Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 70
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR38 Okkar ástkæri HÉÐINN HJARTARSON Seljahlíð, Reykjavík, lést 1. apríl. Útförin fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 17. apríl kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Héðinsdóttir 24 tíma vakt Sími 551 3485 Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947 ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ ÚTFA RARÞJÓNUSTA Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu, samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐFINNS ÞORGEIRSSONAR skipstjóra, Brimhólabraut 8, Vestmannaeyjum, sem lést fimmtudaginn 22. mars. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja fyrir frábæra umönnun. Valgerður Helga Eyjólfsdóttir Jakobína Guðfinnsdóttir Kristmann Kristmannsson Hafsteinn G. Guðfinnsson Hildur K. Oddgeirsdóttir Sigurleif Guðfinnsdóttir Guðfinna Guðfinnsdóttir Óðinn Haraldsson Þorgeir Guðfinnsson Guðrún Þórey Ingólfsdóttir Helga Guðmundsdóttir Lilja Guðný Guðmundsdóttir Páll Emil Beck barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts elskulegrar dóttur okkar, systur, mágkonu og frænku, BRYNJU SVANDÍSAR KRISTJÁNSDÓTTUR Þverholti 5, Vopnafirði, Guð blessi ykkur öll. Kristján Magnússon Guðfinna Kristjánsdóttir Magnús Kristjánsson Anna Dóra Halldórsdóttir Signý Björk Kristjánsdóttir Höskuldur Haraldsson og fjölskyldur. Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, BIRNU ODDSDÓTTUR meinatæknis, áður til heimilis að Kleppsvegi 26. Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða, Hlíðabæjar og Sinnum heimaþjónustu. Einnig til ættingja og vina sem studdu hana í veikindum hennar. Sigríður Kristín Birnudóttir Ingvi Már Pálsson Emilía, Karítas og Lovísa Ingvadætur timamot@frettabladid.is FRANSKI HEIMSPEKINGURINN SIMONE DE BEAUVOIR (1908-1986) lést á þessum degi. „Enginn er hrokafyllri í garð kvenna, árásargjarnari eða fyllri fyrirlitningar, en karl- maður sem hefur áhyggjur af karlmennsku sinni.“ Á þessum degi fyrir 20 árum vígði Markús Örn Antonsson, þáverandi borgarstjóri, Ráðhúsið við Reykjavíkurtjörn. Þegar ráðist var í byggingu Ráðhússins höfðu umræður um nauðsyn þess staðið yfir í áraraðir. Fyrstu hugmyndirnar um það heyrðust árið 1799, þegar kanselíið í Kaupmanna- höfn sendi bréf til landstjórans, þar sem minnst var á að hús vantaði fyrir borgar- ráðið. Borgaryfirvöld veltu byggingunni fyrir sér áratugum saman saman, leituðu að hentugum stað og kölluðu eftir til- lögum um gerð og útlit hússins. Oft kom til tals að reisa Ráðhúsið við Tjörnina, en það var alla tíð umdeild hugmynd. Það var í valdatíð Davíðs Odds- sonar sem framkvæmdir við Ráðhúsið fóru af stað en hann tók fyrstu skóflustunguna að húsinu árið 1988. Ákveðið var að byggja ráðhúsið í norðurenda Tjarnarinnar, að undangenginni samkeppni meðal arkitekta um teikningar og útlit hússins. Í Ráðhúsinu í Reykjavík er aðsetur borgarstjóra og borgarstjórnar. Þar er líka kaffihús og stærðarinnar Íslandskort sem ferðamenn sjást oft grandskoða. Tjarnarsalurinn er „salur fólksins“ eins og segir á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Fólkið er Reykvíkingar, gestir borgarinnar, jafnt innlendir sem erlendir. Hann er hluti af opnu rými Ráðhússins sem ætlað er almenningi. Tjarnarsalurinn er leigður út fyrir fjölþætta starfsemi, svo sem tónleika, ráðstefnur, kynningar og menningarvið- burði af öllu mögulegu tagi. ÞETTA GERÐIST: 14. APRÍL 1992 Ráðhúsið við Tjörnina 20 ára RÁÐHÚS VIÐ TJÖRNINA Það var umdeild framkvæmd að reisa Ráðhús við Tjörnina árið 1992. