Fréttablaðið - 04.04.2012, Blaðsíða 52
4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR36 36
menning@frettabladid.is
PISTLAR VALGARÐS EGILSSONAR Homo Sapiens verða
fluttir á Rás eitt að kvöldi skírdags. Í pistlunum, sem birtust upphaflega
í Fréttablaðinu, er atferli mannsins skoðað með gleraugum Darwins.
Rithöfundurinn Kristín
Marja Baldursdóttir gegnir
stöðu leikskálds Leikritun-
arsjóðs Leikfélags Reykja-
víkur leikárið 2012 til 2013.
Hún segist hlakka til að
vinna með leikhúsfólki og
tileinka sér nýja tækni.
„Mig hefur lengi langað til að
skrifa leikrit, nánast allt frá því
ég var vön að skrifa leikrit fyrir
bílskúrana í gamla daga,“ segir
Kristín Marja Baldursdóttir, en í
gær var kunngjört að hún myndi
gegna stöðu leikskálds Leikritun-
arsjóðs Leikfélags Reykjavíkur
leikárið 2012 til 2013. Áður hafa
tvö leikskáld starfað á vegum
sjóðsins, Auður Jónsdóttir og Jón
Gnarr, en útnefningunni fylgir að
skáldið fær aðstöðu í leikhúsinu
og er hluti af starfsliði Borgar-
leikhússins. Alls sóttu 38 um
starfið.
Kristín Marja segist hlakka
mjög til starfsins og sérstaklega
þess að fá að vinna með leikhús-
fólki, fylgjast með og tileinka
sér nýja tækni. „Ég held að ég
hafi að minnsta kosti í tvígang
breytt leikriti í skáldsögu. Þegar
ég byrjaði á þessum leikritum
fannst mér eins og ég þyrfti að
vera meira inni í leikhúsinu, enda
eru leikskáld yfirleitt í einhverj-
um tengslum við leikhúsið. Það
hef ég ekki verið hér inni á gamla
kontórnum mínum. Þegar þessi
staða var auglýst ákvað ég að
sækja um og hugsaði með mér að
ef ég hreppti hnossið yrði engr-
ar undankomu auðið. Þá yrði ég
hreinlega að skrifa leikrit út frá
þessum hugmyndum sem ég hef.
Ég þurfti að fá smá spark,“ segir
Kristín, en hún hefur alla tíð
verið mikil áhugamanneskja um
leikhús og fylgst vel með hrær-
ingum í geiranum. „Mest hef ég
fylgst með leikhúsi hér á Íslandi,
í Berlín og Kaupmannahöfn, en
ég hef líka látið mig hafa það að
að sækja leikhús í Frakklandi, á
Spáni og Ítalíu án þess að botna
nokkuð í tungumálinu. Áhuginn
er svo mikill á sjálfum uppsetn-
ingunum.“
MIG VANTAÐI SMÁ SPARK
BORGARLEIKHÚSSSKÁLD Frú Vigdís Finnbogadóttir, stjórnarformaður Leikritunar-
sjóðs, tilkynnti um valið á Kristínu sem leikskáldi Leikritunarsjóðs við athöfn í Borgar-
leikhúsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kristín segist sem minnst vilja
tjá sig um hugsanlegan afrakst-
ur starfsins í Borgarleikhúsinu
næsta árið. „Það skyldi þó aldrei
vera að ég færi að skrifa um
konur,“ segir hún þó aðspurð og
hlær, en kvenpersónur hafa verið
einkar áberandi í skáldsögum
hennar, meðal annarra Karítas
frá árinu 2004, framhaldsbókinni
Óreiðu á striga frá 2007 og Máva-
hlátri frá 1995, en síðastnefnda
skáldsagan var sviðsett í Borg-
arleikhúsinu árið 1998. „Ætli
það megi ekki búast við því að
konur komi við sögu, en best er
að hafa á bak við eyrað að konur
geta ekki án karla verið og karl-
ar ekki án kvenna,“ útskýrir hún.
Spurð um önnur nánustu fram-
tíðaráform segist rithöfundurinn
nú vera á endasprettinum með
nýja bók sem hún býst við að
komi út fyrir jólin næstu. „Ég vil
ekki segja of mikið, en bókin ger-
ist í samtímanum og í henni hætti
ég mér út á slóðir sem ég hef ekki
verið á áður. Ég hef verið að velta
fyrir mér Ilíonskviðu með kar-
akter karlmanna í huga og bókin
er afrakstur þess.“
kjartan@frettabladid.is
FLEIRI RÁÐNINGAR HJÁ BORGARLEIKHÚSINU
Fyrr í vetur voru sex leikskáld fengin til að útfæra hugmyndir sínar að leik-
verkum úr sínu nánasta umhverfi, um íslenskt líf og íslenskan samtíma. Þau
Kristín Eiríksdóttir, Salka Guðmundsdóttir og Tyrfingur Tyrfingsson voru valin
úr hópi þessara sex leikskálda og er gert ráð fyrir að stutt leikverk þeirra
verði leikin saman á einu kvöldi.
Þá var Jón Atli Jónasson fyrir skömmu ráðinn til starfa við leikhúsið í eitt ár.
