Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 88
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR56 sport@frettabladid.is BURSTAR í vél- sópa á lager Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ. Sími 480-0000 · www.aflvelar.is - flestar stærðir STJARNAN OG ÍBV geta í dag komist í undanúrslit í úrslitakeppni N1-deildar kvenna í handbolta þegar leikir tvö fara fram í sex liða úrslitunum. Stjarnan vann HK 32-29 í fyrsta leik og ÍBV vann Gróttu 26-19. Tvo sigra þarf til að komast í undanúrslitin þar sem bíða topplið Vals og Fram sem sátu hjá í fyrstu umferðinni. Fari einvígin í oddaleik fara þeir fram á mánudaginn. KÖRFUBOLTI Njarðvíkurkonur fá í dag annað tækifæri til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í kvennakörfunni þegar þær heim- sækja Hauka í Schenker-höllinni á Ásvöllum. Leikurinn hefst klukkan 16.00 en staðan í úrslitaeinvíginu er 2-1 fyrir Njarðvík eftir dramatískan endurkomusigur Haukakvenna í Ljónagryfjunni á miðviku daginn var. Njarðvík vann tvo fyrstu leikina með því að eiga frá bæran lokaleikhluta og það hefur því verið spenna í öllum leikjunum. Njarðvíkurkonur töpuðu 3-0 í úrslitunum í fyrra en eru á góðri leið með að breyta silfri í gull og þær ættu að eiga góðar minningar frá Ásvöllum þar sem þær hafa unnið þrjá nokkuð sannfærandi sigra á þessu tímabili. Haukasigur þýðir oddaleik í Ljónagryfjunni á þriðjudaginn kemur en það yrði þá þriðji odda- leikurinn um Íslandsmeistara titil kvenna á síðustu fjórum árum. Haukakonur unnu KR í oddaleik 2009 og KR-konur unnu Hamar í oddaleik árið eftir. - óój Njarðvíkurkonur fá annað tækifæri til að tryggja sér fyrsta Íslandsmeistaratitilinn: Þriðji oddaleikurinn á 4 árum? MIKIL SPENNA Margrét Rósa Hálfdanar- dóttir og Salbjörg Sævarsdóttir berjast hér um boltann í leik 3. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG KÖRFUBOLTI Það ráku margir upp stór augu þegar Bandaríkja- maðurinn Joseph Henley birtist allt í einu á gólfi Icelandic Glacial- hallarinnar í Þorlákshöfn á fimmtudagskvöldið, klæddur í Þórs búninginn og klár í slaginn í mikilvægan leik gegn KR í úrslita- keppninni í Iceland Express-deild karla. Benedikt Guðmundsson, þjálfari liðsins, hafði þá fengið Hen- ley til landsins með skömmum fyr- irvara en hann fékk þær fréttir dag- inn fyrir leik að Matthew Hairston myndi ekki spila meira á tímabilinu. „Þá voru góð ráð dýr. Ég settist niður fyrir framan tölvuna og reyndi að redda einhverju. Ég vissi af þessum strák og þremur tímum síðar var hann búinn að samþykkja að koma,“ sagði Benedikt. Henley lenti á Keflavíkurflugvelli laust fyrir klukkan fimm í gær og var kominn til Þorlákshafnar um sex- leytið. Hann hitti þjálfarann í fyrsta sinn 45 mínútum fyrir leikinn sem Þórsarar svo unnu örugglega. „Það var ágætt að hann komst til landsins í tæka tíð en það var ekki haft neitt sérstaklega fyrir því. Ef hann hefði ekki komist hefði þurft að hafa það – við hinir vorum búnir að undirbúa okkur vel fyrir leikinn,“ segir Benedikt. Hairston hefur haft mikilvægu hlutverki að gegna í vetur en meiðsli hafa verið að plaga hann síðast liðnar vikur. Hann reyndi þó að þrauka fyrsta leikinn í einvígi KR og Þórs. „Hann hafði meiðst illa á hælnum og bæklunarlæknir sagði að meiðslin væru orðin það slæm að sprautumeðferð myndi engu bjarga. Hann þyrfti einfaldlega að hvíla í um átta vikur,“ segir Bene- dikt. „Henley var að spila með liði í Þýskalandi en tímabilinu hans þar var lokið. Hann vildi koma – aðal- lega til að sanna sig fyrir næsta ár. Ég sagði honum því bara að drífa sig og að við skyldum skoða hann í úrslitakeppninni.