Fréttablaðið - 04.04.2012, Blaðsíða 63
MIÐVIKUDAGUR 4. apríl 2012 47
200 bíómiðar
Taktu þá
tt
í topplei
k
Cocoa Puf
fs!
Sendu þrjá bláa toppa af Cocoa
Puffs pökkum merkt:
Cocoa Puffs leikur, Klettagörðum 19,
104 Reykjavík – ásamt nafni og
símanúmeri og þú ert kominn í
pottinn.
Dregið 18. apríl.
www.cocoapuffs.is
20
á
rsk
ort í húsdýragarðin
n
Fe
rð
fy
rir
fjó
ra til Euro Disney*
Í aðalvinning er
fjölskylduferð fyrir
fjóra til Euro Disney
auk fjölmargra
annarra glæsilegra
vinninga.
*Innifalið: Flug fyrir fjóra til Parísar, báðar leiðir
og aðgangskort fyrir fjóra í Euro Disney.
James Bond mun setja Ólympíu-
leikana sem fara fram í London
í sumar. Það er leikarinn Daniel
Craig sem hefur farið með hlut-
verk Bonds í síðustu kvikmynd-
unum um njósnara hennar
hátignar.
Samkvæmt The Guardian
hafa leikstjórinn Danny Boyle
og Daniel Craig unnið náið með
Bretlandsdrottningu að stutt-
myndinni The Arrival sem fjallar
um nýjasta verkefni Bonds; að
setja Ólympíuleikana.
Í myndinni ferðast
Bond frá Bucking-
ham-höll að Ólymp-
íuleikvellinum og
búast má við að inn-
koma hans á völl-
inn verði töff
að hætti
Bonds.
James Bond
hefur leika
SETUR LEIKANA
James Bond mun að
öllum líkindum setja
Ólympíuleikana sem
fara fram í London.
Madonna segir börnin sín fjögur
vera óvægin í gagnrýni sinni á
tónlist hennar. Söngkonan segir
gagnrýnina stundum særa hana
að innstu hjartarótum.
Madonna á börnin Lourdes,
Rocco, Mercy og David og segir
hún þau vera harða gagnrýnend-
ur. „Þau eru óþægilega hreinskil-
in þegar þeim líkar tónlistin mín
ekki. Þau eru algjörlega taktlaus í
gagnrýni sinni. Þau segja einfald-
lega: „Mamma, slökktu á þessu
lagi.“ Það getur verið særandi en
þau eru í það minnsta hreinskil-
in,“ sagði söngkonan um börnin.
Gagnrýna
Madonnu
HREINSKILIN BÖRN Madonna segir
börnin sín vera óvægin í gagnrýni sinni
á tónlist hennar. NORDICPHOTOS/GETTY
Þátttaka Kýpur í Eurovision-
söngvakeppninni í Bakú í maí
stendur nú völtum fótum.
Eftir að árleg fjárhagsáætlun
ríkissjónvarpsins á Kýpur, sem
kostar þátttökuna í keppninni, var
ekki samþykkt á fundi fyrir nokkr-
um dögum hefur sprottið upp vafi
á því hvort fjármagn fáist til að
senda Ivi Adamou og hóp hennar
til Aserbaídsjan. Stjórnvöld hafa
frestað umræðum um áætlunina
þar til í næstu viku.
Ivi og félagar virðast þó hafa
litlar áhyggjur af þessu smávægi-
lega bakslagi. Söngkonan sendi
í það minnsta frá sér skilaboð á
Twitter þar sem hún fullvissaði
aðdáendur sína um það að allt færi
þetta vel og óþarfi væri að hafa
nokkrar áhyggjur.
Eurovision of dýrt
FJÁRMAGNSÖRÐUGLEIKAR Kýpverska
ríkissjónvarpið gæti átt í erfiðleikum
með að fjármagna þátttöku Ivi Adamou
í Eurovision.
Rihanna hefur lýst yfir áhuga á að leika
söngkonuna Whitney Houston verði kvik-
mynd um ævi hennar einhvern tímann gerð.
„Ég mundi leggja allt undir til að geta
skilað hlutverkinu af mér með sóma. Þetta
er risarulla og sú sem tekur hana að sér
verður að standa sig vel,“ sagði söngkonan í
viðtali við The Press Association. Jennifer
Hudson, Vivica Fox og Jordin Sparks þykja
einnig koma til greina sem Houston.
„Fyrsta lagið sem ég heillaðist af var
með Whitney Houston, I Will Always Love
You. Lagið veitti mér innblástur og er í
raun ástæðan fyrir því að ég lagði fyrir mig
söng,“ segir Rihanna sem þreytir frum-
raun sína á hvíta tjaldinu í kvikmyndinni
Battleship.
Vill leika Houston
VILL LEIKA HOUSTON Rihanna vill fara með hlutverk Whitney Houston
verði kvikmynd um ævi söngkonunnar gerð. NORDICPHOTOS/GETTY