Fréttablaðið - 04.04.2012, Page 34
4. APRÍL 2012 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● mastersmótið 2012
Rory McIlroy er á góðri leið með að verða einn þekktasti
kylfingur heims en hann á enn töluvert í land að ná Tiger Woods
í vinsældum. Hinn 22 ára Norður-Íri var í dauðafæri fyrir ári á
lokadegi Mastersmótsins þar sem hann mætti til leiks í síðasta
ráshóp með fjögurra högga forskot á keppinauta sína. McIlroy
klúðraði lokahringnum með eftirminnilegum hætti og lék eins
og meðalskussi í íþróttinni, á 80 höggum. Charl Schwartzel frá
Suður-Afríku sigraði á mótinu en fæstir muna eftir því. Klúðrið hjá
McIlroy stóð upp úr þegar mótið var gert upp í fjölmiðlum.
Norður-Írinn lifir í „and-
legri-Greg Norman“ blöðru
Endurkoma Tigers Woods inn á golfsviðið hefur
án efa vakið athygli hjá keppinautum hans. Woods
sigraði á Arnold Palmer-meistaramótinu fyrir
rúmri viku. Það var fyrsti sigur hans á atvinnu-
móti frá árinu 2009 og Woods virðist vera á réttri
leið eftir ömurlegt gengi. Rory McIlroy fagnar því
að Tiger Woods sé að ná sér á strik – og segir að
það sé frábært fyrir golfíþróttina sem slíka. En
hinn 22 ára gamli Norður-Íri er ekkert smeykur
við þá samkeppni sem fylgir því að Tiger Woods sé
jafnvel að nálgast sitt besta form. „Að mínu mati
er það gott fyrir golfíþróttina að Tiger Woods sé að
leika vel að nýju. Hann skapar stemningu og eftir-
væntingu sem enginn annar getur gert. Fyrir mig
persónulega skiptir þetta engu máli. Ég þarf bara
að einbeita mér að því sem ég geri,“ sagði McIlroy.
Rory McIlroy óttast
ekki Tiger Woods
McIlroy lærði af reynslunni og
hann reis upp úr öskunni átta
vikum síðar þegar hann sigraði
með glæsibrag á Opna banda-
ríska meistaramótinu – og land-
aði þar með sínum fyrsta sigri á
einu af risamótunum fjórum sem
fram fara á hverju ári. McIlroy
ætlar að læra af reynslunni og
mun hann loka sig algjörlega frá
því sem er að gerast í hinu dag-
lega lífi á meðan Mastersmót-
ið fer fram. Hann ætlar að búa
til „andlega blöðru“ sem hann
mun dvelja í á meðan keppnin
fer fram.
McIlroy fékk góð ráð frá
reyndum köppum eftir lokadag-
inn á Mastersmótinu fyrir ári.
Þar fór fremstur í flokki „Hvíti
hákarlinn“ Greg Norman frá
Ástralíu. Ef einhver þekkir þá
tilfinningu að standa uppi með
ekki neitt í höndunum eftir loka-
dag á risamóti þá er það Norm-
an. Hann hefur átta sinnum á
ferlinum endað í öðru sæti á stór-
móti – sem er reyndar ekki met.
Jack Nicklaus endaði 19 sinnum
í öðru sæti og Bandaríkjamaður-
inn Tom Watson deilir öðru sæt-
inu með Norman á þessum lista.
„Greg Norman hefur ávallt
gefið sér tíma til þess að ráð-
leggja mér og hann er frábær
manneskja sem vill öllum vel.
Hann hafði samband við mig
eftir mótið á Augusta í fyrra og
gaf mér góð ráð. Eitt af þeim var
að ég ætti ekki að fylgjast með
því sem er að gerast fyrir utan
golfvöllinn á meðan mótið fer
fram. Ekki lesa blöð, horfa á sjón-
varpsfréttir eða nota samskipta-
vefi. Ég þarf að loka mig algjör-
lega af og einbeita mér að golf-
inu og mótinu sjálfu. Ég hef verið
að æfa mig í þessu og það hefur
gengið vel. Norman náði góðum
tökum á þessu þegar hann var
á hátindi ferilsins og ég hlusta
þegar hann gefur mér ráð,“ sagði
McIlroy.
BROCCOLI OG KJÚKLINGUR Í ÖLL MÁL
Hinn 22 ára gamli Norður-Íri
hefur komið með ferska vinda
inn í atvinnugolfið og áhugi
fjölmiðla á kylfingnum hefur
stóraukist eftir að hann opin-
beraði samband sitt við eina
bestu tenniskonu heims, Caro-
line Wozniacki frá Danmörku.
Á undanförnum 16 mánuðum
hefur McIlroy verið í samstarfi
við Steve McGregor sem er einn
þekktasti styrktarþjálfari Bret-
lands. McGregor hafði áður gjör-
breytt líkamsástandi enska kylf-
ingsins Lee Westwood sem er í
þriðja sæti heimslistans.
Í viðtali við bandaríska tíma-
ritið Men’s Health segir McIlroy
að hann hafi öðlast meiri stöð-
ugleika í golfsveiflunni eftir að
hann hóf að taka á lóðunum af
enn meiri krafti en áður.
McIlroy verður seint sagður
„tröll að vexti“ en hann er rétt
um 72 kg að þyngd og 1,80 m á
hæð. Hann leikur sér að því að
slá 270 metra upphafshögg en
aukin högglengd var ekki það sem
McIlroy vildi fá út úr styrktaræf-
ingunum. Högglengd Norður-Ír-
ans ætti að nýtast vel á Augusta
en högglangir kylfingar hafa oft
haft betur en þeir sem slá styttra
á þessu stórmóti.
Styrktarþjálfun McIlroy hefur
m.a. snúist um að fá betra jafn-
vægi í vöðvastyrkinn í efri hlut-
ann en aðaláherslan var lögð á að
styrkja neðri líkamshluta á borð
við mjaðmir, kálfa og lærvöðva
þar sem krafturinn í golfsveifl-
unni verður til.
Líkamsfituhlutfal l ið hjá
McIlroy hefur lækkað mikið á
síðustu mánuðum og hann hefur
einnig gjörbreytt matarvenjum
sínum. Kjúklingur og brokkólí
er aðalrétturinn hjá einum besta
kylfingi heims.
EINSTAKUR KYLFINGUR
Hinn reyndi kylfingur Gary
Player frá Suður-Afríku spáir því
að Rory McIlroy eigi eftir að vinna
fleiri stórmót en Player gerði
sjálfur á löngum ferli sínum. Pla-
yer sigraði alls á 9 stórmótum og
þar af tvívegis á Mastersmótinu.
Hinn 76 ára gamli Player hefur
mikla trú á Norður-Íranum. „Þessi
ungi maður hefur hæfileika. Þegar
hann fer að sýna meiri stöðug-
leika í púttunum þá á hann eftir
að vinna fleiri risamót. Það eru
margir með hæfileika þarna úti,
þar má nefna Charl Schwartzel og
Jason Day – en Rory er einstakur,“
sagði Player í viðtali við breska
dagblaðið Daily Mail á dögunum.
Ég þarf að loka mig algjörlega af og
einbeita mér að golfinu og mótinu sjálfu.
Ég hef verið að æfa mig í þessu og það
hefur gengið vel.