Hann mun semja leikrit fyrir Borgarleikhúsið sem sviðsett verður á leikárinu
2013 til 2014, auk þess sem hann mun liðsinna yngri og óreyndari skáldum
sem vinna fyrir leikhúsið.
Í gegnum tíðina er frumsamið
gamanleikrit með söngvum
sem Leikdeild Eflingar hefur
sýnt á Breiðumýri í Reykjadal
kvöld eftir kvöld að undanförnu
við afbragðs undirtektir. Þar
er skyggnst inn í líf íslenskrar
bændafjölskyldu á árunum 1950
til 1980. Meðlimir hennar fara
á síld, lenda í Kananum, upplifa
Bítlaæðið, bregða sér á bændahá-
tíð og lenda í ýmsum skondnum
aðstæðum. Inn í söguna eru flétt-
uð fjölmörg lög frá þessu tíma-
bili.
Höfundur verksins er Hörður
Benónýsson á Hömrum í Reykja-
dal og hann er jafnframt leik-
stjóri. Tónlistarstjóri er Pétur
Ingólfsson og auk hans annast
undirleik þeir Jaan Alavere og
Þórgnýr Valþórsson.
„Það hefur verið bullandi
aðsókn,“ segir Hörður. „Þegar
hafa tæplega 800 manns séð upp-
færsluna sem er meiri fjöldi en
býr í allri Þingeyjarsveit.“ Hann
segir þrjátíu og tvo leikara taka
þátt í sýningunni og kveðst hafa
skrifað verkið með leikhópinn í
huga. Næstu sýningar verða 13.
14. og 15. apríl sem helgast af því
að meðal leikenda eru nemendur
Framhaldsskólans á Laugum sem
koma víða að af landinu og fara
heim í páskafrí.
- gun
Bullandi aðsókn
MEGINSTÓLPI EFLINGAR
Allt frá því að Hörður Benónýsson steig á
svið í Sveitasinfóníu eftir Ragnar Arnalds
árið 1990 hefur hann verið einn af megin
stólpum leikdeildar Eflingar. Fyrstu árin
sem leikari, leikmyndasmiður og leik-
nefndarmaður, en hin seinni ár einnig sem
höfundur og leikstjóri.
Gestir og gangandi eru velkomnir í galleríið L51 Art Center Laugavegi
51. Þar stendur nú yfir myndlistarsýning Rúnu K. Tetzchner, Loga-
fjöll og ljósadans. Myndefnið eru eldfjöll og norðurljós en myndirnar
eru unnar með sérstakri blandaðri tækni sem Rúna hefur þróað síðan
1999. Um er að ræða tússlita- og vatnslitamyndir unnar með pennum
og penslum á pappír, auk þess sem tindrandi duftlitir eru bræddir á
myndirnar.
Myndir Rúnu hafa á sér ævintýra- og töfrablæ, og má kenna mynd-
list hennar við töfraraunsæi eða andlega list. Risastórt skrautfiðrildi
sveimar um yfir glóandi hrauninu og hugrökk eldkona laugar sig í
vatninu við gosið. Ljósverur og verndarenglar skrýðast norðurljósum
og töfrandi litlir bátar sigla yfir himininn. Á sýningunni má einnig sjá
skrautskriftarverk þar sem ljóð eru skrautrituð inn í myndirnar og
vinnur Rúna þar meðvitað undir áhrifum lýsinga og fornra handrita.
Sýning Rúnu í L51 Art Center stendur út apríl. Í dag frá þrjú til sex
og á laugardag frá eitt til þrjú situr Rúna í galleríinu og bræðir liti á
pappír þannig að gestir og gangandi fá tækifæri til að sjá hvernig hún
vinnur.
Logafjöll og ljósadans Rúnu
TÖFRARAUNSÆI Myndir Rúnu
eru kenndar við töfraraunsæi
eða andlega list.
MaGNaðAR MYNDAVÉLAR
• 12 milljón pixlar • WIDE 4 x aðráttarlinsa (27-108mm) • 2.7” LCD skjár • Ljósop 2.9 – 6.5
• Hristivörn • Vídeoupptaka með hljóði (30fps) • Verð: 14.900 kr
Fínleg og
einföld
Gæðavél á fínu verði
• 14 milljón pixlar • WIDE 5x aðráttarlinsa (26-130mm) • 3,0” LCD skjár • Sérstök vörn á skjá
• Ljósop 2.8 – 6.5 • Hristivörn • Vídeoupptaka í HD 720p með hljóði • Verð: 16.900 kr
OLYMPUS • VG-150
OLYMPUS • VG-160
• 14 milljón pixlar • WIDE 5x aðráttarlinsa (26-130mm) • 3,0” LCD skjár
• Sérstök vörn á skjá • Ljósop 2.8 – 6.5 • Hristivörn • Vídeoupptaka í HD 720p með hljóði
• Öflugt flass, dregur 15m • Verð: 21.900 kr
OLYMPUS • VG-170
Glæsileg og öflug
Vel búin og flott hönnun
OLYMPUS • VH-210
• 14 milljón pixlar • WIDE 5x aðráttarlinsa (26-130mm) • 3,0” LCD skjár • Sérstök vörn
á skjá • Ljósop 2.8 – 6.5 • Hristivörn • Verð: 19.900 kr
Verslanir og umboðsmenn um land allt
LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK
SÍMI 530 2800
ORMSSON.IS