Fréttablaðið - 04.04.2012, Blaðsíða 32
4. APRÍL 2012 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● mastersmótið 2012
© GRAPHIC NEWS
Source:
Augusta National Golf Club
AUGUSTA NATIONAL GOLF CLUB
Augusta, Georgia, April 5-8
Rae’s
Creek
Amen Corner
Composed of
second shot at
hole 11, hole 12
and tee shot
at hole 13
Tea
Olive
Pink
Dogwood
Flowering
Peach
Flowering
Crab Apple
Magnolia
Pampas Juniper
Yellow
Jasmine
Carolina
Cherry
Camellia
Holly
Azalea
White
Dogwood
Golden Bell
Chinese
Fir
Firethorn
Redbud
Nandina
Hola 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Út 10 11 12 13 14 15 16 17 18 Inn Samtals
Par 4 5 4 3 4 3 4 5 4 36 4 4 3 5 4 5 3 4 4 36 72
Metrar 407 525 320 220 416 164 412 521 420 3.400 453 462 142 466 402 485 155 402 425 3.392 6.792
Yardar 445 575 350 240 455 180 450 570 460 3.725 495 505 155 510 440 530 170 440 465 3.710 7.435
Rae
lækurinn
Annað högg-
ið á 11. braut,
12. hola og
upphafshögg-
ið á 13. braut til-
heyra „Amen
Corner“.
Brautir Augusta-vallarins eru allar nefndar
eftir gróðri, trjám eða blómategundum sem
einkenna hverja braut.
Mastersmótið er fyrsta risamót ársins og
því ríkir mikil eftirvænting bæði hjá leik-
mönnum sem og áhorfendum um hvern-
ig kylfingar koma inn í nýtt tímabil. Um-
gjörðin hér í Augusta er þannig að allt snýst
um mótið þessa viku og það er nánast hægt
að skera andrúmsloftið því spennan er svo
mikil hér í bænum. Hér tala margir um ein-
vígi á milli Tigers Woods og Rory McIlroy
þar sem þeir eru taldir heitustu kylfingarn-
ir í dag. Ég persónulega tel að þeir sem eru
á innan við 6 höggum frá efsta manni fyrir
lokadag eigi góðan möguleika á sigri með
flottum hring á lokadegi.
Við megum ekki gleyma frábærum
lokaholum hjá meistara síðasta árs, Charl
Schwartzel, frá Suður-Afríku sem fékk fjóra
fugla á fjórum síðustu brautum vallarins
eftir að hafa verið höggi á eftir Jason Day
og Adam Scott þegar hann stóð á 15. teig.
Það er allavega alveg á hreinu að það eru
mörg ár síðan það hefur verið svona mikil
spenna fyrir þetta sögufræga mót sem fyrst
var haldið árið 1934. Ég get fullyrt eftir að
hafa gengið völlinn hér á æfingadögunum þá
eru allar aðstæður frábærar fyrir leikmenn
til þess að leika gott golf en ég segi ekki að
þær séu auðveldar.
Mesti munurinn við völlinn frá því að
vera á staðnum eða horfa á í sjónvarpi er
hve völlurinn er hæðóttur. Á mörgum braut-
um er hæðarmismunur frá teig að flöt 10-30
metrar. Einnig er gaman að sjá hvað flatirn-
ar eru litlar og hve mikið landslag er í þeim.
Nú skilur maður mun betur þegar þessir
frábæru kylfingar eru að þrípútta kannski
3 metra pútt. Það er engin kargi á vellinum
og utan brautar er grasið slegið í um 15 mm.
Umhirða og snyrtimennska á vellinum og
öllu svæðinu er langt fram úr öllu sem ég
hef séð. Það er alveg á hreinu að völlurinn
skartar sínu fegursta þessa vikuna og hér
talar fólk um að mest spennandi Masters-
mótið í tugi ára hefjist á fimmtudag þar sem
Tiger Woods, Phil Mickelson, Luke Donald
og Rory McIlroy hafi allir unnið mót á síð-
ustu vikum og eru í fantaformi.
Eitt er víst að Mastersmótið árið 2012
hefur sjaldan boðið upp á meiri spennu. Til-
hlökkunin er því mikil hjá golfunnendum og
er ég á meðal þeirra. Góða skemmtun.
Eftirvænting – og spenna
ríkir fyrir Mastersmótið
● Þorsteinn Hallgrímsson skrifar frá Augusta-vellinum í Georgíu.
Ungu kylfingarnir söfnuðu eiginhandaráritunum við æfingasvæðið á Augusta og voru þeir ánægðir.
MYND/FRIÐIRK ÞÓR
Friðrik Þór Halldórsson, myndatökumaður Stöðvar 2 sport, og Þorsteinn Hallgrímsson golfsérfræðingur
eru á Augusta-vellinum í Georgíu. Afrakstur ferðarinnar verður sýndur á Stöð 2 sport.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmaður auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is |
Textagerð: Birta Björnsdóttir birta@365.is, Sigurður Elvar Þórólfsson seth@365.is