Fréttablaðið - 04.04.2012, Blaðsíða 28
28 4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR
Mörgum brá í brún þegar til stóð að byggja skyndibita-
stað með lúgum auk bensín-
stöðvar á syðsta hluta miðbæjar
Akureyrar fyrir norðan og neðan
gamla samkomuhúsið. Sem betur
fór var fallið frá þeim skipu-
lagslega bútasaum þar sem ekk-
ert var skoðað í samhengi við
nágrennið. Í fyrirliggjandi til-
lögum um skipulag sama svæðis
bregður nýrra við því horft er á
það í heild norður að Kaupvangs-
stræti. Gert er ráð fyrir að varð-
veita byggingar sem fyrir eru,
styrkja með því götumyndina og
nýta syðsta hluta svæðisins fyrir
hótel af hóflegri stærð. Þar fyrir
norðan verði byggð tveggja hæða
íbúðarhús með portbyggðu risi allt
að Torfunesbryggju.
Ef vel tekst til um hönnun hótels-
ins og þessara húsa vinnst margt.
Hafnarstrætið verður með sínar
gömlu og virðulegu byggingar og
gönguleiðin greið frá kaupfélags-
horninu til Höfnerssvæðisins og
þaðan suður í Fjöru þar sem elstu
húsin standa innvirðulega í röðum.
Með því að byggja þessi lágreistu
hús vestan við Drottningarbraut
(39 til 45 íbúðir) hefur verið mynd-
uð hljóðvörn í Hafnarstrætinu
og þar verður því gott að dvelja
og spóka sig í þögn og virðulegu
umhverfi. Þá fyrst er hægt að tala
um kosti þess að varðveita gömlu
húsin og njóta en bakhlið þeirra
flestra er ekkert augnayndi enda
sneru þau að Pollinum í upphafi
og flestum hulin nema sæfarend-
um. Þess vegna er hið nýja skipu-
lag ekki ógnun við gömlu húsin í
Hafnarstrætinu heldur forsenda
þess að þau fái notið sín þegar búið
verður að gera þeim til góða með
lagfæringum færustu fagmanna.
Bílar og bílastæði
Eitt einkenna miðbæjar Akur-
eyrar eru mikil bílastæðaflæmi.
Víðast hvar eru slík stæði í mið-
bæjum sett undir yfirborð jarðar
eða í sérstök bílahús og því frekar
sem nær dregur kjörnum þeirra.
Þar eru bílar yfirleitt ekki á víða-
vangi enda eru slíkar lóðir alltof
verðmætar til þess eins að varð-
veita bíla dægrin löng. Í þeirri
skipulagstillögu sem hér er til
umræðu er gert ráð fyrir að bíla-
stæði hótelsins fari að hluta til í
kjallara þess og einnig verði bíla-
geymslur í íbúðarhúsunum norð-
anvið. Auk þess verða þar bíla-
stæði ofanjarðar og með því hefur
þeim fjölgað talsvert frá því sem
nú er á svæðinu enda þótt hús og
híbýli með tvö til þrjú hundruð
íbúa hafi einnig risið á sama stað.
Þannig hefur verið haldið á þá
braut í útjaðri miðbæjarins að
koma bílum að hluta í geymslur
og ætti það að vera til marks um
að sú stefna verði framkvæmd að
fullu þegar nær dregur kjarna
hans; þar ættu bílar ekki að sjást
nema í slíkum geymslum því
umferð gangandi fólks á að hafa
forgang. Það er einkenni vist-
vænna miðbæja að nýjar bygging-
ar taka mið af þeim sem fyrir eru
en eru jafnframt viðbót í takt við
nútímann og mynda umhverfi þar
sem mannlíf, útivist og viðskipti
blómstra í skjólsælu og björtu
umhverfi.
Áfram með smérið
Með þeim tillögum um syðsta
hluta miðbæjarins sem fyrir liggja
– og bæjarstjórn afgreiðir vonandi
fljótt og vel – er búið að varða veg-
inn til framhaldsins fyrir þann
hluta miðbæjarins sem eftir stend-
ur og mikil nauðsyn er að ljúka við
eins og fjölmennt íbúaþing lagði til
árið 2004. Með þessari tillögu er
uppfyllt sú ósk þingsins að í mið-
bænum verði lágreistar byggingar
í takt við eldri hús sem fyrir eru
og myndað verði skjól og afslappað
umhverfi þar sem bílar verði ekki
áfram leiddir til öndvegis eins og
nú er gert í öllu því flæmi bíla-
stæða sem einkenna miðbæinn.
Tillagan gæti því verið góður
grunnur nýs deiliskipulags fyrir
nyrðri hluta miðbæjarins þar sem
bílar verða settir ofan í jörðina eða
í bílahús, götur með lágreistum
húsum verði beint í austur-vest-
ur átt til að mynda skjól og birtu
á svæðinu og hafnaraðstaða fyrir
minni báta og skip verði gerð for-
svaranleg. Hún er nú algjörlega
óviðunandi eins og sást í haust
þegar fjöldi manns var að bjarga
skipum sem losnuðu upp í hvassri
sunnan átt.
