Fréttablaðið - 14.04.2012, Page 2
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR2
204 STK. PAKKNINGAR
2mg
2.871kr. 5.742kr.
4mg:
3.999kr. 7.998kr.
LAUGARDALSLAUG Endurbætur standa
yfir í Laugardal.
ÞJÓNUSTA Vegna framkvæmda við
Laugardalslaug verður lokað þar í
þrjá daga eftir helgi, frá mánu-
degi til miðvikudags.
Í frétt frá Reykjavíkurborg er
haft eftir Loga Sigurfinnssyni for-
stöðumanni að gestir hafi sýnt
ótrúlega þolinmæði og skilning.
„Meðal þess sem verður gert
meðan laugin verður lokuð er að
slá undan nýrri göngubrú, taka að
mestu niður vinnuaðstöðu og yfir-
breiðslur, mála potta, tengja nudd-
pott og koma fyrir nýju öryggis-
handriði. Laugin verður einnig
tæmd og þrifin,“ segir í fréttinni.
Laugin verður opnuð aftur að
morgni sumardagsins fyrsta. - gar
Viðgerðir í Laugardalslaug:
Lokað í laugina
eftir helgina
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest úrskurð Héraðsdóms Reykja-
víkur þess efnis að verjendur
Lárusar Welding og Guðmundar
Hjaltasonar, fyrrverandi yfir-
manna hjá Glitni, eigi ekki rétt
að fá í hendur geisladiska með
upptökum af yfirheyrslum skjól-
stæðinga sinna.
Verjendurnir kröfðust þess að
fá upptökurnar, ekki síst til að
sannreyna að rétt væri farið með
í endur ritum af yfirheyrslunum
sem eru meðal gagna málsins og
eiga að vera orðrétt.
Saksóknarinn mótmælti þessu
og benti á að verjendum og sak-
borningum stæði til boða að hlusta
á upptökurnar í húsakynnum sér-
staks saksóknara. Þá sagði sak-
sóknari jafnframt að ef fallist
yrði á kröfu verjendanna væri
hætta á að upptökurnar kæmust
í hendur einhverra sem þær
ættu ekkert erindi við og að
það gæti leitt til þess að þær
birtust á veraldarvefnum.
Fallist er á þetta,
bæði í niður stöðum
héraðsdóms og
Hæstaréttar.
Þar segir meðal
annars að um rafrænar upptökur
sé að ræða sem auðvelt sé að mis-
fara með, komist þær í rangar
hendur.
Verjendur Kaupþings-
manna í Al Thani- málinu
svokallaða hafa gert sams
konar kröfu og tekist
verður á um hana fyrir
dómi í lok mánaðar. - sh
Hæstiréttur neitar Lárusi Welding og Guðmundi Hjaltasyni um geisladiska:
Óttast að upptökur leki á netið
ÁKÆRÐUR Lárus sætir ákæru
fyrir umboðssvik vegna láns
Glitnis til Milestone.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVEITARSTJÓRNIR Árni Rúnar Þor-
valdsson, bæjarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar á Hornafirði, segir
„óvönduð vinnubrögð“ bæjarráðs
varðandi töku tilboðs í innanhúss-
endurbætur í Heppuskóla hafa
valdið því að sveitarfélagið varð
að gera sátt við annan bjóðanda í
verkið upp á 4,6 milljónir króna.
Heildarkostnaðurinn sé fimm
milljónir króna því lögfræði-
kostnaður sé 400 þúsund krónur.
„Til lengri tíma litið geta þessi
vinnubrögð skaðað sveitarfélagið
mun meira í formi minnkandi
trausts almennings og fyrirtækja
á því sem bæjarráð samþykkir,“
segir í bókun Árna. - gar
Bæjarfulltrúi um endurbætur:
Klúður kostaði
fimm milljónir
UMHVERFISMÁL Sorpstöð Rangár-
vallasýslu urðaði rúmlega
helmingi meiri sláturúrgang en
heimilt var árið 2010. Um 1.630
tonn af úrgangi voru urðuð en
einungis er veitt heimild til 800
tonna á ársgrundvelli.