“ Henley skilaði sínu. Hann skoraði þrettán stig og tók sex fráköst á 26 mínútum sem er nánast sama töl- fræði og hann hafði að meðaltali í Þýskalandi í vetur. „Okkur gekk vel í leiknum og því gat ég leyft honum að vera lengur inni á en ég hafði annars gert. Ég var þó ekki að stóla á hann en hann studdi vel við aðra leikmenn og gerði sitt vel.“ KR-ingar taka svo á móti læri- sveinum Benedikts á heimavelli sínum annað kvöld og vill þjálfarinn ekki segja hvaða væntingar hann hafi til Henley. „Ég sé kannski betur á fyrstu æfingunni hans í kvöld hvað hann hefur fram að færa,“ sagði Benedikt í léttum dúr en viðtalið var tekið fyrir æfinguna í gær. Staðan í rimmu KR og Þórs er jöfn, 1-1. „Við vorum nálægt sigrinum í fyrsta leiknum, tókum þá í næsta leik og við höfum ekkert að óttast fyrir þriðja leikinn. Ég þarf bara að passa upp á að menn haldi ekki að þeir séu orðnir betri en KR- ingarnir. Þeir eru með stóra liðið í seríunni og langflestir sem reikna með sigri þeirra. Við þurfum bara að halda okkur við það sem við höfum gert.“ eirikur@frettabladid.is Hittust fyrst rétt fyrir leik Bandaríkjamaðurinn Joseph Henley var búinn að vera á landinu í rúmar tvær klukkustundir þegar hann spilaði í leik Þórs frá Þorlákshöfn og KR á fimmtu- dagskvöldið. „Ekki óskastaða fyrir neitt félag,“ sagði Benedikt Guðmundsson. HÁRPRÚÐUR Í STAÐ HAIRSTON Joseph Henley átti góða innkomu í leik Þórs og KR þrátt fyrir að hafa lent í Keflavík rúmum tveimur tímum fyrir leik. MYND/JÓN BJÖRN IE-deild karla: Stjarnan-Grindavík 68-71 Stjarnan: Justin Shouse 16/8 fráköst/6 stoðsendingar, Jovan Zdravevski 15/6 fráköst, Keith Cothran 14/9 fráköst, Guðjón Lárusson 6, Renato Lindmets 6/10 fráköst/5 stoðsendingar/3 varin skot, Marvin Valdimarsson 6/4 fráköst/5 varin skot, Dagur Kár Jónsson 3, Sigurjón Örn Lárusson 2. Grindavík: Giordan Watson 24/6 fráköst/8 stoðsendingar, J’Nathan Bullock 13/10 fráköst, Þorleifur Ólafsson 10/5 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 7/10 fráköst, Ólafur Ólafsson 7, Jóhann Árni Ólafsson 5/6 fráköst, Ryan Pettinella 3/4 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 2 ÚRSLIT HANDBOLTI Handboltafélag Akur- eyrar réð í gær þá Heimi Örn Árnason og Bjarna Fritzson sem þjálfara karlaliðsins næstu tvö árin. Þeir taka við starfinu af Atla Hilmarssyni sem lætur af störfum í lok leiktíðar eftir tvö ár með félagið. Ekki liggur fyrir hvort Atli muni þjálfa annað lið næsta vetur. Sævar Árnason mun áfram verða aðstoðarþjálfari liðsins líkt og síðustu ár. Ráðning þeirra félaga vekur nokkra athygli enda báðir leik- menn liðsins og þeir munu spila áfram með liðinu. Hvorugur hefur reynslu af því að þjálfa kar- lalið í meistaraflokki og verður áhugavert að sjá hvernig nýliðun- um gengur að tvinna það saman að þreyta frumraun sína á þjálf- arasviðinu á meðan þeir þjálfa líka. Markvörðurinn Sveinbjörn Pét- ursson og línumaðurinn Hörður Fannar Sigþórsson skrifuðu báðir undir nýjan samning við félagið í dag. Sveinbjörn skrifaði undir tveggja ára samning við Norðan- menn en samningur Harðar er til eins árs. - hbg Akureyri ræður nýja þjálfara: Heimir og Bjarni þjálfa HEIMIR ÖRN Fær að rífast í dómurum innan og utan vallar næsta vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Það