Vonandi er það skipulag, sem
nú er kynnt í syðsta hluta mið-
bæjar Akureyrar til marks um
að bæjaryfirvöld ætli að sinna
skipulagsmálum hans af meiri
krafti en hingað til. Í því sam-
bandi má benda á þá miklu vinnu
sem unnin var á þessu sviði í fram-
haldi af áðurnefndu íbúaþingi.
Öll þau gögn liggja nú í hillum
bæjaryfirvalda eins og eitruð peð.
Þar er margt nýtilegt og ráð að
dusta af þeim rykið og bera saman
við það skipulag sem hér er til
umræðu. Menn sjá þá fljótt að þar
fer margt ágætlega saman.
Skref í rétta átt
Skipulagsmál
Ragnar
Sverrisson
kaupmaður
Kynleg tölvu-
og netnotkun
eldri borgara
Eitt af því sem Hagstofan skoðar reglulega er tölvu-
og netnotkun einstaklinga og er
könnun á þessu, sem gerð var
2011, á vef Hagstofunnar, hag-
stofan.is. Tekið var handahófs-
kennt úrtak 2.100 einstaklinga
16 til 74 ára úr Þjóðskrá og
spurningalistar lagðir fyrir í
gegnum síma. Áhugavert er að
skoða þessa tölfræði út frá aldri
og kyni svarenda enda kemur
þar margt athyglisvert í ljós.
Tölvur eru á 95% íslenskra
heimila, nettenging er á 93%
þeirra og 94% landsmanna eru
reglulegir notendur netsins.
Þessi rannsókn er gerð árlega í
29 öðrum Evrópuríkjum og því
hægt að bera Ísland saman við
þau. Þar eru 65% af heildar-
mannfjölda reglulegir notend-
ur en netnotendur eru flestir í
Noregi, Hollandi Lúxemborg,
Svíþjóð og Danmörku eða um
90%. Hvergi í Evrópuríkjunum
er tölvu- og netnotkun meiri en
á Íslandi.
Reyndar er undarlegt að
Hagstofan spyrji ekki fólk
sem er 75 ára og eldra því
mjög athyglisvert væri að sjá
netnotkun þess hóps.
Kynjamunur
í tölvu- og netnotkun
Tölvu- og netnotkun kvenna og
karla sem eru tölvu- og net-
notendur, þ.e. hafa notað tölvu
eða net síðustu þrjá mánuði,
er afar svipuð frá 16 til 54 ára
aldurs en í hópnum 55 til 74 ára
breytist það og er mikill munur
á milli kynjanna í þeim aldurs-
hópi. Rúmlega 77% kvenna nota
tölvur daglega en rúmlega 91%
karla. Munurinn milli kynja
í notkun netsins er minni en
rúmlega 76% kvenna nota það
daglega í þessum aldurshópi en
rúmlega 84% karla.
Á síðustu þremur mánuðum
áður en könnunin fór fram
höfðu 14% kvenna í aldurshópn-
um 55 til 74 ára verslað á netinu
en hlutfall karla á sama aldri er
helmingi hærra eða 28%.
Um 33% tölvu- og netnotenda
höfðu reynt að hafa áhrif á
samfélagslega eða pólitíska
umræðu t.d. með netkosningum
eða undirskriftalistum. Þar er
munurinn milli kynja í aldurs-
hópnum 55 til 74 ára á þann veg
að 24% kvenna segjast hafa
gert það en 37% karla. Hlutfall
kvenna er hins vegar hærra
en karla í notkun á samskipta-
síðum eins og Facebook og
Twitter. Samskiptasíður nota
84,2% kvenna en 67,4% karla
og í aldurshópnum 55 til 74 ára
þá hafa 59% kvenna notað sam-
skiptasíðurnar en aðeins rúm-
lega 40% karla. Það er þekkt
að konur beri í meira mæli en
karlar ábyrgð á samskiptum
við fjölskyldu og vini og birtist
þessi munur einnig greinilega í
samskiptum á netinu.
Það er athyglisvert að
sjá að 82,7% karla sem eru
netnotendur í þessum aldurs-
hópi hafa notað heimabanka
en aðeins 68,2% kvenna í
sama aldurshópi. Ýmis fyrir-
tæki bjóða ódýrari þjónustu ef
heimabanki er notaður enda
sparar það t.d. útsendingakostn-
að reikninga. Vörur eru einnig
oft ódýrari ef keypt er á netinu.
Það fylgir því þess vegna fjár-
hagslegur ávinningur að geta
notað netið. Þeim sem nýta
netið til kaupa á þjónustu eftir
24 ára aldur fer fækkandi eftir
því sem aldurinn færist yfir.