Umhverfisstofnun hefur
áminnt sorpstöðina og krafist
úrbóta vegna málsins, sem kom í
ljós við eftirlit. Á vef Umhverfis-
stofnunar segir að fyrirtækinu
hafi verið veittur frestur til þess
að koma sjónarmiðum sínum
á framfæri og tækifæri til að
bregðast við. Verði ekkert að gert
er heimild til að beita sektum upp
á allt að 500 þúsund krónum á
dag. - sv
Sorpstöð fékk áminningu:
Fór langt yfir
hámark í urðun
Sigríður, er lífið lotterí?
„Já, og ég tek þátt í því!“
Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir hefur
verið ráðin í starf Lottó-þulu.
NEYÐARAÐSTOÐ Hátt í 40.000 börn á
Sahel-svæðinu í Afríku sunnan við
Saharaeyðimörkina hafa nú þegar
hafið meðferð hjá UNICEF, Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna, vegna
alvarlegrar bráðavannæringar.
Neyðarástand vofir yfir á svæðinu
eftir uppskerubrest í kjölfar þurrka.
Talið er að um ein milljón barna séu
í hættu á að verða vannæringu að
bráð nema eitthvað verði að gert.
Hjálp er þó tekin að berast og
hefur UNICEF þegar komið til skila
um 6,5 milljónum skammta af vít-
amínbættu hnetumauki auk ýmissa
annarra hjálpargagna sem sjá má á
meðfylgjandi mynd.
Hnetumaukið hefur reynst afar
vel í baráttunni við vannæringu
barna á hrjáðum svæðum, en það
hjálpar börnum að ná heilsu fyrir
utan hvað það geymist vel og er auð-
velt í notkun.
Starf UNICEF nær til átta landa á
Sahel-svæðinu og tíminn skiptir lyk-
ilmáli við að koma hjálpar gögnum til
þeirra sem á þurfa að halda.
Sameinuðu þjóðirnar tilkynntu
í vetur að um 724 milljónir Banda-
ríkjadala þyrfti til að fjármagna
aðgerðir í Sahel.
Margaret Chen, framkvæmda-
stjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
arinnar, sagði fyrir skemmstu að
alþjóðsamfélagið þurfi að bregðast
skjótt við. „Annars munu mörg börn
láta lífið og mikil fjöldi manna muni
líða skort.“
Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi UNICEF á Íslandi, segir
í samtali við Fréttablaðið að hjálpar-
starfið reiddi sig á framlag almenn-
ings. Söfnun standi yfir hér á landi
og gangi afar vel og þau hafi fundið
fyrir mikill velvild.
„Söfnunin er komin yfir 14 millj-
Hafa þegar hjálpað
nær 40.000 börnum
Hjálparstarf UNICEF á Sahel-svæðinu í Afríku er komið í fullan gang. Tugir
þúsunda barna hafa fengið meðferð vegna vannæringar. Söfnun UNICEF hefur
gengið vel á Íslandi og um fjórtán milljónir króna hafa þegar safnast.
cm
*Fjöldi aðframkominna barna sem er verið að bjarga með tveggja mánaða meðferð við
alvarlegri bráðavannæringu.
Neyðarhjálp UNICEF
Hjálpargögn sem send hafa verið á Sahel-svæðið síðustu daga
6.566.400
VÍTAMÍNBÆTT
JARÐHNETUMAUK
36.480
Börn*
400.000
VATNSHREINSI-
TÖFLUR
66.000
MÆLIBÖND FYRIR
HANDLEGG
360.000
PAKKAR AF NÆR-
INGARBÆTTU
MJÓLKURDUFTI
216.000 lítrar af mjólk
302.510
Sýklalyf (Amoxicilline)
10.000
VATNSTANKAR
100.000
LÍTRAR AF VATNI
180
VATNSPAKKAR
Hver pakki dugar
fyrir 10 fjölskyldur
Þetta eru dæmi um þau hjálpargögn sem UNICEF
sendir á Sahel-svæðið (Heimild: UNICEF)
ónir. Það er margfalt meira en við
gerðum okkur von um að geta safn-
að og við erum afar þakklát fyrir
stuðninginn. Fólk virðist gera sér
grein fyrir alvöru málsins og að
hvert framlag skiptir máli.“
Sigríður bætir því við að þar liggi
að baki þúsundir Íslendinga á öllum
aldri.