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ODDNÝ GESTSDÓTTIR frá Garðsvík, Svalbarðsströnd, lést á páskadag á Hrafnistu. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 16. apríl kl. 11.00. Blóm og kransar afþakkaðir en bent er á líknarstofnanir. Sigrún Hákonardóttir Sólveig Hákonardóttir Karin Hákonardóttir Byström Karl Byström Margrét Elín Arnarsdóttir Tómas Beck Nína Dröfn Arnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI SVEINSSON múrarameistari og fv. stórkaupmaður, Glerárgötu 14, síðar í Asparhlíð, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri laugardaginn 7. apríl. sl. Jarðarför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 16. apríl nk. kl. 13.30. Ásta Sigmarsdóttir Sveinn Bjarnason Alda Benediktsdóttir Ingibjörg Bjarnadóttir Björg Bjarnadóttir Sigmar Bergvin Bjarnason Þóra Berg Jónsdóttir Alma Bjarnadóttir Antonio Perrone Bjarni Bjarnason barnabörn og barnabarnabörn. „Áhugaóperufélög eru til úti um allan heim en það hefur lengi vantað slíkt félag hér á landi. Ég lærði og bjó í Eng- landi og þar er mikið af óperufélögum og þar af leiðandi ótal tækifæri fyrir unga söngvara til að spreyta sig og fá hlutverk í óperu. Hér hafa verið til félög, sem hafa lifað í stuttan tíma, eða verið búin til í kringum einstaka sýningar. Það er okkar draumur að Alþýðuóperan sé komin til að vera til langs tíma,“ segir Dagrún Ísabella Leifsdóttir, ein af stofnendum hins nýstofnaða óperufélags. Í sýningum Alþýðuóperunnar verður lögð sérstök áhersla á litla umgjörð og lagt upp úr því að sýningar fari fram í alþýðu- rými, svo sem á vínveitingastöðum, þar sem nálægð við áhorfendur er mikil. Ísabella hafði lengi gengið með þá hugmynd í maganum að stofna óperu- félag en þegar hún fór að vinna með þeim Signýju Leifsdóttur og Sig- ríði Aradóttur hjá Auru menningar- stjórnun fór boltinn að rúlla. Þær fengu svo til liðs við sig Ingólf Níels Árnason óperuleikstjóra. Hópurinn fékk styrk frá samfélags- sjóði Landsvirkjunar og Reykjavíkur- borg fyrir fyrsta leikárið. Hann fékk Sigríði Ellu Magnúsdóttur óperusöng- konu sem verndara félagsins. „Okkur þykir voðalega vænt um að hafa fengið Sigríði sem verndara og við erum afar þakklát bakhjörlum okkar, því án þeirra hefðum við aldrei getað ráðist í þetta verkefni,“ segir Ísabella. Fyrsta verkið sem Alþýðuóperan ræðst í er La serva padrona eða Ráðs- konuríki eftir Pergolesi, í þýðingu Guðmundar Jónssonar, næsta haust. Ekki er búið að ráða í hlutverk og eru söngvarar hvattir til að sækja um þátt- töku. „Við hvetjum fólk til að senda okkur upptökur og öllum er frjálst að sækja um. Okkur langar að virkja sem flesta með okkur í þetta verkefni,“ segir Ísabella, sem efast ekki um að margar umsóknir eigi eftir að berast. „Við eigum fullt af óperusöngvurum á Íslandi, en líka heilmikið af hæfileika- ríkum söngnemum og áhugafólki um söng.“ Það er von stofnenda Alþýðu- óperunnar að hún muni höfða til sem flestra og færa þeim gleði, svo fleiri læri að njóta óperu. Meðal annars verður unnið að því markmiði með fræðslustarfsemi í skólum og öðrum stofnunum. „Okkur langar að eyða þeim fordómum að óperur séu óað- gengilegar og háfleygar. Með því að fara með óperuna til fólksins sýnum við því að þetta er skemmtun sem er fyrir alla, sem sameinar svo margt, leiklist, söng og hljóðfæraleik. Nafnið okkar - Alþýðuóperan - segir allt sem þarf.“ holmfridur@frettabladid.is NÝSTOFNUÐ ALÞÝÐUÓPERA: SETJA UPP RÁÐSKONURÍKI EFTIR PERGOLESI Í HAUST Vilja færa óperuna til fólksins AÐSTANDENDUR ALÞÝÐUÓPERUNNAR Þær Didda, Ísabella, Signý og Esther Ýr standa að Alþýðuóperunni ásamt Ingólfi Níels óperuleikstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.