Fréttablaðið - 02.04.2012, Qupperneq 62
2. apríl 2012 MÁNUDAGUR38
MORGUNMATURINN
Magnús Scheving hlaut viðurkenningu frá
Mediterranean Foundation á fimmtu daginn
fyrir að stuðla að auknu heilbrigði meðal
barna. Viðurkenningin var veitt í Barcelona
og hlaut Michelle Obama, forsetafrú Banda-
ríkjanna, einnig viðurkenningu frá sam-
tökunum í ár.
Viðurkenningin er veitt annað hvert ár
þeim aðilum er skarað hafa fram úr með
starfi sínu á sviði hollustu og hreyfingar.
Magnús hlaut viðurkenningu fyrir Latabæ
og starf sitt í þágu aukins heilbrigðis barna,
aðrir er hlutu viðurkenningu á sama sviði
voru Michelle Obama og Barcelona Football
Club Foundation.
Hrefna Björk Sverrisdóttir, verkefnastjóri
Latabæjar, segir viðurkenninguna mikinn
heiður fyrir Magnús og Latabæ. „Það er
mikið og gott starf sem fer fram á bak við
sjónvarpsþættina. Latibær vinnur náið með
ýmsum ríkisstjórnum og samtökum til að
stuðla að heilbrigði barna og það er verið
að veita viðurkenningu fyrir það.“
Nýverið hóf breska ríkissjónvarp-
ið BBC aftur sýningar á Lazytown
Extra og horfðu um 2,48 milljón manns
á fyrsta þáttinn. Latibær er sýndur í
um 170 löndum víða um heim og
horfa um 500 milljón manna á þá
reglulega.
Um þessar mundir er verið að
undirbúa tökur fyrir þriðju þátta-
röð Latabæjar en áætlað er að
tökur hefjist í apríllok. - sm
Magnús og Michelle verðlaunuð
VERÐLAUNAÐUR Magnús Scheving hlaut
Mediterranean Foundation verðlaunin fyrir
að stuðla að auknu heilbrigði meðal barna.
Michelle Obama fékk verðlaun frá sömu
samtökum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég flutti til Íslands árið 2000
og mig langaði alltaf að opna
eþíópískan veitingastað og þannig
kynna Íslendinga fyrir landinu
mínu. Allir þekkja vandamálin
sem eru í Eþíópíu, en fáir þekkja
söguna og menninguna,“ segir
Yirga Mekonnen, annar eigandi
veitingastaðarins Minilik í Kópa-
vogi.
Minilik opnaði í Hlíðarsmára í
Kópavogi þann 1. mars síðastlið-
inn. Yirga á og rekur staðinn ásamt
eiginkonu sinni, Lemlem Kahssay,
sem annast alla matseld. Á Minilik
er boðið upp á hefð bundinn
eþíópískan mat þar sem allt ferskt
hráefni er keypt hérlendis, en flest
kryddin og kaffibaunirnar koma
frá Eþíópíu. Maturinn er borinn
fram með svokölluðu enjera sem
er flatt súrdeigsbrauð og þjónar
hlutverki hnífapara. „Auðvitað er
fólki velkomið að fá hnífapör ef það
óskar þess, en við kennum þeim
hvernig hægt sé að nota enjera
í stað hnífapara og borða með
puttunum,“ segir Yirga.
Staðurinn opnaði fyrst á Flúðum
síðastliðið sumar þar sem hann
vakti mikla athygli og fékk mjög
jákvæð viðbrögð, að sögn Yirga.
Það varð til þess að þau hjón-
in ákváðu að reyna fyrir sér á
höfuð borgarsvæðinu líka. Minilik
verður þó áfram opinn á Flúðum
yfir sumar tímann, þar sem systir
Lemlem og eiginmaður hennar
reka hann.