er risahelgi í enska boltanum. Ekki aðeins fara fram áhugaverðir leikir í ensku úrvalsdeildinni því undanúrslita- leikirnir í bikarkeppninni verða spilaðir á Wembley. Erkifjendurnir í Liverpool og Everton hefja leik klukkan 11.30 í dag og á morgun er komið að Lundúnaliðunum Tottenham og Chelsea en sá leikur hefst klukkan 17.00. Liverpool er í miklum mark- varðavandræðum enda eru bæði aðalmarkvörðurinn, Pepe Reina, og varamarkvörðurinn, Alexander Doni, í leikbanni. Það kemur því í hlut Brad Jones að verja búrið hjá Liverpool í dag. Jones er ekkert sérstaklega reynslumikill og hefur þess utan ekki verið í byrjunarliðinu síðan í desember árið 2010. „Hann er spenntur rétt eins og allir aðrir. Hann hefur haldið sér í fínu formi í vetur þó svo hann hafi ekki gert ráð fyrir að spila. Hlutirnir breytast samt fljótt,“ sagði Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, en hann vonast til þess að þeir Daniel Agger og Glen Johnson verði klárir í slaginn. David Moyes, stjóri Everton, segir að sitt lið mæti til leiks með sjálfstraustið í lagi. „Nýju leikmennirnir okkar hafa komið virkilega sterkir inn og breytt liðinu til hins betra. Strákarnir sem voru fyrir hafa síðan bætt sinn leik og liðið er í virkilega góðu formi um þessar mundir. Við munum gera Liver- pool erfitt fyrir í þessum leik,“ sagði Moyes borubrattur en búast má við átakaleik innan sem utan vallar á Wembley í dag. - hbg Enski bikarinn: Undanúrslitin um helgina BRAD JONES Markvörður Liverpool verður undir smásjánni í dag. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES KÖRFUBOLTI Grindvíkingar eru komnir í 2-0 í undanúrslitum Ice- land Express-deildar karla eftir 71-68 baráttusigur á Stjörnunni í Garðabænum í gærkvöldi. Grind- víkingar komust upp með það að skora ekki í tæpar sex mínútur í fjórða leikhluta en þeir fóru í gang á hárréttum tíma og unnu fjórar síðustu mínútur leiksins 17-7. „Það er gott að komast með sigur út úr þessum leik. Við vorum ekki að spila fallegan körfubolta og Stjarnan ekki heldur. Við höfðum þetta af,“ sagði Helgi Jónas Guð- finnsson, þjálfari Grindavíkur. „Við erum búnir að vera í svona aðstöðu áður að þurfa að klára jafna leiki og höfum unnið. Það er að skila okkur hérna. Watson steig upp í kvöld og var frábær,“ sagði Helgi Jónas og það eru orð að sönnu. Giordan Watson skoraði 12 af 24 stigum sínum á lokakafla leiksins. „Við ætlum ekki að fara fram úr sjálfum okkur. Við erum með 2-0 forskot en ætlum ekki að hleypa þeim inn í seríuna á mánudaginn,“ sagði Helgi Jónas. Teitur Örlygs- son kollegi hans hjá Stjörnunni var niðurlútur í leikslok enda staðan orðin mjög erfið fyrir Stjörnuna. „Þetta var alveg ömurlegt og gríðarlega svekkjandi tap fyrir okkur,“ sagði Teitur en hans menn voru sjö stigum yfir þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir. „ Vörnin var algjörlega til fyrirmyndar en við verðum að skora hinum megin,“ sagði Teitur en hvað er til ráða: „Núna þurfum við bara að fara út í Grindavík og vinna á mánudaginn. Þetta er heljarinnar veggur að klífa en við verðum að ráðast á hann og láta reyna á það,“ sagði Teitur. - óój Grindavík hélt sigurgöngunni áfram og er komið í 2-0 í undanúrslitaeinvígi sínu gegn Stjörnunni: Ekki fallegur en mikilvægur Grindavíkursigur ÁTÖK Það var ekkert gefið eftir í Ásgarði í gær. Justin Shouse sést hér kveinka sér. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.