Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 8
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR8 Námskeið með Önnu Rósu Róbertsdóttur grasalækni Námskeiðið er haldið í Heilsuhúsinu, Lágmúla 5. Verð: 7.900 kr. Skráning: annarosa@annarosa.is eða í síma 662 8328. Á námskeiðinu fjallar Anna Rósa um algengar lækningajurtir sem notaðar eru í smyrsl. Sýnikennsla verður á staðnum, námsgögn og uppskrift fylgja og allir fá smyrsl með sér heim. Bókin „Anna Rósa grasalæknir og íslenskar lækningajurtir“ með 20% afslætti fyrir nemendur á námskeiðinu. stjórnmálaflokks í könnun Frétta- blaðsins. Könnunin var gerð dagana 11. og 12. apríl. Stuðningur við Sjálfstæðis- flokkinn eykst verulega milli kannanna. Í könnun Frétta- blaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var fyrri hluta febrúar mældist flokkurinn með 35 prósent atkvæða. Aukning á fylgi flokks- ins er enn meiri sé litið til kjör- fylgis hans í síðustu kosningum. Þá fékk flokkurinn 23,7 prósent atkvæða. Samkvæmt könnuninni hefur stuðningur við flokkinn aukist um nærri 19 prósentustig frá kosningunum 2009. Fengi Sjálfstæðisflokkurinn stuðning 42,6 prósenta kjósenda í kosningum myndi það skila flokknum 29 þingsætum. Það er næstum tvöföldun á þingstyrk flokksins, sem er með 16 þing- menn í dag. Samfylkingin bætir örlítið við fylgi sitt frá síðustu könnun, en er engu að síður með innan við helming af þeim stuðningi sem flokkurinn fékk í síðustu kosn- ingum. Um 14,8 prósent segjast myndu kjósa flokkinn yrði gengið til kosninga nú. Í könnun Frétta- blaðsins og Stöðvar 2 í febrúar mældist fylgið 12,3 prósent. Flokkurinn fékk 29,8 prósent atkvæða í síðustu kosningum. Þingstyrkur stjórnar helmingaður Samfylkingin fengi samkvæmt þessari niðurstöðu tíu þingmenn kjörna, helming þeirra 20 sem flokkurinn er með í dag. Framsóknarflokkurinn er nú svipaður að stærð og Sam fylkingin, en nýtur þrátt fyrir það ekki jafn afgerandi fylgis aukningar og Sjálf- stæðisflokkurinn. Um 14,6 prósent segjast myndu kjósa flokkinn nú, svipað hlut- fall og í síðustu kosningum þegar flokkurinn fékk 14,8 pró- sent atkvæða. Í síðustu könnun mældist Framsóknarflokkurinn með 12,5 prósenta stuðning og aukningin um tvö prósentustig. Þessi stuðningur myndi skila flokknum níu þingmönnum, einum færri en hann er með í dag. Vinstri grænir eru hvergi nærri því að ná kjörfylgi sínu, og mælast aðeins með stuðning 8,6 prósenta kjósenda. Það er ör- lítil aukning frá síðustu könnun, þegar stuðningurinn mældist 8 prósent, en aukningin er innan skekkju marka. Flokkurinn fékk 21,7 prósenta stuðning í síðustu kosningum, og hefur fylgið því dalað um 13,1 prósentustig. Vinsti grænir fengju samkvæmt þessu helming þess þingstyrks sem þeir eru með í dag, eða sex þingmenn kjörna. Ný framboð ná átta á þing Tvö ný framboð myndu ná mönnum á þing yrðu niður- stöður þingkosninga í samræmi við könnun Fréttablaðsins. Alls sögðust 7,2 prósent styðja Bjarta framtíð, sem er aukning um 1,1 prósentustig frá síðustu könnun. Flokkurinn fengi samkvæmt því fjóra þingmenn. Stuðningur við Samstöðu hrynur frá síðustu könnun. Þá mældist flokkurinn með 21,3 prósenta fylgi, en aðeins 6 pró- sent segjast myndu kjósa flokkinn nú. Það fylgi myndi duga til að ná fjórum mönnum á þing. Önnur framboð virðast ekki hafa náð hylli kjósenda. Hægri- grænir fengju atkvæði 2,3 pró- senta kjósenda samkvæmt könnuninni. Dögun, sameigin- legt framboð Hreyfingarinnar, Borgara hreyfingarinnar, Frjáls- lyndra og fleiri, nýtur stuðnings 2,1 prósents kjósenda. Minnstur mælist stuðningur við Lýðfrelsis- flokkinn, um 0,9 prósent. Nýju framboðin njóta saman- lagt talsverðrar hylli meðal almennings, og fengju samtals 18,5 prósent atkvæða. Vegna þess hversu atkvæðin dreifast á marga flokka myndu þau skila þeim hlut- fallslega fáum þingmönnum miðað við atkvæðamagn. Margir enn óákveðnir Enn er talsverður hluti kjósenda sem ekki gefur upp afstöðu til stjórnmálaflokka. Um tíu prósent þeirra sem hringt var í sögðust ekki hafa gert upp hug sinn. Um sextán prósent sögðust ekki ætla að kjósa, eða ætla að skila auðu. Um 20 prósent vildu ekki svara spurningunni. Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is FRÉTTASKÝRING: Könnun á fylgi stjórnmálaflokka Eini möguleikinn til að mynda ríkisstjórn án þátt- töku Sjálfstæðisflokksins er ríkisstjórn allra hinna flokk- anna fimm sem ná sæti á Alþingi samkvæmt skoðana- könnun Frétta blaðsins. Ný framboð ná samtals átta þingmönnum, en hátt hlut- fall kjósenda á enn eftir að gera upp hug sinn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur bætt við sig verulegu fylgi síðustu mánuði samkvæmt skoðana- könnun Fréttablaðsins sem gerð var í vikunni. Nær óhugsandi væri að mynda starfhæfa ríkis- stjórn án aðkomu flokksins yrðu niðurstöður kosninga í takt við útkomu skoðanakönnunarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn fengi samkvæmt könnuninni 29 þing- menn, og þyrftu allir hinir flokkarnir fimm sem ná inn mönnum að mynda ríkisstjórn saman til að flokkurinn komist ekki í ríkisstjórn. Sá meirihluti væri þrátt fyrir aðild fimm flokka fremur veikur, með aðeins 34 þingmenn af 63. Enn er þó hátt hlutfall kjósenda sem ýmist hefur ekki gert upp hug sinn, eða vill ekki gefa upp hvaða flokkur yrði fyrir valinu þegar í kjörklefann er komið. Alls tóku um 54 prósent þeirra sem haft var samband við afstöðu til einhvers stjórnmálaflokks. Svo lágt svarhlutfall þýðir að taka verður niðurstöðu könnun- arinnar með ákveðnum fyrir- vara, þó hún gefi góða hugmynd um hvernig afstaða kjósenda til flokkanna er um þessar mundir. Almennt hefur lágt svarhlutfall í könnunum verið tengt óánægju kjósenda með þá stjórnmála- flokka sem í boði eru, og með stjórnmálin almennt. Svarhlut- fallið í könnun Fréttablaðsins er þó talsvert hærra en skömmu eftir hrun, þó það nái ekki þeim 65 prósentum sem algengt var fyrir hrun. Fleiri styðja Sjálfstæðisflokkinn Stuðningur við stóru flokkana fjóra; Sjálfstæðisflokk, Fram- sóknarflokk, Samfylkingu og Vinstri græna, hefur í öllum til- vikum aukist frá síðustu könnun, þó mismikið sé. Þetta skýrist að hluta með fylgistapi Samstöðu, flokks Lilju Mósesdóttur, frá síðustu könnun. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur nú stuðnings 42,6 prósenta þeirra sem afstöðu taka til einhvers Varla meirihluti án Sjálfstæðisflokksins Hringt var í 800 manns 11. og 12. apríl. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokk- inn eða einhvern annan flokk? Alls tóku 53,9 prósent afstöðu. Spurt er með þessum hætti til að hámarka fjölda þeirra sem tekur afstöðu til spurningarinnar. Aðferðafræðin er þróuð af sér- fræðingum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Síðasta spurn- ingin er hönnuð af þeim til að draga úr mældu fylgi Sjálfstæðis- flokksins, sem hefur sögulega yfirleitt mælst með meiri stuðning í skoðanakönnunum en hann fær í kosningum. Aðferðafræðin Afstaða allra Við útreikning á niðurstöðum skoðana kannana er almennt litið til þeirra sem afstöðu taka, og reiknað með því að þeir sem ekki taki afstöðu dreifist með svipuðum hætti á flokkana þegar í kjörklefann er komið. Hér að neðan má sjá niður- stöður könnunarinnar áður en þessari aðferðafræði hefur verið beitt. Framsóknarflokkurinn 7,9% Björt Framtíð 3,9% Samstaða 3,2% Sjálfstæðisflokkurinn 22,9% Dögun 1,1% Hægri-grænir 1,2% Lýðfrelsisflokkurinn 0,5% Samfylkingin 8,0% Vinstri græn 4,6% Annar flokkur 0,5% Kýs ekki/skila auðu 15,6% Óákveðin(n) 10,3% Svara ekki 20,2% Heldur fleiri taka afstöðu til flokka Hlutfall þeirra sem taka afstöðu til stjórnmálaflokka í könnun Fréttablaðsins Fylgi stjórnmálaflokkanna þeirra sem þátt tóku í skoð- anakönnun Fréttablaðsins tóku afstöðu til einhvers stjórnmálaflokks. 54% Kosningar 25.4. 2009 28.7. 2009 15.10. 2009 7.1. 2010 18.3. 2010 23.9. 2010 19.1. 2011 24.2. 2011 5.-6.4. 2011 8.9. 2011 7. og 8.12.2011 8. og 9.2. 2012 11. og 12.4. 2012 50 40 30 20 10 0 Samstaða Björt framtíð Lýðveldisflokkurinn 0,9% Hægri-grænir 2,3% Dögun 2,1% 14,6% 7,2% 6,0% 42,6% 14,8% 8,6% HEIMILD: KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS 11. OG 12. APRÍL HEIMILD: KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS 11. OG 12. APRÍL 28 .7 .2 00 9 15 .1 0. 20 09 7.1 .2 01 0 18 .3 .2 01 0 23 .9 .2 01 0 19 .1 .2 01 1 24 .2 .2 01 1 8. 9. 20 11 7. o g 8. 12 .2 01 1 8. o g 9. 2. 20 12 11 . o g 12 .4 .2 01 2 70 60 50 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.