Fréttablaðið - 04.04.2012, Blaðsíða 60
4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR44 44
popp@frettabladid.is
LÍFIÐ ER FERÐALAG
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.I
S
U
TI
5
90
49
0
3/
12
TILBOÐ 16.990 KR.
HIGH PEAK NEVADA
Þriggja manna tjald með fortjaldi.
Vatnsheldni: 2.000 mm.
Þyngd: 3.980 g.
Verð áður: 19.990 kr.
TILBOÐ 14.990 KR.
TNF ALEUTIAN
Hentugur til notkunar sumar, vor
og haust.
Þyngd 1.545 g.
Þolmörk -5°C.
Verð áður: 19.990 kr.
ÚRVAL FERMINGARGJAFA Á FRÁBÆRU VERÐI
TILBOÐ 18.990 KR.
HIGH PEAK TRANGO 65
Vandaður og traustur bakpoki
með góðu burðarkerfi.
Þyngd: 1.850 g.
Verð áður: 23.990 kr.
TILBOÐ 29.990 KR.
HIGH PEAK VIPER 1400
Vandaður léttur dúnsvefnpoki.
Þolmörk: -6°C.
Þyngd: 1.275 g.
Þriggja árstíða.
Verð áður: 39.990 kr.
NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS
Transkonunni Jennu Talackova
hefur verið heimilað að taka þátt
í úrslitakeppni Miss Universe í
Kanada. Aðstandendur keppninn-
ar höfðu vísað Talackova úr keppni
fyrir viku, eftir að upp komst að
hún fæddist strákur. Í yfirlýsingu
frá keppninni segir að Talackova
fái að taka þátt, fylgi hún reglum
keppninnar.
Talackova hefur upplifað sig
sem stúlku síðan hún var fjögurra
ára gömul og þegar hún var 14 ára
byrjaði hún í hormónameðferð.
Þegar hún var 19 ára gömul gekkst
hún svo undir kynleiðréttingarað-
gerð en Talackova er 23 ára í dag.
Transkona má vera
með í Miss Universe
FÆR AÐ TAKA ÞÁTT Jenny Talackova
gekkst undir kynskiptiaðgerð 19 ára
gömul og tekur þátt í Miss Universe-
keppninni í Kanada. Talackova er til
hægri á myndinni. NORDICPHOTOS/AFP
Katrín hertogaynja af Cambridge er mikil tísku-
fyrirmynd og allt sem hún klæðist rýkur úr hillum
búðanna. Tengdafaðir hennar, Karl Bretaprins,
hefur tekið eftir þessari þróun og vill nú að hún
klæðist fatnaði frá breska fatahönnuðinum Harry
Tweed en merkið er í miklu uppáhaldi hjá prins-
inum. Fyrirtækið þarf að bæta sölu á alþjóðlegum
markaði og bíður nú í ofvæni eftir að hertogaynjan
klæðist fatnaði frá þeim.
„Með því að klæðast fötum frá Harry Tweed
er hertogaynjan ekki bara að aðstoða breskan fatahönnuð, heldur að
hjálpa heilli vinnustofu sem þarf á hjálp að halda. Ég hef heyrt að
prinsinn ætli sér að tala við Katrínu og við megum því búast við að
sjá hana klæðast Tweed á opinberum vettvangi með vorinu,“ segir
ónefndur heimildarmaður við Daily Express.
Fær tískuráð frá tengdó
Söngvarinn Daníel Óliver
vinnur nú að því að koma
sér á framfæri í mekka
popptónlistarinnar, Svíþjóð.
„Þetta er fyrsta lagið sem ég tek
upp síðan ég flutti hingað til Sví-
þjóðar. Það er mikið í gangi og ég
hef verið að fá jákvæð viðbrögð frá
upptökustjórum hérna, svo ég er
mjög spenntur fyrir næstu misser-
um,“ segir söngvarinn Daníel Óli-
ver sem lauk nýlega við upptökur
á nýjasta lagi sínu, DJ Blow My
Speaker.
Lagið var tekið upp í Telegram-
hljóðverinu þar sem stórstjörn-
urnar Cher, Christina Aquilera og
Robyn hafa meðal annars tekið upp
plötur sínar. Það er samið af Daní-
el sjálfum, í samvinnu við Örlyg
Smára og Karl Batterbee, og er
væntanlegt í spilun í byrjun sum-
ars.
„Svo er von á tveimur lögum
í viðbót á næstunni en ég er að
fara að taka upp með sænsku upp-
tökustjórunum Rob Curti og Erik
Gold,“ segir Daníel, en þeir kapp-
ar hafa meðal annars unnið með
stjörnum á borð við Rihönnu og
Miley Cyrus.
Daníel Óliver olli töluverðu
fjaðrafoki á dögunum með viðtali
sem birtist við hann í DV þar sem
hann var sagður telja sig verða
fyrir fordómum vegna fegurðar
sinnar. Aðspurður um greinina
getur Daníel ekki annað en hlegið.
„Já, ég frétti að Auddi og Sveppi
hefðu gert heilan þátt um þetta.
Sem talsmaður fallega fólksins frá
Íslandi hlæ ég bara að vitleysunni
sem þessi grein olli,“ segir hann
sposkur.
Lífið leikur við Daníel í Svíþjóð.
„Ég er búinn að koma mér vel fyrir
hérna í Stokkhólmi. Ég er með lang-
tíma leigusamning á íbúð í miðbæn-
um og fasta vinnu svo ég stefni á að
vera hér áfram, en svo er nú aldrei
að vita hvað gerist næst,“ segir
Daníel Óliver kátur í bragði. - trs
Fetar í fótspor stórstjarna
NÝTT LAG VÆNTANLEGT Daníel Ólíver bætir nýju lagi í safnið, en áður hefur hann
meðal annars gefið út lögin Dr. Love, Superficial og Takin it back
8 MILLJARÐA ÍSLENSKRA KRÓNA er húsið, sem Katy Perry fær við skilnaðinn við Russell Brand metið á, en húsið er í Los Angeles.