Fréttablaðið - 04.04.2012, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 04.04.2012, Blaðsíða 34
4. APRÍL 2012 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● mastersmótið 2012 Rory McIlroy er á góðri leið með að verða einn þekktasti kylfingur heims en hann á enn töluvert í land að ná Tiger Woods í vinsældum. Hinn 22 ára Norður-Íri var í dauðafæri fyrir ári á lokadegi Mastersmótsins þar sem hann mætti til leiks í síðasta ráshóp með fjögurra högga forskot á keppinauta sína. McIlroy klúðraði lokahringnum með eftirminnilegum hætti og lék eins og meðalskussi í íþróttinni, á 80 höggum. Charl Schwartzel frá Suður-Afríku sigraði á mótinu en fæstir muna eftir því. Klúðrið hjá McIlroy stóð upp úr þegar mótið var gert upp í fjölmiðlum. Norður-Írinn lifir í „and- legri-Greg Norman“ blöðru Endurkoma Tigers Woods inn á golfsviðið hefur án efa vakið athygli hjá keppinautum hans. Woods sigraði á Arnold Palmer-meistaramótinu fyrir rúmri viku. Það var fyrsti sigur hans á atvinnu- móti frá árinu 2009 og Woods virðist vera á réttri leið eftir ömurlegt gengi. Rory McIlroy fagnar því að Tiger Woods sé að ná sér á strik – og segir að það sé frábært fyrir golfíþróttina sem slíka. En hinn 22 ára gamli Norður-Íri er ekkert smeykur við þá samkeppni sem fylgir því að Tiger Woods sé jafnvel að nálgast sitt besta form. „Að mínu mati er það gott fyrir golfíþróttina að Tiger Woods sé að leika vel að nýju. Hann skapar stemningu og eftir- væntingu sem enginn annar getur gert. Fyrir mig persónulega skiptir þetta engu máli. Ég þarf bara að einbeita mér að því sem ég geri,“ sagði McIlroy. Rory McIlroy óttast ekki Tiger Woods McIlroy lærði af reynslunni og hann reis upp úr öskunni átta vikum síðar þegar hann sigraði með glæsibrag á Opna banda- ríska meistaramótinu – og land- aði þar með sínum fyrsta sigri á einu af risamótunum fjórum sem fram fara á hverju ári. McIlroy ætlar að læra af reynslunni og mun hann loka sig algjörlega frá því sem er að gerast í hinu dag- lega lífi á meðan Mastersmót- ið fer fram. Hann ætlar að búa til „andlega blöðru“ sem hann mun dvelja í á meðan keppnin fer fram. McIlroy fékk góð ráð frá reyndum köppum eftir lokadag- inn á Mastersmótinu fyrir ári. Þar fór fremstur í flokki „Hvíti hákarlinn“ Greg Norman frá Ástralíu. Ef einhver þekkir þá tilfinningu að standa uppi með ekki neitt í höndunum eftir loka- dag á risamóti þá er það Norm- an. Hann hefur átta sinnum á ferlinum endað í öðru sæti á stór- móti – sem er reyndar ekki met. Jack Nicklaus endaði 19 sinnum í öðru sæti og Bandaríkjamaður- inn Tom Watson deilir öðru sæt- inu með Norman á þessum lista. „Greg Norman hefur ávallt gefið sér tíma til þess að ráð- leggja mér og hann er frábær manneskja sem vill öllum vel. Hann hafði samband við mig eftir mótið á Augusta í fyrra og gaf mér góð ráð. Eitt af þeim var að ég ætti ekki að fylgjast með því sem er að gerast fyrir utan golfvöllinn á meðan mótið fer fram. Ekki lesa blöð, horfa á sjón- varpsfréttir eða nota samskipta- vefi. Ég þarf að loka mig algjör- lega af og einbeita mér að golf- inu og mótinu sjálfu. Ég hef verið að æfa mig í þessu og það hefur gengið vel. Norman náði góðum tökum á þessu þegar hann var á hátindi ferilsins og ég hlusta þegar hann gefur mér ráð,“ sagði McIlroy. BROCCOLI OG KJÚKLINGUR Í ÖLL MÁL Hinn 22 ára gamli Norður-Íri hefur komið með ferska vinda inn í atvinnugolfið og áhugi fjölmiðla á kylfingnum hefur stóraukist eftir að hann opin- beraði samband sitt við eina bestu tenniskonu heims, Caro- line Wozniacki frá Danmörku. Á undanförnum 16 mánuðum hefur McIlroy verið í samstarfi við Steve McGregor sem er einn þekktasti styrktarþjálfari Bret- lands. McGregor hafði áður gjör- breytt líkamsástandi enska kylf- ingsins Lee Westwood sem er í þriðja sæti heimslistans. Í viðtali við bandaríska tíma- ritið Men’s Health segir McIlroy að hann hafi öðlast meiri stöð- ugleika í golfsveiflunni eftir að hann hóf að taka á lóðunum af enn meiri krafti en áður. McIlroy verður seint sagður „tröll að vexti“ en hann er rétt um 72 kg að þyngd og 1,80 m á hæð. Hann leikur sér að því að slá 270 metra upphafshögg en aukin högglengd var ekki það sem McIlroy vildi fá út úr styrktaræf- ingunum. Högglengd Norður-Ír- ans ætti að nýtast vel á Augusta en högglangir kylfingar hafa oft haft betur en þeir sem slá styttra á þessu stórmóti. Styrktarþjálfun McIlroy hefur m.a. snúist um að fá betra jafn- vægi í vöðvastyrkinn í efri hlut- ann en aðaláherslan var lögð á að styrkja neðri líkamshluta á borð við mjaðmir, kálfa og lærvöðva þar sem krafturinn í golfsveifl- unni verður til. Líkamsfituhlutfal l ið hjá McIlroy hefur lækkað mikið á síðustu mánuðum og hann hefur einnig gjörbreytt matarvenjum sínum. Kjúklingur og brokkólí er aðalrétturinn hjá einum besta kylfingi heims. EINSTAKUR KYLFINGUR Hinn reyndi kylfingur Gary Player frá Suður-Afríku spáir því að Rory McIlroy eigi eftir að vinna fleiri stórmót en Player gerði sjálfur á löngum ferli sínum. Pla- yer sigraði alls á 9 stórmótum og þar af tvívegis á Mastersmótinu. Hinn 76 ára gamli Player hefur mikla trú á Norður-Íranum. „Þessi ungi maður hefur hæfileika. Þegar hann fer að sýna meiri stöðug- leika í púttunum þá á hann eftir að vinna fleiri risamót. Það eru margir með hæfileika þarna úti, þar má nefna Charl Schwartzel og Jason Day – en Rory er einstakur,“ sagði Player í viðtali við breska dagblaðið Daily Mail á dögunum. Ég þarf að loka mig algjörlega af og einbeita mér að golfinu og mótinu sjálfu. Ég hef verið að æfa mig í þessu og það hefur gengið vel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.