkaþjálfara og næringarfræðing. Sam-
kvæmt heimildum Daily Mirror má Hathaway
ekki borða meira en nokkur epli og prótein-
sjeik á dag. Kvikmyndin, sem verður frumsýnd
í desember, skartar einnig leikurunum Hugh
Jackman, Russell Crowe, Eddie Redmayne og
Amöndu Seyfried.
Undir eftirliti á tökustað
HÆTTULEGUR MEGRUNARKÚR Anne Hathaway
þarf að fara í lífshættulegan megrunarkúr til að
smellpassa í hlutverk dauðvona vændiskonunnar
Francine í kvikmyndinni Les Misérables.
Leikkonan og vandræðageml-
ingurinn Lindsay Lohan fagnaði
því að vera loks laus við skil-
orðið á lúxushótelinu Chateau
Marmont fyrir helgina. Lohan,
sem hefur verið inn og út úr
dómsölum og fangelsum síðan
árið 2007, bauð vinum og fjöl-
skyldu út að borða á hótelinu
en gleðskapurinn stóð fram
undir morgun. Dómarinn sem
lét Lindsay lausa á fimmtu-
daginn ráðlagði leikkonunni að
hætta öllu partýstandi í bili.
Lohan ætlar greinilega að taka
því alvarlega því þó að áfengir
drykkir voru á boðstólnum
drakk Lohan ekki að sögn við-
staddra.
Fögnuðu
með Lohan
Tónlistarmaðurinn og fyrrum
meðlimur strákasveitarinn-
ar Boyzone, Ronan Keating,
er að skilja við eiginkonu sína
til fjórtán ára, fyrirsætuna
Yvonne Keating. Þetta kemur
fram í írska dagblaðinu Sunday
Independent en hjónin komust
í fréttirnar árið 2009 þegar
Keating tók hliðarspor með
dansaranum Francine Cornell.
Blaðið hefur eftir nánum vinum
parsins að Yvonne hafi aldrei
jafnað sig eftir framhjáhaldið
svo nú skilja leiðir. Þau ætla sér
samt að vera góðir vinir en þau
eiga þrjú börn saman.
Keating skilur
GLÖÐ Lindsay Lohan var himinlifandi
að vera laus við dómsali í bili og bauð
50 manns í veislu á hótelinu Chateau
Marmont.
SKILUR EFTIR 14 ÁR Tónlistarmaðurinn
Ronan Keating er að skilja við eiginkonu
sína til 14 ára, Yvonne Keating.
NORDICPHOTOS/AFP