Fréttablaðið - 04.04.2012, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 04.04.2012, Blaðsíða 50
4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR34 BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. umstang, 6. í röð, 8. for, 9. heiður, 11. bókstafur, 12. æsir, 14. pabbi, 16. ekki, 17. dvelja, 18. angan, 20. tveir eins, 21. gróft orð. LÓÐRÉTT 1. ómögulegur, 3. skóli, 4. vöxtur, 5. bar, 7. haki, 10. temja, 13. svelg, 15. pottréttur, 16. trjátegund, 19. eyðileggja. LAUSN LÁRÉTT: 2. ómak, 6. fg, 8. aur, 9. æra, 11. ká, 12. regin, 14. faðir, 16. ei, 17. una, 18. ilm, 20. gg, 21. klám. LÓÐRÉTT: 1. ófær, 3. ma, 4. aukning, 5. krá, 7. grefill, 10. aga, 13. iðu, 15. ragú, 16. eik, 19. má. Já... og hvað er vandamálið hérna? Eh... Blokk- flauta?! Tók hann nokkuð Dark Side of the Moon? Pondus! Skammastu þin! Svona gerist stundum þegar menn rekast saman! Þá hljómar seiðandi tónlist! Þannig að ég og Dísa vorum bara í SSL og ... Hvað er SSL? „Skemmtistaðars- leikur“ Þetta er ekki nýtt orðatil- tæki, pabbi. Hvar get ég rifjað upp vinsælar skammstafanir? LOL! TAKK FYRIR AÐ KOMA MEÐ SVONA SKÖMM- UM FYRIRVARA. VIÐ ERUM FULL- BÓKUÐ Í DAG. Bilaður Er verið að æfa undir- skriftina? Ég get ekki beðið eftir að skrifa undir eitt- hvað! Mikilvægasta verkefni nýrrar ríkis-stjórnar er að endurvekja traust á stofnunum samfélagsins,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir 23. febrúar 2009, þá tiltölu- lega nýtekin við sem forsætisráðherra. Og Jóhanna var ekki ein um að telja þetta brýnt verkefni. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hjó í sama knérunn rúmu ári síðar, 14. júní 2010, í almennum stjórnmálaumræðum á Alþingi. „Traust á Alþingi, á þingstörfunum, hefur verið í lágmarki undanfarin misseri. Það er graf- alvarlegt mál því að Alþingi er bæði elsta og æðsta valdastofnun landsins.“ Bjarni taldi augljóst að allir þingmenn hefðu velt þessu fyrir sér. „Ég hygg að allir þingmenn hafi spurt sig: Hvernig má endurheimta traust Alþingis? Hvernig endurheimtum við traust á störfum þingsins? Við sem hér störfum, hvar í flokki sem við stöndum, tökum skilaboð um lítið traust á þinginu til okkar og viljum allt til þess vinna að endurheimta virðingu þess.“ ÞINGSKAPANEFND vinnur nú að til- lögum um ný þingsköp. Meðal þess sem þar hefur borið á góma er að það verði sett í lög um þingsköp að þingmenn megi ekki fara í andsvar við sam- flokksmenn sína, nema vera sann- anlega ósammála þeim. Án mikillar vísindalegrar rannsóknar er óhætt að efast um að mörg þjóðþing skuli ræða slíka hluti í alvöru. TRAUST ávinnst ekki með fögrum fyrir- heitum, heldur með gjörðum. Það er alveg sama hversu oft stjórnmálaleiðtogar lýsa yfir áhyggjum af litlu trausti á Alþingi, á meðan þar breytist ekkert eykst traustið ekkert. Samkvæmt skoðanakönnun gerðri í mars treysta um 10 prósent þjóðarinn- ar Alþingi. Einn af hverjum tíu. Ætli álíka margir púlarar treysti ekki Kenny Dalglish til að tryggja liðinu eitt af fjórum efstu sæt- unum í vor? ÞAÐ skiptir engu máli hversu reiðir þing- menn verða við að vera sakaðir um málþóf. Á meðan þeir flykkjast unnvörpum í and- svör til að taka undir sjónarmið samherja sinna eru þeir að stunda málþóf. Á meðan þeir spyrja samherja sína út í hugarheim andstæðinga sinna í andsvörum eru þeir að stunda málþóf. ÞAÐ skiptir engu máli hve mikinn fagur- gala ríkisstjórnin hefur uppi um breytt vinnubrögð og sjálfstæði Alþingis. Á meðan stjórnarfrumvörp dragast von úr viti og þeim er hrúgað inn rétt fyrir tilskyldan frest er virðingin fyrir Alþingi engin. Og ef ríkisstjórnin ber ekki virðingu fyrir Alþingi, af hverju ættum við hin að gera það? Á MEÐAN íslenskir stjórnmálamenn bera ekki meiri virðingu fyrir sjálfum sér en sést á störfum þeirra eru engar líkur á að virð- ing Alþingis aukist. Hið háa Alþingi sem eitt sinn var verður þá áfram hið háða Alþingi. Hið háða Alþingi Hvað stóð upp úr og hvað hefði mátt betur fara? Rýnt í Reykjavík Fashion Festival. Endalaus hamingja Jón Þór Þorleifsson rokkstjóri og Mugison lifa og hrærast í Rokkhátíðinni Aldrei fór ég suður. Meðal annars efnis: Fréttablaðið á morgun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.