„Börn hafa til dæmis haft sam-
band við okkur og viljað aðstoða van-
nærða jafnaldra sína á Sahel-svæð-
inu. Svo höfum við fengið símtöl úr
bönkum þar sem börn eru stödd með
sparibaukana sína og vilja gefa og
fólk á níræðisaldri hefur sem dæmi
hringt og spurt hvernig það geti
aðstoðað.“
Þeim sem vilja leggja sitt af mörk-
um er bent á að upplýsingar má
finna á vefnum á unicef.is.
thorgils@frettabladid.is
SELTJARNARNES Kirkjugarður
gæti risið á Seltjarnarnesi ef
hugmyndir þess efnis ná fram
að ganga. Þrjár staðsetningar
koma til greina fyrir allt að þrjú
þúsund grafir.
Unnið hefur verið að hugmynd
um kirkjugarð á Seltjarnar-
nesi síðan um áramótin eftir
að áskorun þess efnis kom frá
velunnara kirkjunnar og hefur
starfshópur um verkefnið skilað
hugmyndum til skipulags- og
mannvirkjanefndar Seltjarnar-
nessbæjar. - jme
Kirkjugarður á Seltjarnarnesi:
Þrjú þúsund
grafir á Nesinu
EFNAHAGSMÁL Fjármálaeftirlitið
(FME) telur að áhrif gengislána-
dóms Hæstaréttar frá 15. febrúar
síðastliðnum og endurreikningar
lána vegna hans ógni ekki fjármála-
stöðugleika.
Þegar hafa lánastofnanir lands-
ins afskrifað rúmlega 70 milljarða
úr efnahagsreikningum sínum
vegna dómsins og þá er þess vænst
að 15 milljarðar til viðbótar verði
brátt afskrifaðir.
Verði dómurinn fordæmis-
gefandi fyrir öll lán sem mögulega
fela og fólu í sér ólöglega gengis-
tryggingu er það mat FME að hann
muni valda lánastofnunum landsins
alls um 165 milljarða króna höggi.
Þetta kemur fram í minnisblaði
sem FME hefur tekið saman um
áhrif dóms Hæstaréttar á inn lendar
lánastofnanir. Í dómnum fólst að
lánastofnunum bar að styðjast við
samningsvexti á gengis lánum til
þess dags sem Hæstiréttur dæmdi
slík lán ólögleg árið 2010. Lána-
stofnanir höfðu hins vegar stuðst
við óverðtryggða vexti Seðlabank-
ans eins og kveðið hafði verið á um
í tilmælum frá stjórnvöldum.
Þótt FME telji dóminn ekki fela
í sér ógn við fjármálastöðugleika
áréttar stofnunin að óvissan vegna
uppgjörs gengislána sé slæm fyrir
fjármálakerfið. Þá sé mikilvægt að
henni verði eytt sem fyrst.
FME sendi öllum lána stofnunum
landsins fyrirspurn þar sem þær
voru beðnar um að meta áhrif
dómsins á sig miðað við fjórar
sviðsmyndir um fordæmisgildi.
- mþl
Fjármálaeftirlitið birtir minnisblað um áhrif gengislánadómsins í febrúar:
Dómurinn ógnar ekki stöðugleika
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ FME spurðist fyrir
um áhrif dómsins á virði lána hjá lána-
stofnunum miðað við fjórar sviðsmyndir
um fordæmisgildi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMFÉLAGSMÁL Lýðheilsufélag
læknanema stóð fyrir svokölluðum
Blóðgjafarmánuði Háskóla Íslands
í mars síðastliðnum. Tilgangurinn
var að vekja athygli á þörf fyrir
blóðgjafir og að virkja nema til að
gerast blóðgjafar svo Blóðbankinn
gæti annað eftirspurn.
Verðlaun voru veitt til þess nem-
endafélags sem gaf hlutfallslega
mest blóð. Fjallið, félag jarðvís-
inda-, landafræði- og ferðamála-
fræðinema, hlaut Blóðbikarinn.
Vodafone styrkti Neistann, styrkt-
arfélag hjartveikra barna um 500
krónur fyrir hverja blóðgjöf og alls
söfnuðust um 200 þúsund krónur.
- sv
Blóðbikarinn afhentur:
Nemendur gáfu
blóð í bankann
BLÓÐGJÖF Nemendafélagið Fjallið bar
sigur úr býtum í keppninni.
SPURNING DAGSINS