Möguleikum til að hafa áhrif
á samfélag sitt er að fjölga
á netinu og má nefna Betri
Reykjavík sem dæmi um það
en það er vefur sem borgarbúar
geta nýtt til að koma hugmynd-
um um betri borg á framfæri.
Það er hins vegar áhyggjuefni
ef þeir sem eru í aldurshópnum
55 ára og eldri eru ekki með
þekkingu til að nýta sér þessar
leiðir og hafa þannig áhrif á sitt
samfélag og á þetta sérstaklega
við um konur í þessum aldurs-
hópi. Það má einnig álykta sem
svo að konur í þessum aldurs-
hópi séu að greiða hærra verð
fyrir vöru og þjónustu þar sem
þær eru ekki að nýta ódýrari
leiðir sem bjóðast á netinu.
Námskeið í tölvu- og netnotkun
Reykjavíkurborg er með tölv-
unámskeið í félagsmiðstöðvum
fyrir eldri borgara á öllum
aldri. Námskeiðin eru sniðin
að þörfum hvers og eins. Vilja
sumir læra að nota samskipta-
síður en aðrir leitarvélar eða
versla svo eitthvað sé nefnt. Á
námskeiðunum kenna ungir
„tölvusérfræðingar“ úr grunn-
skólum borgarinnar en þeim til
halds og trausts eru sjálfboða-
liðar sem sjá til þess að allt
gangi smurt fyrir sig.
Þessi námskeið eru haldin
í félagsmiðstöðvum um alla
borg með stuðningi Evrópu-
sambandsins í gegnum verk-
efnið Electronic government
for you eða Rafrænar lausnir
fyrir alla. Við viljum hvetja
eldri borgara til að nýta sér
þessi námskeið og koma með
fartölvurnar sínar eða nota
þær tölvur sem eru á staðnum
og fá kennslu sem er algjör-
lega sniðin að þeirra þörfum.
Rétt er að geta þess að þeir sem
hafa mætt eru mjög ánægðir og
„kennararnir“ stoltir af sínum
nemendum.
Konur eru sérstaklega hvatt-
ar til að mæta því það er ljóst
af athugunum Hagstofunnar að
þær eru ekki að nýta sér betri
kjör sem bjóðast á netinu til
jafns á við karla og eru ekki að
hafa áhrif á samfélagið í gegn-
um netið í jafn miklum mæli og
þeir. Námskeiðin eru ókeypis
og haldin á eftirtöldum stöðum:
Hæðargarði, Vesturgötu,
Hvassaleiti, Bólstaðarhlíð, Afla-
granda, Vesturgötu og Árskóg-
um. Námskeið í Gerðubergi og
hjá Korpúlfunum í Grafarvogi
verða auglýst síðar. Allar nán-
ari upplýsingar um námskeið-
in veitir Björn Guðmundsson í
síma 411 4159, netfang: bjorn.
gudmundsson@reykjavik.is og
þjónustuver Reykjavíkurborgar
í síma 411 1111.
Netnotkun
Halldóra
Gunnarsdóttir
sérfræðingur á
mannréttinda-
skrifstofu
Reykjavíkurborgar
Við viljum hvetja eldri borgara til að
nýta sér þessi námskeið og koma með
fartölvurnar sínar eða nota þær tölvur
sem eru á staðnum og fá kennslu sem er algjörlega
sniðin að þeirra þörfum.
60%
AFSLÁTT
UR
20-70%AFSLÁTTUR Nýjar vörur með 10% afslætti!
Lagersala
30%
AFSLÁTT
UR
60%
AFSLÁTT
UR
HÚSGAGNAHÖLLIN Bíldshöfða 20 Reykjavík sími 585 7200
OPIÐ Í DAG 10-18 - LOKAÐ UM PÁSKANA, FIMMTUDAG
TIL MÁNUDAGS
209.986
FULLT VERÐ: 299.990
OREGON hornsófi 266 x 240 cm D:80 H:85 cm.
Áklæði vienna svart. Tunga hægra eða vinstra megin.
40%
AFSLÁTT
UR
47.994
FULLT VERÐ: 79.980
JANE eldhúsborð
80x120/220 cm, hvítt.
ANDREW borðstofustóll
fæst brúnn eða svartur
nú kr. 15.992
fullt verð kr. 19.990.
40%
AFSLÁTT
UR
SKOVBY sjónvarpsskenkur, eik/sápa.
B:162 D:47 H:52 cm.
107.994
FULLT VERÐ: 179.990
BE ON FIRE
Öll Be On fire kerti
með 60% afslætti.
Verð frá kr. 56
fullt verð kr. 139.
ZONE uppþvottabursti.
Rauður, hvítur eða svartur
Kr. 2.792 fullt verð kr. 6.980.