Kaffimenningin er mjög mikil
í Eþíópíu, en kaffi er upprunnið
frá borginni Kaffa í vestanverðu
landinu. Á Minilik er þessi menn-
ing í hávegum höfð, og sérstök
athöfn er framkvæmd í kringum
kaffið. „Lemlem sér alltaf um
athöfnina, en það er stranglega
bannað að karlmaður geri það,“
segir Yirga. „Hún er íklædd sér-
stökum eþíópískum klæðnaði
og þarf að gera allt eftir vissum
aðferðum. Hún ristar baunirnar
á lítilli pönnu, og allir í salnum fá
að njóta lyktarinnar af þeim. Síðan
útbýr hún kaffið á kaffiborði sem
er í miðjum salnum,“ bætir hann
við.
Þrátt fyrir annríki hérlendis
halda Yirga og Lemlem áfram að
leggja sitt af mörkum til heima-
landsins. Árið 2010 stóðu þau
fyrir opnun leikskóla í borginni
Gidole þar sem 17 munaðarlausum
börnum eru nú tryggð menntun
og um önnun þökk sé íslenskum
stuðnings foreldrum. „Það var svo
mikið af góðu fólki hérna á Íslandi
tilbúið að hjálpa mér þegar ég
þurfti á því að halda að það hvatti
mig til að hjálpa öðrum,“ segir
Yirga. Nánar má lesa um verkefnið
á síðunni parentsgidole.com.
tinnaros@frettabladid.is
YIRGA MEKONNEN: KYNNI ÍSLENDINGA FYRIR EÞÍÓPÍSKRI MENNINGU
Borðað með puttunum á
eþíópískum veitingastað
FJÖLBREYTT Matseðillinn á Minilik er afar fjölbreyttur, þó aðeins sé um Eþíópískan
mat að ræða.
„Mig hefur lengi langað að gera
eitthvað. Ætli ég myndi ekki teljast
dálítið klassískt skúffuskáld,“
segir Svanur Már Snorrason sem
hefur gefið út sína fyrstu bók,
Fegurðar drottningin sem fitnaði.
Svanur Már er fyrrverandi rit-
stjóri tímaritsins Séð og heyrt
en hætti þar störfum í janúar
í fyrra. Eftir að hann frétti af
rafbókafyrir tækinu Emma.is þar
sem menn geta sent inn eigið efni
og verið sínir eigin herrar ákvað
hann að gefa skrifum sínum meiri
gaum. „Mér fannst þetta mjög
skemmtileg hugmynd og ein-
setti mér að setja saman eitthvað
af því sem ég átti,“ segir Svanur
Már, sem selur bókina sína á 499
krónur. Hann telur rafbækur vera
það sem koma skal, sérstaklega
varðandi efni sem hefur ekki verið
söluvænt eins og ljóð, smásögur,
örsögur, samtöl og prósar. Bók
hans hefur einmitt að geyma slíkt
efni og fjallar um lífið og tilveruna
en aðallega þó samskipti kynjanna.
Svanur Már viðurkennir að
titillinn sé dálítið Séð og heyrt-
legur, enda komst hann á bragðið
í Móment-pistlum sínum í tíma-
ritinu. Nokkrir þeirra eru einmitt
í bókinni. „Eiríkur Jónsson hvatti
mig áfram eftir að ég skrifaði einu
sinni svona pistil. Þarna var ég að
skrifa inn í dálítið knappt form.
Það var erfitt en gaman að takast
á við það,“ segir hann. -fb
Komst á bragðið í Séð og heyrt
FYRSTA BÓKIN Svanur Már Snorrason hefur gefið út sína fyrstu bók, Fegurðar-
drottningin sem fitnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gói
Baunagrasið
og
Leikhúsglaðningur fyrir
alla fjölskylduna!
Fréttatíminn Morgunblaðið
„Það er hafragrauturinn og ég
nota engin aukaefni, bara með
mjólk. Það er að breiðast út ein-
hver kanilvitleysa hérna á heim-
ilinu sem ég er alfarið á móti.“
Dagur B. Eggertsson, læknir og stjórn-
málamaður.